Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1151. fundur
12. nóvember 2024 kl. 10:00 - 11:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Íbúaráð Öræfum - 5
Málsnúmer 2410019F
Fundargerð íbúaráðs Öræfa númer 5 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 88
Málsnúmer 2410015F
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar númer 88 lögð fram.
Lögð fram til kynningar.
3.
Fjárhagsáætlun 2025
Málsnúmer 202408025
Bæjarstjóri fór yfir fjárhagsáætlun 2025-2028.
Fjárhagsáætlun 2025-2028 vísað til fyrri umræðu bæjarstjórnar.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir sat hjá þar sem upplýsingar vantar í fyrirliggjandi gögn.
Samþykkt með tveimur atkvæðum.
4.
Hleðslustöðvar - hugsanlegar staðsetningar við stofnanir sveitarfélagsins
Málsnúmer 202309041
Á fundi þann 27.02.2024 fól bæjarráð starfsmönnum að leggja fram tillögur að staðsetningum rafhleðslustöðva við stofnanir sveitarfélagsins bæði í dreifbýli og þéttbýli og kostnaðarmeta verkefnið.Starfsmenn leggja til að í þessum áfanga verða stöðvar settar upp við Hofgarð, Hrollaugsstaði og við ráðhúsið. Kostnaður er metin á ca. 0,5 miljónir fyrir hverja stöð.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðar tillögur og vísar málinu til mats á fjárhagslegum áhrifum.
5.
Umsókn um lóð - Hafnarbraut 38
Málsnúmer 202411005
Vegna mikillar eftirspurnar eftir hleðsluinnviðum innan sveitarfélagsins er óskað eftir samstarfi að aðstöðu frá sveitarfélaginu til að koma upp hleðsluinnviðum fyrir rafbíla.ON leitar að hentugum svæðum í sveitarfélaginu, hvort sem er á lóð eða á bílastæði í eigu sveitarfélagsins, til að koma fyrir hleðsluinnviðum fyrir íbúa og viðskiptavini sveitarfélagsins.Fyrir hönd ON þá óskum við eftir aðstöðu á lóðinni, Hafnarbraut 38 þar sem við kappkostum alltaf við að hafa okkar þjónustu nálægt afþreyingu eða þjónustu. Að okkar mati er þarna kjör aðstaða til að byggja upp „hleðslugarð“ ON með að minnsta kosti 2 „drive through“ stöðvum (4 hraðhleðslutengi) þar sem er nægt pláss fyrir bíla með tengivagna að komast að og einnig rútur í framtíðinni. Myndum einnig hafa pláss til að stækka í 4 stöðvar eða 8 hraðhleðslutengi samtals í framtíðinni.
Bæjarráð getur ekki mælt með úthlutun þessarar lóðar fyrir þessi áform en felur umhverfis- og skipulagsstjóra að finna aðrar mögulegar staðsetningar með umsækjenda í samræmi við umræður á fundinum.
Samþykkt samljóða.
6.
Framkvæmd - Leikvöllur Leirusvæðis
Málsnúmer 202407050
Bæjarstjóri fór yfir stöðuna á framkvæmdum leikvallar á Leirusvæði. Búið er að panta leiktækin og er verkið í fullum undirbúningi.
Lagt fram til kynningar.
7.
Umf.Sindri - Samningur 2024
Málsnúmer 202404054
Samstarfssamningur við Ungmennafélag Sindra lagður fram til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs að ganga frá samningi til undirritunnar. Samningurinn verður undirritaður á 90 ára afmæli ungmennafélagi Sindra þann 1. desember næstkomandi.
Samþykkt samhljóða.
8.
Íþróttahús - hönnun
Málsnúmer 202402127
Fundargerð stýrihóps um nýtt íþróttahús númer 22 og kostnaðaráætlun lagðar fram.
Lagt fram til kynningar.
9.
Fundargerðir - Samtök orkusveitarfélaga 2024
Málsnúmer 202401125
Fundargerðir 77. og 78. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga ásamt fundargerð frá aðalfundi og stefnumörkun og starfsáætlun 2024-2025 lagðar fram.
Lagt fram til kynningar.
10.
Fundargerðir -Samtök sjávarútvegssveitarfélaga
Málsnúmer 202305012
Fundargerðir númer 82. og 83. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga ásamt aðalfundi samtakanna lagðar fram.
Lagt fram til kynningar.
11.
Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga 2024
Málsnúmer 202401122
fundargerð 954. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram.
Lagt fram til kynningar.