Bæjarráð Hornafjarðar
1153. fundur
26. nóvember 2024
kl.
10:00
-
12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Íbúaráð - Nes og Lón - 6
Fundargerð íbúaráðs Nes og Lón númer 6 lögð fram
Lagt fram til kynningar.
2.
Velferðarnefnd - 37
Fundargerð velferðarnefndar númer 37 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
3.
Fræðslu- og frístundanefnd - 119
Fundargerð fræðslu- og frístundarnefndar númer 119 lögð fram
Lagt fram til kynningar.
4.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 89
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar númer 89 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
5.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Veitingaleyfi - Hafnarbraut 4 - F2180643- Vonia ehf
Unnið er að úrbætum sem byggingarfulltrúi mælti fyrir svo hægt sé að veita leyfi án fyrirvara. Umsögn byggingarfulltrúa vegna útgáfu rekstrarleyfis til veitingu veitinga í flokki II tegund kaffihús í mannvirkinu er jákvæð með þeim skilyrðum um að rými 010201 (efri hæð) verði ekki í notkun þar til úr annmörkum skv. öryggisúttektarvottorð verði bætt, sbr. 7. mgr. 26. gr. 1277/2016. Gera skal úrbætur eigi siðar en 31.12.2024.
Nauðsynlegar úrbætur hafa verið gerðar eða eru á lokastigum. Bæjarráð staðfestir að skilyrðum sé fullnægt og veitir því jákvæða umsögn.
6.
Reglur Sveitarfélagsins Hornafjarðar um frístundasþjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni
Sveitarfélaginu er skylt að vera með reglur um frístundaþjónustu fyrir fötluð börn. Lögð eru fram drög að reglum Sveitarfélagsins Hornafjarðar um frístundaþjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni.
Bæjarráð samþykkir reglur um frístundaþjónustu fyrir fötluð börn og ungmennni og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
7.
Yfirtaka og uppbygging eigna - Félagslegt leiguhúsnæði
Í maí síðastliðnum undirrituðu Sveitarfélagið Hornafjörður og Leigufélagið Bríet undir viljayfirlýsingu þess efnis að Leigufélagið Bríet myndi yfirtaka 18 íbúðir úr eignasafni sveitarfélagsins og skuldbinda sig til að koma að uppbyggingarverkefnum á leigumarkaði í sveitarfélaginu. Síðan þá hefur verið unnið að frágangi samnings um yfirtöku eignanna og liggur hann nú fyrir.
Bæjarráð samþykkir samhljóða samning við leigufélagið Bríet ehf. og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
8.
Ósk um umsögn vegna flugeldasýningar áramót 2024
Erindi frá Björgunarfélagi Hornafjarðar þar sem óskað er eftir umsögn og leyfi til þess að halda brennu og flugeldasýningu í landi sveitarfélagsins við Hafnarbraut móts við Mjólkurstöð á áramótum.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
9.
Breytt opnun Hafnarvog
Tillaga að breyttum opnunartíma á Hafnarvog í tengslum við styttingu vinnuvikunnar var lögð fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundi bæjarráðs og niðurstöður Hafnarstjórnar.
10.
Atvinnu- og rannsóknasjóður. Staða sjóðsins og styrkverkefna.
Bæjarráð óskaði eftir upplýsingum um stöðu atvinnu- og rannsóknarsjóðs og stöðu á styrkveitingu til Sláturfélags A-Skaftafellsýslu. Umbeðnar upplýsingar lagðar fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við forsvarsmenn Sláturfélags A-Skaftafellssýslu varðandi styrkveitingar og stöðu verkefnisins. Sviðsstjóra stjórnsýslusviðs falið að rýna í frekari stöðu atvinnu- og rannsóknarsjóðs.
11.
Humarhátíð 2024
Minnisblað sviðsstjóra stjórnsýslusviðs um Humarhátíð 2025 lagt fram.
Lagt fram til kynningar. Bæjarráð hvetur áhugasama að hafa samband við humarhátiðarnefnd á netfangið humarhatidarnefnd@gmail.com.
12.
Hverfisráð - Íbúaráð
Öll íbúaráð hafa samþykkt að sitja út kjörtímabil bæjarstjórnar. Á fundi bæjarráðs 23.04.2024 var eftirfarandi bókun gerð:Bæjarráð lýsir yfir ánægju með það góða starf og mikilvæga samtal sem hefur átt sér stað við íbúaráðin og þakkar fulltrúum fyrir þeirra vinnu. Um leið óskar bæjarráð eftir að núverandi fulltrúar sitji annað ár eða út kjörtímabilið sé það vilji fulltrúanna. Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúa er falið að bera það undir íbúaráðin og breyta erindisbréfinu í kjölfarið.Uppfært erindisbréf lagt fram til staðfestingar.
Bæjarráð samþykkir uppfært erindisbréf og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
13.
Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga 2024
Upplýsingar fundargerð 955. fundar stjórnar Sambandsins frá 15. nóvember 2024 lögð fram
Lagt fram til kynningar.
14.
Íþróttahús - hönnun
Fundargerð stýrihóps um nýtt íþróttahús númer 23 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.