Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1159. fundur
21. janúar 2025 kl. 10:00 - 12:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir varamaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Grunur um e.coli í neysluvatni
Málsnúmer 202501070
Grunur vaknaði um E. coli bakteríu í neysluvatni eftir að sýni voru tekin í fyrirtæki hér á Höfn á mánudag í síðustu viku. Fyrirtækið upplýsti sveitarfélagið og Heilbrigðiseftirlit Austurlands um stöðuna seinnipart föstudags þegar niðurstöður úr sýnatöku bárust þeim. Heilbrigðiseftirlit Austurlands tók sýni á nokkrum stöðum í dreifikerfi vatnsveitu Hafnar.Sveitarfélagið sendi 18. janúar frá sér tilkynningu um að, til að gæta fyllsta öryggis eru íbúar beðnir um að sjóða allt neysluvatn.
Í dag þriðjudaginn 21. febrúar barst frumgreining frá rannsóknarstofu Matís á vatnssýnum sem tekin voru af hálfu Heilbrigðiseftirlits Austurlands í dreifikerfi vatnsveitunnar er neysluvatnið ómengað og því hæft til neyslu.
Þegar frumniðurstöður eru með þessum hætti þá er óhætt að segja að ekki séu e.coli eða kólí bakteríur í vatninu.

Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra og sviðsstjóra mannvirkjasviðs að endurskoða verklag við atburð eins og þennan, í samstarfi við HAUST, HSU (sóttvarnarlækni) og Almannavarnir Suðurlands.
2.
Velferðarnefnd - 38
Málsnúmer 2501008F
Fundargerð velferðarnefndar númer 38 lögð fram.
3.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 71
Málsnúmer 2501002F
Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar númer 71 lögð fram
4.
Fræðslu- og frístundanefnd - 121
Málsnúmer 2412014F
Fundargerð fræðslu- og frístundarnefndar númer 121 lögð fram.
Bæjarráð leggur til að minnisblað undir lið númer 8. Þarfagreining vegna Grunnskóla Hornafjarðar verði tekið til umræðu í stýrhópnum um byggingu nýs íþróttahúss og að fulltrúar Grunnskólanns, sviðstjóri fræðslu- og frístundasviðs ásamt sviðsstjóra mannvirkjasviðs sitji þann fund.
5.
Fjölmenningarráð 2024
Málsnúmer 202402124
Fjölmenningarráð tók fyrir á síðasta fundi sínum möguleikann á því að fara í vettvangs/fræðsluferðir í önnur sveitarfélög til þess að heimsækja önnur fjölmenningarráð og fjölmenningarfulltrúa. Reynsla sem þessi er fyrst og fremst lærdómsrík og hvetjandi, en einnig skemmtileg fyrir ráðið. Ráðið óskar eftir fjárlagi til þess að gera þessar ferðir að veruleika og myndi helst vilja fara á árs fresti og ef það tekst myndi ráðið fækka um einn fund á ári, en eins og staðan er núna hittist ráðið á tveggja mánaða fresti eða 5x á ári.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra velferðarsviðs að greina þörf og kostnað á verkefninu.
6.
Framtíðarsýn um málefni aldraðra 2026-2030
Málsnúmer 202412045
Stefnt er að því að vinna að framtíðarsýn og framkvæmdaáætlun í málefnum aldraðra í Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir árin 2026-2030.Sviðsstjóri mun kynna hvaða þjónustuþættir falla undir vinnuna og óska eftir umræðum um hvernig velferðarnefnd sér þjónustuna fyrir sér ásamt því að gera grein fyrir umræðum öldungaráðs um málið.Hugmyndir um framkvæmd framtíðarsýnar fyrir málefni aldraðra kynntar fyrir nefndinni. Velferðarnefnd tekur vel í þær hugmyndir sem eru kynntar og leggur áherslu á að framkvæmdin sé unnin í nánu samstarfi við öldungaráð og Félag eldri Hornfirðinga.Þá telur velferðarnefnd mikilvægt að haldinn verði vinnufundur/ir í samstarfi við FEH þar sem íbúum gefst færi á að mæta og hafa áhrif á þá stefnu sem verður mótuð. Nefndin felur starfsmanni að vinna að nánari útfærslu á því.Nefndin telur þörf að fá utanaðkomandi aðila til að framkvæma úttekt á þjónustunni eins og hún er í dag til að leggja mat á hvað má gera betur.Málinu vísað til frekari umræðu í bæjarráði.
Lagt fram til kynningar.
7.
Barnvænt sveitarfélag lokaskýrsla fyrstu aðgerðaráætlunar 2025
Málsnúmer 202412118
Unnið er að lokaskýrslu fyrir Barnvænt sveitarfélag og verður hún send til UNICEF á næstu dögum.Þegar aðgerðaráætlun var lokið þá var formlegu starfi stýrihóps um Barnvænt sveitarfélag lokið. Starfsfólk á fræðslu- og frístundasviði óskar eftir því að fræðslu- og frístundanefnd taki að sér hlutverk stýrihóps og verði ábyrgðaraðili verkefnisins innan stjórnsýslunnar. Verkefnastjóri sviðsins mun áfram bera ábyrgð á framkvæmd og innleiðingu eins og verið hefur og vinna í nánu samstarfi með ungmennaráði og öðrum hagaðilum. Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir það fyrir sitt leyti og óskar eftir samþykki bæjarráðs. Einnig þakkar nefndin stýrihópnum og verkefnastjórum í gegnum árin fyrir vel unnin störf og vonast eftir að starfið haldi áfram af sama krafti og verið hefur undanfarið.
8.
Gjaldskrá Slökkviliðs Hornafjarðar 2025
Málsnúmer 202411087
Gjaldskrá Slökkviliðs Hornafjarðar árið 2025 lögð fram til samþykktar.
Lagt fram til kynningar.
9.
Styrkumsókn atvinnu og menningarmálanefnd- Nem FAS
Málsnúmer 202412047
Nemendafélag FAS sótti um styrk til Atvinnu og menningarmálanefndar vegna árshátíðar. Vegna framkvæmda í Sindrabæ er fyrirséð að kostnaðurinn verði enn meiri vegna þess að leigja þarf annan sal. Atvinnu og menningarmálanefnd óskar eftir því að bæjarráð taki það til umfjöllunar hvort hægt sé að mæta þeim með styrk vegna leigu á sal svo að styrkur nefndarinnar nýtist í viðburðinn sjálfan.
Bæjarráð óskar eftir frekari sundurliðun á kostnaði vegna árshátíðarinnar.
10.
Kirkjubraut - Ósk um úrbætur vegna Hraðaksturs
Málsnúmer 202109029
Erindi barst vegna umferðaröryggismáls sem upphaflega kom til bæjarráðs árið 2021 ásamt undirskriftalista íbúa við Kirkjubraut. Íbúar vilja taka málið upp á nýju þar sem litlu munaði að illa færi núna nýlega þegar barni var naumlega bjargað frá því að verða fyrir bíl. Minnisblað sviðsstjóra stjórnsýslusviðs lagt fram með málinu þar sem farið er yfir þau mál sem skráð eru í málakerfið varðandi umferðaröryggi á Kirkjubraut frá árinu 2021.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra mannvirkjasviðs að panta hraðalækkandi hindranir og vísar til umhverfis- og skipulagsnefndar að taka fyrir umferðaröryggisáætlun hið snarasta.
11.
Beiðni um vegagerð - Miðós
Málsnúmer 202501018
Skinney-Þinganes hf. óskar eftir að farið verði í vegframkvæmdir á Miðósi og bætt verði kafli meðfram lóðum 13 og 15.
Bæjarráð samþykkir samhljóða skoða fjárhagsleg áhrif verksins. Sviðsstjóra mannvirkjasviðs falið að vinna áfram að málinu.
12.
Atvinnu- og rannsóknasjóður. Staða sjóðsins og styrkverkefna.
Málsnúmer 202409078
Á síðasta fundi bæjarráðs var óskað eftir fjárhagslegu mati á viðbætum í sjóðinn.
Viðaukar eru ekki tilbúnir en verða sendir í tölvupósti þegar þeir verða klárir.