Bæjarráð Hornafjarðar
1164. fundur
25. febrúar 2025
kl.
10:00
-
12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Íbúaráð - Nes og Lón - 7
Fundargerð íbúaráðs Nes og Lóns númer 7 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 94
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar númer 94 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
3.
Fræðslu- og frístundanefnd - 122
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar númer 122 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
4.
Starfshópur um húsnæðismál Grunnskóla Hornafjarðar
Fræðslu- og frístundanefnd leggur til að myndaður verði starfshópur um húsnæðismál Grunnskóla Hornafjarðar. Nefndin hvetur til þess að hópurinn verði skipaður fulltrúum frá skólanum, af skipulags- og mannvirkjasvið, fræðslusviði og úr pólitíkinni auk þess sem mikilvægt er að hafa náið samráð við hagsmunaaðila skólasamfélagsins sbr. reglugerð nr.599/2014 um gerð og búnað grunnskólahúsnæðis og skólalóðar.Hlutverk hópsins væri að fara yfir þarfir skólans og búa til áætlun um það hvernig húsnæði skólans ætti að þróast á næstu árum og tryggja að það verði nægt pláss fyrir starfsemina.
Sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs falið að vinna áfram að málinu.
5.
Opnunartími sundlaugarinnar
Síðasta árið hefur sundlaugin verið opin til 19.00 á laugardögum og sunnudögum í stað 17.00. Var opnunartíminn lengdur í kjölfar umræðu í ungmennaráði.Á þriggja mánaða tímabili frá 1. nóv - 31. janúar sl. komu t.a.m. 689 fleiri gestir í sund á miðað við tvö árin þar á undan. Í ljósi góðrar nýtingar á sundlauginni milli 17:00 og 19:00 á laugardögum og sunnudögum leggur fræðslu- og frístundanefnd til að halda þessari opnun og vísar málinu til bæjarráðs
Bæjarráð lýsir yfir ánægju með góða nýtingu á sundlauginni og samþykkir að halda núverandi opnunartíma.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
6.
Reglur um niðurgreiðslur til dagforeldra - endurskoðun
Tveggja vikna seinkun hefur orðið á því að nýju deildirnar á leikskólanum verði tilbúnar og er nú stefnt að miðjum apríl. Fljótlega eftir að það og í síðasta lagi næsta haust ættu biðlistar á leikskólann að vera tæmdir svo framarlega sem mönnun á leikskólanum gengur vel. Því er eðlilegt að endurskoða reglur um dagforeldra og niðurgreiðslur til þeirra.Fræðslu- og frístundanefnd leggur til að halda áfram reglum um niðurgreiðslur til dagforeldra en fella út grein 11 frá og með 1. ágúst.
Bæjarráð samþykkir samhljóða niðurfellingu á 11. grein frá og með 1. ágúst 2025.
7.
Íþróttavöllur á Hrollaugsstöðum
Á fundi fræðslu- og frístundanefndar voru hugmyndir um uppbyggingu á íþróttavelli við Hrollaugsstaði í Suðursveit kynntar. Nefndin tók vel í hugmyndirnar og vísaði málinu til bæjarráðs.
Málinu vísað til umfjöllunar í umhverfis- og skipulagsnefnd.
8.
Beiðni um framlengingu á frestum vegna lóðaúthlutunar Sandeyri 2-7
Erindi frá Marina Travel ehf. þar sem óskað er meðal annars eftir staðfestingu á lóðarúthlutun.
Á bæjarstjórnarfundi 1. júní 2022 var samþykkt að úthluta lóðunum Sandeyri 2-7 til Marina Travel ehf. Umhverfis- og skipulagsstjóra falið að svara fyrirspurn Marina Travel ehf. varðandi lóðaúthlutun og byggingaráform.
9.
Úrskurður - Kæra vegna gatnagerðagjalda Hagaleiru 11
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs leggur fram minnisblað lögmanns um stöðu málsins.
Sviðsstjóra stjórnsýslusviðs og bæjarstjóra falið að óska eftir fundi með innviðaráðuneytinu.
10.
Rekstur flokkunarstöðvar- vog
Minnisblað um áskoranir og mögulegar lausnir á söfnunarstöðinni lagt fram.
Lagt fram til kynningar.
11.
Framkvæmd - Hagahverfi (ÍB5), innviðauppbygging, undirbúningur
Umhverfis- og skipulagsstjóri fer yfir stöðuna á Hagahverfi (ÍB5).
Beðið er niðurstaðna úr grunnvatnsrannsóknum svo taka megi ákvörðun um grundun gatna og innviða. Í kjölfarið ætti tímaáætlun að liggja fyrir og huga mætti að úthlutun lóða.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
12.
Lántaka 2025
Bæjarstjóri greinir frá undirbúningi við lánsumsókn.
Bæjarráð heimilar bæjarstjóra að hefja lánsumsókn í samræmi við fjárhagsáætlun og vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
13.
Opinber heimsókn forseta Íslands til Hornafjarðar
Drög að dagskrá opinberrar heimsóknar forseta Íslands til Hornafjarðar lögð fram til umræðu.
Undirbúningur fyrir heimsókn forseta Íslands, frú Höllu Tómasdóttur og maka Björns Skúlasonar, er í fullum gangi. Innan skamms verður dagskrá birt á heimasíðu Sveitarfélagsins ásamt því að hún verður send á heimili hér í Hornafirði.
Um er að ræða fyrstu opinberu heimsókn forsetahjónanna innanlands og mun Sveitarfélagið leggja allt kapp á að gera heimsóknina eins glæsilega og kostur er.
Fyrri daginn munu hjónin vera hér í þéttbýlinu á Höfn og seinni daginn heimsækja þau dreifbýlið.
Sveitarfélagið mun gera allt sem í sínu valdi stendur til þess að sveitarfélagið verði eins snyrtilegt og kostur er fyrir heimsóknina. Við hvetjum íbúa og fyrirtæki til að huga að sínu nærumhverfi og gera fínt fyrir heimsókn þeirra hjóna.
Um er að ræða fyrstu opinberu heimsókn forsetahjónanna innanlands og mun Sveitarfélagið leggja allt kapp á að gera heimsóknina eins glæsilega og kostur er.
Fyrri daginn munu hjónin vera hér í þéttbýlinu á Höfn og seinni daginn heimsækja þau dreifbýlið.
Sveitarfélagið mun gera allt sem í sínu valdi stendur til þess að sveitarfélagið verði eins snyrtilegt og kostur er fyrir heimsóknina. Við hvetjum íbúa og fyrirtæki til að huga að sínu nærumhverfi og gera fínt fyrir heimsókn þeirra hjóna.
14.
Árshátíð sveitarfélagsins
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs leggur fram minnisblað vegna árshátíðar sveitarfélagsins.
Bæjarráð leggur til að aðalmönnum í bæjarstjórn og fastanefndum; atvinnu- og menningamálanefnd, velferðarnefnd, fræðslu- og frístundanefnd, hafnarstjórn og umhverfis- og skipulagsnefnd sé boðið á árshátíð Sveitarfélagsins.
15.
Opið samráð um drög að frumvarpi til laga - mat á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög
Innviðaráðuneytið vekur athygli á því að opið samráð stendur nú yfir um frumvarp til laga um breytingar á sveitarstjórnarlögum og lögum um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga, vegna mats á fjárhagslegum áhrifum frumvarpa, stjórnvaldsfyrirmæla eða annarra stefnumarkandi ákvarðana af hálfu ríkisins á sveitarfélög. Frestur til þess að skila inn umsögn um frumvarpið er til og með 4. mars næstkomandi.
Lagt fram til kynningar.
16.
Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands
Fundargerð 183. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands lögð fram.
Lagt fram til kynningar.