Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1166. fundur
11. mars 2025 kl. 10:00 - 12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varamaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 95
Málsnúmer 2502019F
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar númer 95 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
2.
Útboð: SINDRABÆR - BREYTINGAR 2024
Málsnúmer 202403041
Óskað er eftir heimild til þess að auglýsa útboð vegna hljóð og tæknibúnaðar í Sindrabæ. Útboðsgögn lögð fram.
Bæjarráð heimilar útboðið samkvæmt framlögðum gögnum. Umsjónarmanni fasteigna falið að auglýsa útboðið.
3.
Útboð: Hafnarbraut 27 Ráðhús 1.áfangi
Málsnúmer 202405047
Minnisblað frá forstöðumanni menningarmiðstöðvar vegna fyrirhugaðra framkvæmda á fyrstu hæð ráðhúss lagt fram.
Bæjarráð þakkar forstöðumanni menningamiðstöðvar og safnverði fyrir samtalið.
4.
Störf í Gömlu búð
Málsnúmer 202502027
Minnisblað frá forstöðumanni menningarmiðtöðvar um starfshlutfall í Gömlu búð lagt fram.
Forstöðumanni menningarmiðstöðvar falið að auglýsa störf í Gömlu búð laus til umsókna.
5.
Opnunartími bókasafns
Málsnúmer 202503020
Minnisblað frá forstöðumanni menningarmiðstöðvar um opnunartíma bókasafns lagt fram.
Bæjarráð samþykkir breytann opnunartíma bókasafnins frá:

Mánudaga - fimmtudaga kl.9:00 - 17:00
Föstudaga kl.9:00 - 16:00
Laugardagar kl.11:00 - 15:00

Nýr opnunartími verður:
Mánudaga - fimmtudaga kl.10:00 - 17:00
Föstudaga og laugardagar kl.11:00 - 15:00

6.
Umsögn um útgáfu tækifærisleyfis - Hafið.
Málsnúmer 202503017
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna beiðni um tækifærisleyfi. Tilefni skemmtanahalds er skóladansleikur á vegum nemendafélag FAS.
Bæjarráð veitir samhljóma jákvæða umsögn.
7.
Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga
Málsnúmer 202503018
Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. verður haldin fimmtudaginn 20. mars 2025 kl. 16:00 á Hilton Reykjavík Nordica.
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri fer með atkvæði sveitarfélagsins á aðalfundinum.
8.
Skipurit 2024
Málsnúmer 202401128
Á fundi bæjarstjórnar 08.02.2024 var samþykkt að Bartek Andreasson Kass tæki við starfi sviðsstjóra mannvirkjasviðs til eins árs. Óskað er eftir framlengingu á ráðningu hans til eins árs.
Bæjarráð samþykkir framlengingu á ráðningu sviðsstjóra mannvirkjasviðs til eins árs og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
9.
Íþróttahús - hönnun
Málsnúmer 202402127
Fundargerð stýrihóps um nýtt íþróttahús númer 30 ásamt vinnugögnum lögð fram.
Lagt fram til kynningar
10.
Coming, staying, living - ruralizing Europe
Málsnúmer 202503023
Beiðni um samstarf frá samtökunum Landsbyggðin lifir. Verkefnið leitast við að efla byggð í dreifbýli og smærri samfélögum með áherslu á grunnþjónustu, sjálfbærni og samfélagsþol. Verkefnið er unnið í samstarfi við Finnland, Svíþjóð og Danmörku. Vinnuframlag sveitarfélagsins í verkefninu mun aðallega vera í formi funda þar sem fjallað verður um áskoranir og lausnir á viðkomandi stað. Samkvæmt beiðninni munu niðurstöður fundanna verða notaðar til að leita leiða öllum hagsmunaaðilum til góðs.
Bæjarráð þakkar gott boð og hlakkar til að fylgjast með verkefninu en sér ekki kost á að taka þátt að svo stöddu.