Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1168. fundur
25. mars 2025 kl. 10:00 - 11:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fræðslu- og frístundanefnd - 123
Málsnúmer 2502018F
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar númer 123 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
2.
Skólamáltíðir útboð 2025
Málsnúmer 202409013
Kæra vegna orðalags ákvæðis í útboði á skólamáltíðum lögð fram.
Sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs falið að laga ákvæðið í útboðinu og halda áfram útboðsferlið.
3.
Starfshópur um húsnæðismál Grunnskóla Hornafjarðar
Málsnúmer 202502009
Bæjarráð fól sviðsstjóra fræðslu- og frístundanefndar að koma með tillögu að starfshópi.Eftirfarandi tillaga að skipan í starfshóp sem samþykkt var í fræðslu- og frístundanefnd lögð fram.Fulltrúi/ar úr fræðslu og frístundanefnd (2) einn aðal og einn til vara.Sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs sem einnig verður starfsmaður hópsins.Skólastjóri (2) einn aðal og einn til vara.Sviðstjóri umhverfis og skipulagssviðs/mannvirkjasviðs.Varamenn alltaf boðaðir á fund en fundarfært þó ekki mæti nema fjórir.Starfshópurinn kemur með tillögur að því hvað þurfi að gera og hvernig það verður gert. Til grundvallar vinnu hópsins verður lögð áhersla á víðtækt samráð. Til halds og traust hefur starfshópurinn því ráðgjafahóp sem hægt verður að kalla til og verður vel upplýstur um vinnutilhögun. En þar sem það er snúið að kalla oft saman stóran hóp og þá getur verið gott að hafa minni hóp (starfshóp) sem vinnur að því að móta ferlið og skipulagið.Auk ráðgjafahópsins er mikilvægt að bjóða fleirum að borðinu s.s. foreldrum, nemendum, starfsmönnum og fleirum en það væri starfshópsins og ráðgjafahópsins að móta slíka aðkomu.Hópurinn skili af sér niðurstöðum ekki síðar en 1. nóvember.Tillaga að skipan í ráðgjafahóp sem starfshópur vinnur með:Fulltrúar fræðslu- og frístundanefndar 3 (einn frá hverju framboði).Fulltrúar foreldra 2.Fulltrúar kennara 2.Fulltrúar nemenda 3.Fulltrúi frá leikskólanum 1.Fulltrúi frá tónskólanum 1.Fulltrúi skólastjórnenda 2.Sviðsstjórar umhverfis- og mannvirkjasviðs 1.Sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs 1.Fulltrúi frá USÚ eða Sindra 1.
Sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs falið að gera drög að erindisbréfi og leggja aftur fyrir bæjarráð.
4.
Reglur um starfsemi leikskóla
Málsnúmer 202301058
Fræðslu- og frístundanefnd leggur til minni háttar breytingu á reglum um starfsemi leikskóla.Nefndin leggur til að breyta inngangi að fimmtu grein og í stað þess að hafa að það þurfi að skrá börnin á skráningardaga með "a.m.k. 5-6 vikna fyrirvara" komi að það þurfi að "skrá börn með 6-8 vikna fyrirvara. Einnig eru foreldrar hvattir til að láta vita strax að hausti hvernig þeir hyggjast nýta skráningardaga næsta skólaárs hafi þeir tök á.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við breytingartillögu fræðslu- og frístundanefndar og felur sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs að uppfæra reglurnar í samræmi og vísar málinu til staðfestingu bæjarstjórnar.
5.
C.10 Þróun aðlögunaraðgerða vegna áhrifa loftslagsbreytinga á sveitarstjórnarstigi
Málsnúmer 202211036
Lögð hafa verið fram drög að niðurstöðum úr C.10 verkefninu um þróun aðlögunaraðgerða vegna áhrifa loftslagsbreytinga á sveitarfélagið Hornafjörð. Hluti af niðurstöðum eru tillögur að aðgerðum sem eru til þess fallnar auka seiglu sveitarfélagsins og undirbúa fyrir þær breytingar sem vænta má á næstu árum og áratugum. Sveitarfélaginu hefur verið boðið að taka þátt í umsóknarferli um LIFE styrk sem umhverfisráðuneytið vinnur að að sækja um vegna aðlögunar Íslands að loftslagsbreytingum. Taka þarf ákvörðun um hvort vinna eigi áfram með einhver verkefni og koma inn í umsókn um LIFE styrk.
Bæjarráð samþykkir framlagðar tillögur fyrir umsóknarferli um LIFE styrkinn. Verkefnastjóra umhverfis- og skipulagsmála falið að vinna áfram að málinu.
Samþykkt samhljóða.
6.
Vegur á milli Nesja og Hafnar - Hringtorg
Málsnúmer 202405059
Vegagerðin hefur sent til Skipulagsstofnunar fyrirspurn um matsskyldu vegna uppfærðrar staðsetningu hringtorgs. Viðræður við landeigendur eru hafnar og verið er að skoða leiðir s.s. makaskipti á landi sveitarfélagsins í Austurhól eða langtíma leigusamningi á landi í Hafnarnesi.
Lagt fram til kynningar.
7.
Útboð: Hafnarbraut 27 Ráðhús 1.áfangi
Málsnúmer 202405047
Niðurstöður útboðs vegna breytinga á ráðhúsi lagðar fram.
Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 79.000.000 kr.
Fjögur tilboð bárust í verkið frá:

Verkfærni ehf. upp á 95.058.714 kr. - 120,33%
Þingvað ehf. upp á 99.577.945 kr. - 126,05%
Þingvað ehf. Frávikstilboð upp á 96.157.445 kr. - 121,72%
Straumbrot ehf. upp á 109.010.922 kr.- 137,99%

Bæjarráð hafnar öllum tilboðum þar sem þau eru 20% til 38% yfir kostnaðaráætlun.

Samþykkt samhljóða.
8.
Staða flugs til Hornafjarðar
Málsnúmer 202503067
Forráðamenn Mýflugs hafa óskað eftir því fyrir hönd félagsins að losna undan samningi við Vegagerðina um flugið til Hornafjarðar og Vestmannaeyja frá og með 1. apríl 2025.. Vegagerðin hefur nú þegar sett af stað nýtt útboð um flugleiðina til Hornafjarðar.
Bæjarráð lýsir yfir áhyggjum um stöðu flugs til Hornafjarðar og ítrekar mikilvægi þess að ekki verði dregið úr tíðni ferða í nýjum samningum. Tíðni ferða er ekki síður mikilvægur hluti af samgöngum líkt og fjöldi sæta. Bæjarráð væntir þess að gerður verði langtímasamningur og flugsamgöngur til Hornafjarðar tryggðar til lengri tíma.
9.
Strandveiðar - drög að reglugerðarbreytingu
Málsnúmer 202503065
Lögð fram tilkynning frá samráðsgátt stjórnvalda, dagsett 13. mars 2025, þar sem matvælaráðuneyti kynnir til samráðs mál nr. 58/2025, "Drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um strandveiðar". Umsagnarfrestur var til og með 20. mars 2025.
Sveitarfélagið Hornafjörður lýsir yfir áhyggjum af því að ekki sé ljóst hvernig stjórnvöld ætla að tryggja 48 daga strandveiðar, þar sem ekki er gert ráð fyrir auknum kvóta. Jafnframt er mikilvægt að huga að áhrifum breytinga á sjávarútvegssveitarfélög og tryggja að afleidd verðmætasköpun og störf skili sér í heimabyggð.

Hornafjörður tekur undir sjónarmið annarra sveitarfélaga um að breytingar á strandveiðikerfinu þurfi að styðja við sjálfbæra byggðaþróun og hagkvæmni í greininni án þess að rýra stöðu útgerða og vinnslu sem tryggja störf árið um kring.
10.
Umsögn um mál - Borgarstefna-Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis
Málsnúmer 202503069
Lögð fram tilkynning frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dagsett 18. mars 2025, Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar mál nr.158- Borgarstefna. Umsagnarfrestur er til og með 1. apríl 2025.
Bæjarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar styður mótun heildrænnar borgarstefnu fyrir Ísland. Í því samhengi vill bæjarráð árétta að mikilvægt er að skilgreina hlutverk Reykjavíkur sem höfuðborgar og Akureyri sem svæðisborgar gagnvart landsbyggðunum. Þá er ekki síst mikilvægt að árétta aðgengi landsmanna allra að opinberri þjónustu og stofnunum sem staðsettar eru á fyrirhuguðum borgarsvæðum. Þar gegna flugsamgöngur hlutverki almenningssamgangna við stóran hluta landsins og er brýnt að aðgengi með flugi að höfuðborginni sé tryggt og aðgengilegt enda miðar borgarstefna að jafnræði íbúa um allt land að borgarsvæðum.

Fram kemur í greinargerð að Reykjavík sé leiðandi afl þegar kemur að því að takast á við sameiginleg verkefni á landsvísu og þarf að skýra vel hvert hlutverk höfuðborgarinnar er og festa í sessi svo byggð megi dafna um allt land.