Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1172. fundur
29. apríl 2025 kl. 10:00 - 12:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fræðslu- og frístundanefnd - 124
Málsnúmer 2504007F
Fundargerð fræðslu og frístundanefndar númer 124 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 97
Málsnúmer 2504008F
Fundargerð umhverfis og skipulagsnefndar númer 97 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
3.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 75
Málsnúmer 2504014F
Fundargerð atvinnu og menningarmálanefndar númer 75 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
4.
Ársreikningur sveitarfélagsins Hornafjarðar 2024
Málsnúmer 202504065
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar lagður fram. Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 4.534 millj.kr. samkvæmt ársreikningi fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 3.981millj. kr. Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæðum 756millj.kr., og rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 473 millj.kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2024 nam 7.087 millj.kr. samkvæmt efnahagsreikningi fyrir A og B hluta, en eigið fé A hluta nam um 5.931millj. kr.Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir árið 2024 er tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu í bæjarstjórn.
Bæjaráð þakkar endurskoðanda fyrir vandaða yfirferð og vísar ársreikningi sveitarfélagsins til fyrri umræðu bæjarstjórnar.
5.
Vegur á milli Nesja og Hafnar - Hringtorg
Málsnúmer 202405059
Matsskylduákvörðun um hringtorg liggur fyrir, niðurstaðan er að framkvæmdin sé ekki háð mati á umhverfismati.Á grundvelli fyrirliggjandi gagna er það niðurstaða Skipulagsstofnunar að fyrirhuguð framkvæmd sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. þau viðmið sem tilgreind eru í 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Því skal framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Bæjarráð lýsir ánægju með niðurstöðu Skipulagsstofnunar og felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.
6.
Framkvæmd: Sindrabær breytingar 2024
Málsnúmer 202406005
Þann 11 mars 2025 samþykkti bæjarráð að auglýsa útboð vegna hljóð- og tæknibúnaðar í Sindrabæ. Kostnaðaráætlun var 60.000.000 kr.Fresti til að skila tilboðum lauk 2. Apríl 2025 kl.15:00. Tvö tilboð bárust í verkið:1.Exton ehf. upp á 54.382.970 kr., þ.e. 90,64% af kostnaðaráætlun2.Atendi ehf upp á 44.753.483 kr., þ.e. 74,59% af kostnaðaráætlunLagt er til að bæjarráð samþykki tilboð frá Atendi ehf.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Atendi ehf.
7.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Gististaður í flokki II - G íbúðir - 2180706
Málsnúmer 202405094
Erindi barst frá sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir upplýsingum um hvort fyrirmælum 5. mgr. 26. gr. hafi verið fylgt í ákvörðun um synjun umsóknar um rekstrarleyfi til sölu gistingar að Hafnarbraut 43A, Höfn. Svar byggingarfulltrúa lagt fram.
Bæjarráð gerir svar byggingarfulltrúa að sínu. Mál afgreitt í tölvupósti. Lagt fram til kynningar.
8.
Sala á eignarhlut sveitarfélagsins í Sunnubraut 3.
Málsnúmer 202504066
Óskað er eftir samþykki bæjarráðs fyrir sölu á eigninni Sunnubraut 3 sem er Héraðsnefnd A-Skaftafellssýslu kt. 530788-2029 er þinglýstur eigandi að 15% eignahlut, en Ríkissjóður Íslands með 85% eignahlut og er salan í höndum FSRE (Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir). Kaupverð er 83.500.000 kr. Áttatíu og þrjár milljónir og fimm hundruð þúsund krónur.Selt er einbýlishúsið að Sunnubraut 3, 780 Höfn í Hornafirði, fasta númer F218-1334, ásamt öllu því sem eigninni fylgir og fylgja ber. Er bæjarstjóra falið að skrifa undir söluyfirlit, staðfesta kauptilboð og skrifa undir afsal.
Bæjarráð lýsir því yfir að Sveitarfélagið Hornafjörður, kt 590169-4639 er réttur eigandi að 15% eignahluti í húsinu og öðrum þeim fasteignum sem hafa verið skráðar á Héraðsnefnd A-Skaftafellssýslu kt. 530788-2029. Sveitarfélagið eignaðist þessar eignir með eftirfarandi hætti:

Sveitarfélagið Hornafjörður, kt. 590169-4639, varð til á árinu 1998 með sameiningu allra sveitarfélaga í Austur-Skaftafellssýslu. Sveitarfélög í sýslunni höfðu áður verið aðilar að Héraðsnefnd Austur Skaftafellssýslu, kt. 530788-2029 (einnig nefnd Sýslunefnd Austur Skaftafellssýslu).
Öll réttindi og skyldur, þ.m.t. eignir, Héraðsnefndar Austur-Skaftafellssýslu féllu til Sveitarfélagsins Hornafjarðar við sameiningu sveitarfélaganna. Í kjölfar sameiningarinnar á árinu 1998, var bæjarráði Sveitarfélagsins Hornafjarðar falið að fara með verkefni Héraðsnefndarinnar. Á árinu 2006 var Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra tilkynnt um að fella ætti niður Héraðsnefnd Austur Skaftafellssýslu, sbr. tilkynningu dags. 2. maí 2006.

Með vísan til framanritaðs skal yfirlýsingu þessari þinglýst á fasteignina Sunnubraut 3, fastanr. F2181334. Jafnframt verði Sveitarfélagið Hornafjörður, kt. 590169-4639, skráður eigandi vegna þess eignarhluta sem nú er skráður á Héraðsnefnd Austur-Skaftafellssýslu.

Bæjarráð samþykkir samhljóða sölu á hlut sveitarfélagsins í Sunnubraut 3. Málið hafði áður verið afgreitt í tölvupósti.
9.
Skólamáltíðir útboð 2025
Málsnúmer 202409013
Kæra félags atvinnurekenda í tengslum við útboð Fjársýslu ríkisins nr. 23159/2 -Skólamáltíðir fyrir Grunnskóla Hornafjarðar lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
10.
Mánavöllur - beiðni um úrbætur
Málsnúmer 202503087
Ungmennafélagið Máni hefur óskað eftir því að farið verði í endurbætur á Mánavöllum.
Forstöðumanni íþróttamannvirkja falið að vinna áfram að málinu.
11.
Viljayfirlýsing vegna fjármögnunar á göngum i gegnum Reynisfjall.
Málsnúmer 202503071
Lögð fram drög að viljayfirlýsingu, sem er gerð á milli Summu rekstrarfélags hf., f.h. innviðasjóða í rekstri félagsins og sveitarfélaganna Hornafjarðar, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps.
Bæjarráð staðfestir fyrirliggjandi drög en tekur undir með Skaftárhrepp að í drögin fram skýrari áhersla á mikilvægi hverskyns uppbyggingu vegakerfisins á svæðinu. Þörfin á samgöngubótum á svæðinu er mjög aðkallandi, bæði vegna stöðugt meiri umferðarþunga sem og áframhaldandi uppbyggingu atvinnulífs og búsetu í landshlutanum.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.
12.
Umsagnarbeiðni - 272.mál - Sveitarstjórnarlög (mat á fjárhagslegum áhrifum)
Málsnúmer 202504059
Lögð fram tilkynning frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dagsett 14. apríl 2025, Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar mál nr. 272 - Sveitarstjórnarlög (mat á fjárhagslegum áhrifum).
Lagt fram til kynningar.
13.
Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2025
Málsnúmer 202502055
fundargerðir 81, 82 og 83 hjá stjórn Samtaka orkusveitarfélaga lagðar fram.
Lagt fram til kynningar.
14.
Fundargerðir heilbrigðisnefndar austurlands
Málsnúmer 202410097
Fundargerð 184. fundar heilbrigðisnefndar Austurlands lagðar fram.
Lagt fram til kynningar
15.
Orkufundur Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 202504063
Samtök orkusveitarfélaga boða til orkufundar þann 26. maí í Reykjanesbæ.
Lagt fram til kynningar.
16.
Ályktun frá Skógfræðingafélagi Íslands
Málsnúmer 202504068
Ályktun frá Skógfræðingafélagi Íslands um græn svæði og lýðheilsu lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
17.
Úrskurður - Kæra vegna gatnagerðagjalda Hagaleiru 11
Málsnúmer 202202048
Lagt fram bréf frá innviðaráðuneytinu þar sem veittur er frestur til að upplýsa ráðuneytið um næstu skref málsins í stjórnsýslu sveitarfélagsins. Fresturinn verði jafn lögbundnum fresti til þess að bera úrskurð ráðuneytisins undir dómstóla eða til 4. ágúst 2025.
Lagt fram til kynningar.