Bæjarráð Hornafjarðar
1174. fundur
13. maí 2025
kl.
10:00
-
11:35
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 98
2.
Innkaup á mat - Velferðarsvið
Óskað er eftir samþykki bæjarráðs til þess að framlengja samning um matarþjónustu við Vigdísarholt til 1. mánaðar í senn.
Bæjarráð samþykkir 1. mánaða framlengingu á samningi við Vigdísarholt og felur sviðsstjóra velferðarsviðs að ganga frá samningnum.
Samþykkt samhjóða.
Samþykkt samhjóða.
3.
Kærunefnd útboðsmála - Kæra Exton ehf.- Mál nr. 16-2025
Kæra Exton ehf. vegna útboðs Hornafjarðar í tengslum við útvegun og uppsetningu Hljóð, ljós og myndkerfa vegna endurbóta á Sindrabæ.
Lagt fram til kynningar
4.
Fráveita Vesturbraut 2-6
Hjördís Edda Olgeirsdóttir vék af fundi undir þessum lið.Leitað hefur verið tilboða vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar á endurnýjun fráveitu á hluta Vesturbrautar og tengingu húss nr. 6 á kerfi sveitarfélagsins. Kostnaðaráætlun var upp á 15.109.799 kr. Þrjú tilboð hafa borist í verkið:Gröfuþjónusta Olgeirs - 12.829.228 kr. þ.e. 84,91% af kostnaðaráætlunHjörvar Ingi - 14.602.460 kr. þ.e. 96,64% af kostnaðaráætlunRósaberg - 16.857.614 kr. þ.e. 111,57% af kostnaðaráætlunFramkvæmdin er á framkvæmdaráætlun fyrir 2025.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðenda, Gröfuþjónustu Olgeirs.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
5.
Umsókn um lóð - Vesturbraut 29
Sótt er um lóð að Vesturbraut 29.
Bæjarráð er jákvætt fyrir úthlutun lóðarinnar og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
6.
Fyrirspurn um fasteignagjöld
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs leggur fram álit lögmanns um leiðréttingu fasteignagalda og lóðarleigu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fá óháðan aðila til þess að vinna úttekt á málinu ásamt því að upplýsa málsaðila og íbúa um framgang og stöðu málsins.
7.
Beiðni um tilnefningu í stjórn Fjallaskóla Íslands
Fjallaskóli íslands óskar eftir að sveitarfélagið skipi einn fulltrúa í stjórn skólans.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að skipa Eyrúnu Fríðu Árnadóttur í stjórn skólans út kjörtímabil bæjarstjórnar.
8.
Umsögn um mál nr.270- Jöfnunasjóður Sveitarfélaga
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs leggur fram gögn varðandi áhrif málsins á sveitarfélögin, þ.m.t. Hornafjörð, frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Athygli er vakin á að umsagnarfrestur rennur út þriðjudaginn 13. maí.
Bæjarráð telur að þær fyrirliggjandi breytingar sem kynntar eru í frumvarpinu séu jákvætt skref í átt að sanngjarnari úthlutun úr sjóðnum.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
9.
Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
fundargerð 978. fundar stjórnar Sambandsins frá 30. apríl 2025 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.