Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1175. fundur
20. maí 2025 kl. 10:00 - 11:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir varamaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varamaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Velferðarnefnd - 41
Málsnúmer 2505009F
Lagt fram til kynningar.
2.
Fræðslu- og frístundanefnd - 125
Málsnúmer 2505003F
Lagt fram til kynningar.
3.
Íþróttahús - hönnun
Málsnúmer 202402127
Fundargerð stýrihóps um nýtt íþróttahús númer 35 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
4.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Veitingaleyfi- Skaftafell 1b - F2182239
Málsnúmer 202504067
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna rekstrarleyfis til reksturs veitingastaðar í flokki II- E kaffihús, Skaftafelli 1b.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn með fyrirvara um jákvæða umsögn frá slökkviliði.
5.
Umsögn um tækifærisleyfis -Sjómannaball
Málsnúmer 202505047
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við útgáfu á tækifærisleyfi fyrir áfengisveitingar á Sjómannadagsball
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.

6.
Byggingarleyfisumsókn - Silfurbotn 1, 3, 5 - raðhús
Málsnúmer 202408061
Lóðarhafi að Silfurbotni 1-5 óskar eftir frest frá reglum sveitarfélagsins vegna byggingarframkvæmda á lóðunum.
Bæjarráð óskar eftir nákvæmari tímaáætlun framkvæmda og frestar afgreiðslu málsins þar til hún liggur fyrir.
7.
Vegur á milli Nesja og Hafnar - Hringtorg
Málsnúmer 202405059
Samningur um makaskipti á landi sveitarfélagsins vegna hringtorgs lagður fram ásamt verðmati fasteignasala.
Lagt fram til kynningar.
8.
Beiðni frá Foreldrafélögum Sjónarhóls og Grunnskóla Hornafjarðar- frítt í sund vegna litahlaups
Málsnúmer 202505066
Foreldrafélög Sjónarhóls og grunnskóla Hornafjarðar standa fyrir litahlaupi þann 28. maí nk. Óskað er eftir því að þátttakendur fái gjaldfrjálsann aðgang í sund eftir hlaupið.
Bæjarráð samþykkir að veita þátttakendum í litahlaupinu frítt í sund eftir viðburðinn miðvikudaginn næstkomandi.
Samþykkt samhljóða.
9.
Styrkbeiðni vegna þátttöku í Íslandsmóti í Motocross
Málsnúmer 202505069
Lögð er fram beiðni um styrk vegna þátttöku Hannesar Þórs Guðnason í íslandsmóti motorcross sumarið 2025. Óskað er eftir styrk að fjárhæð 350.000 kr.
Bæjarráð samþykkir styrkbeiðni að fjárhæð 350.000 kr. beiðnin rúmast innan fjárheimilda úr styrktarsjóði bæjarráðs. Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúa falið að afla frekari upplýsinga um styrki til þátttöku ungmenna í íþróttamótum.
Samþykkt samhljóða.
10.
Innsent erindi frá Golfklúbbi Hornafjarðar
Málsnúmer 202505068
Aðsent erindi frá Golfklúbbi Hornafjarðar um framtíðarlandnýtingu fyrir Golfklúbb Hornafjarðar ásamt útivistarsvæði fyrir íbúa sveitarfélagsins.
Bæjarráð vísar beiðni um stækkun vallarins til vinnslu aðalskipulags og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram í samstarfi við golfklúbbinn og starfsfólk sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.
11.
Samstarfsbeiðni - Graffíll listahátíð unga fólksins
Málsnúmer 202505070
Forsvarsmenn listahátíðarinnar Grafíls óska eftir stuðning og samstarfi við sveitarfélagið í tengslum við hátíðina.
Bæjarráð samþykkir styrkbeiðni að upphæð 2.500.000 kr. Beiðnin rúmast innan fjárheimilda.
Bæjarráð tilnefnir einnig Kristínu Völu Þrastardóttur forstöðumann Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar sem fulltrúa í stjórn og prófkúruhafa félagsins.
Samþykkt samhljóða.
12.
Fundartími bæjarráðs
Málsnúmer 202412078
Umræður um fundartíma bæjarráðs í sumarleyfi bæjarstjórnar.
Fundir bæjarráðs í sumarleyfi bæjarstjórnar verði 16. júní og svo á tveggja vikna fresti frá og með 1 júlí til 12. ágúst.
Samþykkt samhljóða.
13.
Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
Málsnúmer 202502013
fundargerðir 964. og 971. fundar stjórnar Sambandsins frá 7. og 28. febrúar 2025 lagðar fram.
Lagt fram til kynningar.
14.
Til umsagnar frumvarp til laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða
Málsnúmer 202505064
Lögð fram tilkynning frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dagsett 14. maí 2025, atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu) - 298. mál.
Lagt fram til kynningar.
15.
Til umsagnar mál nr.351- Frumvarp til laga um veiðigjald
Málsnúmer 202505063
Lögð fram tilkynning frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dagsett 13. maí 2025, atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga frumvarp til laga um veiðigjald (aflaverðmæti í reiknistofni) - 351. mál.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera drög að umsögn fyrir hönd sveitarfélagsins í samræmi við skýrslu samtaka sjávarútveg sveitarfélaga.
16.
Sóknaráætlun Suðurlands
Málsnúmer 202505072
Sóknaráætlun Suðurlands 2025-2029 hefur verið sett í opið samráðsferli þar sem allir geta sent inn ábendingar og tillögur varðandi áætlunina, markmið hennar og innihald. Opið er fyrir umsagnir til 28.05.2025
Lagt fram til kynningar.
17.
Áform um endurskoðun sveitarstjórnarlaga
Málsnúmer 202505073
Innviðaráðuneytið vekur athygli á því að áform um lagabreytingar sem innviðaráðherra hyggst leggja fram á næsta haustþingi hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.Annars vegar er um að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja) og hins vegar er um að ræða frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum (endurskoðun sveitarstjórnarlaga).Frestur til að veita umsögn um áformin er til 9. júní nk.
Lagt fram til kynningar.