Bæjarráð Hornafjarðar
1178. fundur
10. júní 2025
kl.
10:00
-
12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 275
Fundargerð hafnarstjórnar númer 275 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 100
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar númer 100 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
3.
Framkvæmd byggingar hjúkrunarheimilis
Fulltrúar FSRE mæta á fund og fara yfir stöðuna.
Bæjarráð þakkar fyrir góða yfirferð og fyrir að halda sveitarfélaginu upplýstu um stöðu mála. Ljóst er að talsverð seinkun verði á að verkinu ljúki. Bæjarráð mun óska eftir öðrum fundi með FSRE í haust.
4.
Staða flugs til Hornafjarðar
Fulltrúar Icelandair komu á fund og fóru yfir drög að flugáætlun á milli Hafnar og Reykjavíkur.
Bæjarráð þakkar fulltrúum Icelandair fyrir komuna. Bæjarráð leggur áherslu á að flugáætlunin nýtist íbúum svæðisins sem best þrátt fyrir færri ferðir á viku. Bæjarráð hefur óskað eftir fundi með fulltrúum vegagerðarinnar til þess að ræða drög að flugáætluninni.
5.
Fyrirspurn til Umhverfis- og skipulagsnefndar - Hafnarbraut 40)-(Atvinnuhúsnæði)
Birta Karlsdóttir óskar eftir lóðarvilyrði fyrir lóðina til að byggja fyrir hárgreiðslustofu á Hafnarbraut 40.
Bæjarráð er jákvætt fyrir erindinu og felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að gera drög að samning.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
6.
Umsókn um lóð Hafnarbraut 60C
Yrkir eignir ehf sækja um lóð að Hafnarbraut 60C.
Bæjarráð er jákvætt fyrir úthlutuninni og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
7.
Framkvæmd - Hraðahindranir, umferðaröryggi
Óskað er heimildar til að fara í verðfyrirspurnarferli og til samninga vegna tveggja upphækkaða gangbrauta á Fákaleiru. Framkvæmd er í samræmi við skilmála deiliskipulags, en hefur ekki verið á framkvæmdaráætlun. Ljóst er að auka þurfi umferðaröryggi á svæðinu, sérstklega í ljósi þess að umferð barna á svæðinu mun auka með tilkomu nýs leikvallarins.Erindi hefur einnig verið sett fyrir fund umhverfis- og skipulagsnefndar.
Bæjarráð veitir heimild til þess að fara í verðfyrirspurnarferli. Bæjarráð óskar eftir því að hraðavaraskilti verði sett upp í Álaleiru til þess að kanna umferðamagn og hraða.
8.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Gistileyfi II - Skriða - F2238595
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna leyfis til reksturs Gististaðir í Flokk II- H Frístundahús á Skriðu.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
9.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - (Gististaður flokku II) - (Tindaborg) - (F2501849)
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna leyfis til reksturs Gististaðir í Flokkur II - C minna gistiheimili í Tindaborgum, Lambhaga.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
10.
Breytingar á stjórnskipulagi umhverfis- og skipulagssviðs, og mannvirkjasviðs
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs leggur fram starfslýsingu sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs og tillögu að breytingu á skipuriti umhverfis- og skipulagssviðs og mannvirkjasviðs þar sem lagt er til að sviðin tvö verði sameinuð sem umvherfis- og framkvæmdasvið með þremur deildarstjórum. Óskað er eftir að bæjarráð samþykki framlagða tillögu að breytingu á skipuriti umhverfis- og skipulagsssviðs og mannvirkjasviðs og að auglýst verði eftir sviðsstjóra fyrir nýtt svið. Til upplýsinga eru lagðar fram starfslýsingar tveggja deildarstjóra sem eru ný störf samkvæmt skipuritinu.
Bæjarráð gerir hvorki athugasemd við tillögu að nýju skipuriti umhverfis- og skipulagssviðs og mannvirkjasviðs eða að auglýst verði staða sviðsstjóra á nýju sviði í samræmi við framlagða starfslýsingu með þeim breytingum sem lagðar voru til og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
11.
Þjónustukönnun
Bæjarráð óskaði eftir að framkvæmd yrði þjónustukönnun á mannvirkjasviði og umhverfis- og skipulagssviði. Til mun falla kostnaður vegna uppfærslu á onesystems kerfinu. Kostnaður er á bilinu 120-180 þúsund. Minnisblað fjármálastjóra lagt fram.
Bæjarráð felur stjórnsýlu - og upplýsingafulltrúa að óska eftir uppfærslu á kerfinu svo hægt sé að setja af stað þjónustukönnun í haust.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
12.
Samþykkt um kjör fulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Tillaga að uppfærðum kjörum nefndarmanna lögð fram. Við síðustu uppfærslu samþykktarinnar í desember 2024 misfórst að uppfæra kjör fyrir fulltrúa í nefndum og ráðum. Þar sem núverandi samþykkt er ekki tengd launavísitölu eins og áður var myndu laun nefndarmanna lækka án þessarar breytingar sem lögð er til.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
13.
Greining á kostnaði vegna skiptingar mannvirkja og umhverfis- og skipulagssviðs
Sviðsstjóri fjármálasviðs leggur fram greiningu á kostnaði vegna skiptingar umhverfis- og skipulagssviðs í tvö svið árið 2024. Um er að ræða breytingu á launakostnaði byggingafulltrúa í sviðsstjóra. Að auki eru lagðar fram kostnaðartölur vegna annarra breytinga sem hafa orðið á starfsmannahaldi í málaflokknum frá árinu 2023, þ.e. ráðning verkefnastjóra mannvirkjasviðs og verkefnastjóra umhverfis- og skipulagssviðs.
Lagt fram til kynningar.
14.
Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
fundargerð 980. fundar stjórnar Sambandsins frá 27. maí 2025 lögð fram.
Í ljósi liðs númer 7 í fundargerð - Viðmiðunarreglur um framlög sveitarfélaga til stjórnmálasamtaka óskar Ásgerður Gylfadóttir eftir samantekt á framlögum sveitarfélagsins til stjórnmálaflokka og skráningu þeirra.
15.
Atvinnuþáttaka sveitarfélaga- áform í samráðsgátt- fundur í innviðaráðuneyti
Aðilum Samorku er boðið á fund með Innviðaráðuneytinu vegna endurskoðunar sveitarstjórnarlaga.
Lagt fram til kynningar.
16.
Árleg ráðstefna Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra
Árleg ráðstefna Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra verður haldin fimmtudaginn 16. október frá kl. 13:00 til 16:30 á Hilton Reykjavík Nordica. Ráðstefnan, sem fer fram í fjórða sinn, mun - eins og áður - fjalla um almannavarnamál á Íslandi. Sérstök áhersla verður lögð á öryggis- og varnarmálahlutverk Almannavarnadeildarinnar.
Lagt fram til kynningar.
17.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2025
Viðauki 5 vegna tveggja upphækkaða gangbrauta á Fákaleiru lagður fram.
Bæjarráð samþykkir samhljóða viðauka 5 og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.