Bæjarráð Hornafjarðar
1179. fundur
16. júní 2025
kl.
10:00
-
15:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varamaður
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fræðslu- og frístundanefnd - 126
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar númer 126 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
2.
Fyrirspurn til Umhverfis- og skipulagsnefndar - Hafnarbraut 40b)-(Atvinnuhúsnæði)
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs leggur fram drög að lóðarvilyrði fyrir Birtu Karlsdóttur vegna Hafnarbrautar 40b skv. gildandi deiliskipulagi.
Bæjarráð samþykkir lóðarvilyrðið og felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að ganga frá undirritun*.
3.
Erindi frá Félagi atvinnurekenda
Erindi frá félagi atvinnurekenda um fasteignaskatt lagt fram.
Lagt fram til kynningar
4.
Umsögn um tækifærisleyfi - Humarhátíðarball 2025
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við útgáfu á tækifærisleyfi fyrir áfengisveitingar á Humarhátíðarball.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
5.
Umsögn við forathugun Náttúruverndarstofnunar- íshellar og jökglagöngur
Drög að forathugun Náttúruverndarstofnunar vegna fyrirhugaðs útboðs vegna íshellaferða og jöklagangna ásamt fylgiskjölum lögð fram. Náttúruverndarstofnun óskar eftir umsögn sveitarfélagsins Hornafjarðar við forathugunina.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við framlögð drög að forathugun Náttúruverndarstofnunnar.
6.
Staða flugs til Hornafjarðar
Uppfærð flugáætlun frá Icelandair lögð fram. Fulltrúar frá Vegagerðinni mættu á fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagða flugáætlun og þakkar Vegagerðinni fyrir fundinn.
Bæjarráð mun óska eftir frekari fundum í haust til þess að ræða framtíð flugs til Hornafjarðar.
Bæjarráð mun óska eftir frekari fundum í haust til þess að ræða framtíð flugs til Hornafjarðar.
7.
Innviðir og öryggi í Öræfum
Minnisblað frá verkefnastjóra Nýheima þekkingarseturs vegna heimsóknar Nýheima þekkingarseturs og Fræðslunets Suðurlands í Öræfin þann 6.maí 2025 lagt fram. Sambærileg heimsókn var farin í Suðursveit á dögunum sem verður kynnt síðar.
Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna vegna heimsóknar í Öræfin. Kynningin gagnast bæjarráði í áframhaldandi viðræðum við ríkið og viðbragðsaðila um bætta öryggisinnviði í Öræfum.
8.
Málefni motorcross svæðisins
Minnisblað sviðsstjóra fræðslu- og frístundarsviðs og erindi frá Akstursíþróttafélags Austur-Skaftafellssýslu (ASK) lagt fram. Fulltrúi ASK kom fyrir hönd félagsins á fundinn til að skýra stöðu mála.
Bæjarráð er jákvætt fyrir því að styrkja Akstursíþróttafélag Austur- Skaftafellssýslu um 10.000.000 kr. vegna færslu og uppbyggingar á brautinni. Áður en að afgreiðslu styrksins kemur óskar bæjarráð eftir upplýsingum um iðkendafjölda, æfingagjöld og rekstraráætlun. Málinu vísað til mats á fjárhagslegum áhrifum.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
9.
Skyndihjálp ungbarna
Kolbrún Rós Björgvinsdóttir hefur óskað eftir því að fá að halda skyndihjálparnámskeið fyrir foreldra með stuðningi frá sveitarfélaginu.
Bæjarráð fagnar hugmyndinni og gerir ekki athugasemd við beiðnina. Námskeiðið rúmast innan fjárheimilda.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
10.
Skólamáltíðir útboð 2025
Í vetur voru skólamáltíðir við Grunnskóla Hornafjarðar boðnar út. Engin tilboð bárust og því standa nú yfir samningaviðræður vegna skólamáltíða við Vigdísarholt á útboðsforsendum.
Sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs falið að ganga til samninga við Vigdísarholt miðað við framlögð drög að samningi.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
11.
Lýðheilsuráð 2024-2025
Fræðslu- og frístundarnefnd vísaði bókun lýðheilsuráðs um útiæfingatæki til bæjarráðs.
Bæjarráð tekur undir með lýðheilsuráði. Staðgengli bæjarstjóra falið að útbúa minnisblað um stöðu málsins.
12.
Gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs sem hækka 1.ág.2025
Hluti gjaldskráa fræðslu- og frístundasviðs hækka 1. ágúst svo sem gjaldskrá leikskóla, tónskóla og frístundar auk skólamáltíða sem verða þó áfram fríar fyrir nemendur. Fyrir liggur tillaga að þriggja prósenta hækkun í samræmi við vísitöluhækkun.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðar breytingar á gjaldskrám sem hækka 1. ágúst nk.
13.
Bara tala
Síðasta árið hefur sveitarfélagið boðið starfsmönnum af erlendum uppruna aðgang að BARA TALA appinu sem er einfalt og þægilegt tæki til að styðja við íslenskunám fólks. Mjög góð reynsla er af þessu forriti bæði hér og annarsstaðar. Komið er að endurnýjun áskriftarinnar.
Bæjarráð er jákvætt fyrir áframhaldandi áskrift af smáforritinu BARA TALA og vísar málinu til mats á fjárhagslegum áhrifum.
14.
Sérfræðiþjónusta á fræðslu- og frístundasviði
Minnisblað sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs um breytingu á fjárveitingu vegna sérfræðiþjónustu lagt fram.
Lagt fram til kynningar.
15.
Samningur um talmeinafræðiþjónustu 2025-2029
Endurnýjaður samningur um talmeinafræðiþjónustu lagður fram til samþykkis.
Bæjarráð samþykkir samninginn samhljóða.
16.
Samningur um sálfræðiþjónustu skóla 2025-2029
Endurnýjaður samningur um sálfræðiþjónustu lagður fram til samþykkis.
Bæjarráð samþykkir samninginn samhljóða.
17.
Samningur um þrif á Sjónarhóli
Uppfærður samningur um þrif á Sjónarhóli lagður fram til kynningar.
Bæjarráð samþykkir samninginn samhljóða.
18.
Framtíðarsýn um málefni aldraðra 2026-2030
Í upphafi árs var ákveðið að hefja undirbúning við mótun framtíðarsýnar í málefnum aldraðra í Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir árin 2026-2034. Ákveðið var að stofna vinnuhóp vegna vinnslunnar og var hann skipaður fulltrúm bæjarstjórnar, velferðarnefndar, Félagi eldri Hornfirðinga og Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Hópurinn hóf undirbúning við tvær vinnustofur sem haldnar voru í apríl og maí og voru vel sóttar og þóttu heppnast vel. Hópurinn hefur nú fundað sex sinnum og unnið úr niðurstöðum vinnustofanna.
Lagt fram til kynningar.
19.
Búsetuúrræði fyrir fatlað fólk - Þarfagreining
Undanfarin misseri hefur verið unnin vinna við greiningu á möguleikum við uppbyggingu sérstaks búsetuúrræðis fyrir fatlað fólk í Sveitarfélaginu Hornafirði. Sviðsstjóri velferðarsviðs leggur fyrir minnisblað um þá vinnu og möguleg næstu skref.
Sviðsstjóra velferðarsviðs falið að vinna málið áfram.
20.
Vettvangsferðir fjölmenningarráðs
Fjölmenningarráð hefur óskað eftir að sækja vettvangsferðir, 1-2x á ári. Verkefnastjóri hefur unnið kostnaðargreiningu og útfærslu á fyrirkomulagi heimsókna.
Bæjarráð fagnar frumkvæðinu en hafnar beiðni um fastar vettvangsferðir til þess að gæta jafnræðis á milli nefnda og ráða. Bæjarráð hvetur þó fjölmenningaráð til að eiga í samstarfi og samráði við önnur fjölmenningarráð og senda inn beiðnir um ferðakostnað til bæjarráðs ef svo ber undir.
21.
Umferðaröryggisáætlun - Endurskoðun - 2025
Óskað hefur verið eftir tilboðum í vinnu við gerð umferðaröryggisáætlunar. Þrjú tilboð bárust í verkið. Tilboð sem bárust ásamt minnisblaði lagt fram.
Umhverfisfulltrúa falið að vinna áfram að málinu.
22.
Velferðarnefnd - 42
Fundargerð velferðarnefndar númer 42 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
23.
Leigusamningur um færanlegan skúr til notkunar við Gáruna móttökustöð sorps á Höfn
Innleiðing á gjaldtöku í móttökustöð krefst aðstöðu fyrir starfsfólk til að taka á móti greiðslum og aðstoða viðskiptavini. Sveitarfélagið hefur leigt færanlegt skýli frá H. Christensen ehf. fyrir 55.000 kr. á mánuði.Leigusamningurinn rennur út í lok júní.
Umhverfisfulltrúa falið að endurnýja leigusamninginn til 1. júní 2026.
24.
Ólögleg förgun úrgangs
Undanfarna mánuði hefur aukist ólögleg losun úrgangs í sveitarfélaginu, bæði á almennum og einka svæðum. Óskað er eftir ábendingum um næstu skref.
Bæjarráð harmar aukningu á ólöglegri losun úrgangs hvort sem er á almennum eða einkasvæðum og hvetur íbúa til þess að ganga vel um og að losa sig við úrgang eftir réttum leiðum. Allar upplýsingar um sorpmál má finna á heimasíðu sveitarfélagsins.
25.
Búfjársamþykkt Fjallskilasamþykkt
Drög að breyttri búfjársamþykkt ásamt minnispunktum um fjallskilasamþykkt lögð fram.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins þar til umsagnir íbúaráða liggja fyrir.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
26.
Fyrirspurn um fasteignagjöld
Minnisblað fjármálastjóra um ógreidd fasteignagjöld lagt fram.
Bæjarráð þakkar sviðsstjóra fjármálasviðs fyrir greinargóða yfirferð á stöðu málsins. Ljóst er að vegna mistaka starfsmanna hafa lóðarleigu- og þjónustugjöld ekki verið innheimt að fullu á nokkrum nýbyggingum í sveitarfélaginu á árunum 2020 til 2024. Heildarumfang vangreiddra gjalda á þessu tímabili nemur 5.096.775 kr. Yfirstandandi ár hefur verið leiðrétt á álagningarseðlum viðkomandi bygginga og bæjarráð fékk lögfræðiálit varðandi framhald málsins.
Bæjarráð samþykkir að innheimta ekki vangoldin gjöld aftur í tímann þar sem um mistök af hálfu sveitarfélagsins er að ræða.
Samþykkt samhljóða.
Bæjarráð samþykkir að innheimta ekki vangoldin gjöld aftur í tímann þar sem um mistök af hálfu sveitarfélagsins er að ræða.
Samþykkt samhljóða.
27.
Lækkun á hámarkshraða við Einholtsveg 9819-01
Lagt er til af svæðisstjóra Austursvæðis að hámarkshraði á vegi 9819-01 við bæinn Brunnhól sé lækkaður. Umsögn umferðar- og umferðaröryggisdeildar Vegagerðarinnar lögð fram.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við framlagða tillögu Vegagerðarinnar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
28.
Urðun plastdúka í kartöfluframleiðslu
Kartöflubændur óska eftir að samkomulag verði gert um urðun plastdúka.
Bæjarráð felur verkefnastjóra umhverfismála að útfæra tilmæli til starfsmanna urðunarstöðvar vegna gjaldtöku fyrir urðun plastdúka sem nýttir hafa verið við kartöfluræktun. Tilmælin skulu fela í sér að aðeins sé greitt fyrir raunþyngd plastsins.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.