Bæjarráð Hornafjarðar
1181. fundur
15. júlí 2025
kl.
10:00
-
13:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
varamaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 276
Fundargerð hafnarstjórnar Hornafjarðar nr. 276 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
2.
Efnistaka í farvegi Nýgræðukvíslar
Vegagerðin óskar eftir heimild fyrir efnistöku úr farvegi Nýgræðslukvíslar. Fyrirhugað umfang er 1.800 m3 og verður efnistakan á um 3500-4000 fm svæði. Vegagerðin er að ganga frá námu og loka henni, þessi efnistaka er hluti frágangsins á svæðinu.Minjastofnun gerir enga athugasemd.
Bæjarráð telur að framkvæmdin sé ekki framkvæmdarleyfisskyld og gerir ekki athugasemdir við hana. Málið var tekið fyrir og samþykkt í tölvupósti. Lagt fram til kynningar.*
3.
Lóðir - Silfurbraut 44 og 46
Rúnar Þór Guðmundsson, fyrir hönd Fallstakkanafar ehf., skilaði inn lóðunum Silfurbraut 44 og Silfurbraut 46 þann 9. júlí 2025.
Bæjarráð felur verkefnastjóra umhverfis- og skipulagssviðs að auglýsa lóðina aftur sem lausa til úthlutunar á kortasjá sveitarfélagsins. Lóðirnar þurfa að vera í auglýsingu í fjórar vikur samkvæmt reglum sveitarfélagsins um úthlutun lóða áður en þeim er úthlutað að nýju.
4.
Lóð - Sandbakkavegur 5
Rúnar Þór Guðmundsson, fyrir hönd Fallstakkanafar ehf., skilaði inn lóðinni Sandbakkavegur 5 þann 9. júlí 2025.
Bæjarráð felur verkefnastjóra umhverfis- og skipulagssviðs að auglýsa lóðina aftur sem lausa til úthlutunar á kortasjá sveitarfélagsins. Lóðin þarf að vera í auglýsingu í fjórar vikur samkvæmt reglum sveitarfélagsins um úthlutun lóða áður en þeim er úthlutað að nýju.
5.
Breyting á deiliskipulagi - Deiliskipulag Breiðabólsstaðartorfu, ný lóð
Óskað er eftir breytingu á deiliskipulagi á Breiðabólstaðartorfu í landi Gerðis í Suðursveit. Breytingin felur í sér að ný lóð Oddnýjarhúss verði skilgreind sem ný lóð G07 og verði heimilt að byggja eitt frístundahús á lóðinni.Búið er að kynna breytinguna fyrir nærliggjandi íbúum og eru undirskriftir í fylgigögnum. Engar athugasemdir bárust.
Bæjarráð samþykkir samhljóða óverulega breytingu á deiliskipulagi, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur starfsmanni að auglýsa breytinguna í B-deild Stjórnartíðinda.*
6.
Umsókn um framkvæmdaleyfi - efnistaka í farvegi Hrútár
Vegagerðin óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir efnistöku úr farvegi Hrútár vegna endurbóta á Hringvegi. Gert er ráð fyrir að taka um 8000 m3 á um 8000 m2 í um 1 m lagi.
Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag og í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Það liggur fyrir samþykki landeigenda Kvískerja.
Minjastofnun gerir engar athugasemdir.
Bæjarráð samþykkir að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga.*
Minjastofnun gerir engar athugasemdir.
Bæjarráð samþykkir að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga.*
7.
Breyting á deiliskipulagi - Fiskhóll 11,Stækkun byggingar
Sveinbjörn Imsland, fyrir hönd Imslands ehf., óskar eftir breytingu á fyrra erindi. Í því erindi var óskað eftir breytingu á deiliskipulagi tjaldsvæðis og íbúðarsvæðis við Fiskhól, sem bæjarráð samþykkti að grenndarkynna á fundi sínum þann 1. júlí sl. Breytingin á fyrra erindi felur í sér aðra útfærslu á lóðarmörkum.
Bæjarráð telur nýja útfærslu fara of langt inn á bæjarlandið og óskar eftir annarri útfærslu á lóðarstækkun í samræmi við umræður á fundinum. Sviðsstjóra mannvirkjasviðs falið að vinna áfram að málinu.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
8.
Álaugarey, lóðarmörk - Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Ólöf Gísladóttir óskar eftir að lóðin Álaugarey verði stækkuð að Krosseyrarvegi 23 og að þeim stað þar sem innkeyrslan byrjar.
Bæjarráð felur verkefnastjóra umhverfis- og skipulagsmála að bjóða aðilum málsins á fund bæjarráðs.
Málinu frestað, samþykkt samhljóða.
Málinu frestað, samþykkt samhljóða.
9.
Framkvæmdaleyfi - fyrirspurn, hitaveita í Óslandi
Rarik ohf. óskar eftir framkvæmdaleyfi til að halda áfram með dreifikerfi hitaveitu í Óslandi. Fyrirhugað er að hefja vinnu um miðjan ágúst og klára fyrir október. Beðið er eftir umsögn Minjastofnunar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að veita Rarik framkvæmdaleyfi skv. 15. gr. skipulagslaga í samræmi við umsókn þeirra með fyrirvara um jákvæða umsögn Minjastofnunar.
10.
Byggingarleyfisumsókn - Hafnarbraut 60A, verslunarhúsnæði
Samkvæmt skilmálum deiliskipulags fyrir svæðið skal leggja byggingaráform fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd og samþykkja í nefndinni áður en þær eru lagðar fyrir embætti byggingarfulltrúa. Umsækjandi, Staðarfjall ehf., óskar eftir frávikum frá skilmálum deiliskipulags er varða fjölda bílastæða. Skipulagið gerir ráð fyrir einu stæði fyrir hverja 65m² verslunar og þjónusturýmis. Óskað er eftir heimild fyrir samtals 96 stæði. Jafnframt er óskað eftir frávikum frá skilmálum deiliskipulags er varða uppbrot útveggja, en þar segir að húshliðar mega ekki vera lengri en 30m án uppbrots. Óskað er eftir heimild til að hafa í einu tilfelli húshlið 30,6m án uppbrots.
Bæjarráð heimilar að vikið verði frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn, sbr. 3. mgr. 43. gr. sömu laga.*
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
11.
Framkvæmd - Gáran, Sæbraut 1 - viðbygging fyrir baler og starfsmannaaðstöðu
Á síðasta fundi fól bæjarráð sviðsstjóra mannvirkjasviðs að fara í samningaviðræður við Ísbyggingar ehf. Drög að verksamningi liggja nú fyrir ásamt mati fjármálastjóra á kostnaði verkefnisins. Samningsupphæð er 45.595.269 kr.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að ganga til samninga við Ísbyggingar ehf. vegna viðbyggingar við Gáruna.
12.
Byggingarleyfisumsókn - Hagaleira 1, einbýlishús
Lóðarhafi sækir um heimild til að hafa þakskyggni á húsi við Hagaleiru 1 óverulega út fyrir byggingarreit.
Bæjarráð heimilar að vikið sé frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn, sbr. 3. mgr. 43. gr. sömu laga.
Samþykkt samhljóða.*
Samþykkt samhljóða.*
13.
Framkvæmd - Hraðahindranir, umferðaröryggi
Á fundi þann 10. júní 2025 samþykkti bæjarráð að fara í verðfyrirspurnarferli vegna framkvæmda við upphækkaðar gönguþveranir á Fákaleiru. Frestur til að skila tilboðum var til kl. 13:00 á föstudaginn 4. júlí sl. Kostnaðaráætlun verkefnis var 3.649.120 kr. Tvö tilboð bárust í verkið og eru þau eftirfarandi:1. E.E. verktakar 4.546.696 kr. m.vsk.2. Gröfuþjónusta Olgeirs 8.853.400 kr. m.vsk.Lagt er til að bæjarráð samþykki tilboð E.E. verktaka.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að gengið verði til samninga við E.E. verktaka.
14.
Ráðgjafakostnaður á umhverfis- og skipulagssviði og mannvirkjasviði
Minnisblað sviðsstjóra mannvirkjasviðs um ósk um aukafjárveitingu vegna ráðgjafakostnaðar vegna uppsagnar sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs lagt fram.
Bæjarráð samþykkir samhljóða ósk um aukafjárveitingu sem verður mætt með viðauka 7.
15.
Málefni motocross svæðisins
Minnisblað byggingarfulltrúa, minnisblað sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs ásamt minnisblaði fjármálastjóra lagt fram.
Sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs er falið að ræða útfærslu á samstarfssamningi og styrk við forsvarsmenn ASK.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
16.
Umsögn um útgáfu tækifærisleyfi - Graffíll
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við útgáfu á tækifærisleyfi vegna Graffíls, listahátíðar ungs fólks.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
17.
Beiðni um fjárstyrk vegna uppsetningar farsímamasturs í Dalsnúp, Þórisdal
Erindi frá félagi sumarhúsaeigenda í Stafafellsfjöllum lagt fram. Óskað er eftir fjárstyrk að fjárhæð 10 milljónir króna frá Sveitarfélaginu Hornafirði til að tryggja uppsetningu farsímamasturs í Dalsnúpi, Þórisdal í Lóni.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að vísa erindinu til frekari vinnu á mannvirkjasviði.
18.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2025
Viðauki 6 vegna óskar um aukafjárveitingu vegna endurskoðunar á netumhverfi sveitarfélagsins að upphæð 1.845 m. kr. lagður fram. Viðbótarfjárheimildum verður mætt með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð samþykkir samhljóða viðauka 6.*
19.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2025
Viðauki 7 vegna óskar um aukafjárveitingu vegna viðbyggingar við Gáruna fyrir pressuvél og starfsmannaaðstöðu og vegna óskar un aukafjárveitingu fyrir ráðgjafakostnaði vegna breytinga á umhverfis- og skipulagssviði að upphæð 33,97. m. kr. lagður fram. Viðbótarfjárheimildum verður mætt með lækkun á handbæru fé og lántöku upp á 17,67 m. kr.
Bæjarráð samþykkir samhljóða viðauka 7.*
20.
Ósk um Styrk í Björgunarskip
Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur tekið þá ákvörðun að flýta endurnýjun á björgunarskipinu Ingibjörgu þar sem talið er að Hornafjörður sé ein af lykilstaðsetningum fyrir björgunarskip. Skipið kom til Hafnar 12. júlí sl. Óskað er eftir styrk frá sveitarfélaginu vegna fjármögnunar björgunarskipsins.
Bæjarráð vísar beiðninni til umfjöllunar í Hafnarstjórn.
21.
Íþróttahús - hönnun
Til skoðunar er að meta kosti og galla við ólíkt rekstrarfyrirkomulag á framkvæmd við að byggja nýtt íþróttahús, framkvæmdir við eldra íþróttahús ásamt lagningu gervigrass og tartan hlaupabrautar á íþróttasvæðinu. Meðfylgjandi eru tvö minnisblöð sem hafa verið dregin saman fyrir okkur:1. Samantekt frá KPMG um valkosti vegna uppbyggingar íþróttamannvirkja2. Minnisblað frá fjármálastjóra þar sem gerð er grein fyrir áætluðum kostnaði við leið eitt, skv. samantekt KPMG um valkosti vegna uppbyggingar á íþróttamannvirkjum.
Lagt fram til kynningar.
22.
Umsóknir um störf á umhverfis- og framkvæmdasviði
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs leggur fram minnisblað um umsóknir um störf á umhverfis- og framkvæmdasviði.
Lagt fram til kynningar.
23.
Innviðir og öryggi í Öræfum
Nú hefur verið stigið mikilvægt skref í átt að aukinni viðbragðsgetu og öryggi í Öræfum með tilkynningu stjórnvalda um að framlengja fyrirkomulag bráðaviðbragðs í Öræfum og Suðursveit og stofna starfshóp um framtíðarfyrirkomulag öryggisinnviða á svæðinu. Sveitarfélagið fagnar þessari ákvörðun og lítur á hana sem viðurkenningu á þeim ábendingum og áskorunum sem við höfum ítrekað komið á framfæri. En nú þarf að hamra járnið meðan það er heitt og tryggja að verkefnið verði unnið af festu og með langtímasýn að leiðarljósi.Sveitarfélagið mun ráðstafa íbúð sveitarfélagsins í Hofi undir þá aðila sem sinna munu viðbragðshlutverki á svæðinu en einnig þarf þegar í stað að hefja leit að bráðabirgðahúsnæði til að hýsa tækjakost og búnað, þar á meðal sjúkrabíl.Mikilvægt er að sveitarfélagið, í samstarfi við haghafa, vinni að langtímasýn fyrir svæðið með hliðsjón af framtíðarþörfum og að þeirri sýn verði komið á framfæri við starfshópinn sem stofna á.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
24.
Úrskurður - Kæra vegna gatnagerðagjalda Hagaleiru 11
Sveitarfélaginu barst viðurkenning frá ríkislögmanni á bótaskyldu íslenska ríkisins vegna málsmeðferðar og rangrar niðurstöðu Innviðaráðuneytisins í úrskurðum á fyrri stigum málsins vegna kröfu um endurgreiðslu gatnagerðargjalda að Hagaleiru 11. Viðurkennt er í síðasta úrskurði Innviðaráðuneytisins í málinu að málsmeðferð sveitarfélagsins hafi á öllum stigum málsins verið samkvæmt lögum og reglum.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármálasviðs að taka saman lögmanns- og ferðakostnað sveitarfélagsins vegna málsins. Bæjarstjóra er falið að fá uppfærða kröfu frá málsaðilum vegna málsins. Í kjölfarið er bæjarstjóra, í samráði við lögmann sveitarfélagsins, falið að senda sundurliðaða kröfu til ríkislögmanns og gera samkomulag vegna málsins.
25.
Framsal á lóðarréttindi - Hagaleira 1
Þessu máli er bætt við 11.07.2025 kl. 14:06Skúli Ingólfsson óskar eftir heimild bæjarráðs til að framselja lóðarréttindi sín að Hagaleiru 1 til Björgvins Ingimundar Lúðvíkssonar og Sæunnar Maríu Borgþórsdóttur. Erindið er byggt á sérstökum aðstæðum í samræmi við 3. gr. reglna um úthlutun lóða frá 10. desember 2020, og vísast jafnframt til 3. mgr. 5. gr. núgildandi reglna um sama efni.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framsal lóðarréttinda á Hagaleiru 1 í samræmi við 3. grein reglna um úthlutun lóða frá 10. desember 2020 og 3. mgr. 5. gr. núgildandi reglna um sama efni.