Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1183. fundur
12. ágúst 2025 kl. 10:00 - 11:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Athugasemd um umferðaröryggi - Smárabraut
Málsnúmer 202507062
Óskað er eftir að settar verða þveranir á Smárabraut vegna hraðaksturs.
Bæjarráð óskar eftir samantekt á þörfinni fyrir þveranir á fleiri stöðum og að heildarinnkaupum sé vísað til mats á fjárhagslegum áhrifum.
2.
Uppgjör 2025
Málsnúmer 202508005
Fjármálastjóri fer yfir uppgjörstölur fyrir fyrstu sex mánuði ársins.
Rekstraryfirlit sýnir að jafnvægi er í rekstri sveitarfélagsins og niðurstaða fyrstu sex mánaða í takti við áætlanir.
3.
Ársreikningur og skattframtal v.2024 - Gagnaveita Hornafjarðar ehf
Málsnúmer 202508004
Fjármálastjóri mætir á fund og fer yfir ársreikninginn.
Lagt fram til kynningar.
4.
Fjárhagsáætlun 2026
Málsnúmer 202508013
Verk- og tímaáætlun fjárhagsáætlunar 2026-2029 lögð fram.
Bæjarráð samþykkir samhljóða verk- og tímaáætlun.
5.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2025
Málsnúmer 202501087
Viðauki 9 við fjárhagsáætlun 2025 vegna einskiptis fjárframlag í formi styrks til ASK til uppbyggingar á aðstöðu og æfingabraut í Fjárhúsavík, að upphæð 10.000.000 kr. Viðbótarfjárheimildum verður mætt með lántöku. Viðauki lagður fram til samþykktar.*
Bæjarráð samþykkir samhljóða viðauka 9.*
6.
Samstarfssamningur við Akstursíþróttafélag Austur Skaftafellssýslu (ASK)
Málsnúmer 202506037
Drög að samstarfssamning við Akstursíþróttafélag Austur- Skaftafellssýslu lögð fram. Einnig er óskað eftir viðbótar fjármagni vegna einskiptings framlags í formi styrks til félagsins vegna uppbyggingar á aðstöðu og æfingabraut í Fjárhúsavík að upphæð 10.000.0000 kr. sbr. viðauka 9.
Bæjarráð samþykkir framlagðann samning og felur sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs að ganga frá undirritun við ASK. Ósk um viðbótar fjármagn að upphæð 10.000.000 kr. samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
7.
Kosning í nefndir
Málsnúmer 202407038
Fulltrúi B-lista Björgvin Óskar Sigurjónsson óskar eftir að fara í leyfi frá störfum sem bæjarfulltrúi frá 01.08.2025 og tekur aftur sæti í bæjarstjórn og sem varamaður í bæjarráði 30.11.2025. Lagt er til eftirfarandi breytingar á nefndarmönnum B-lista á meðan leyfi stendur. Gunnar Ásgeirsson kemur inn sem bæjarfulltrúi í stað Björgvins, Gunnhildur Imsland verður 1. varamaður og Íris Heiður Jóhannsdóttir verður 2. varamaður í bæjarstjórn fyrir B-lista. Gunnar Ásgeirsson verður varamaður í bæjarráði í hans stað.*
Bæjarráð samþykkir breytingu á nefndarmönnum B-lista.
Samþykkt samhljóða.*
8.
Kosning í nefndir
Málsnúmer 202407038
D-listi óskar eftir að Hjördís Edda Olgeirsdóttir taki sæti Guðbjargar Ómarsdóttur sem 2. varamaður Í Umhverfis- og skipulagsnefnd.*
Bæjarráð samþykkir breytingu á nefndarmönnum D-lista.
Samþykkt samhljóða.*
9.
Innviðir og öryggi í Öræfum
Málsnúmer 202506040
Bæjarráð óskaði eftir því við heilbrigðisráðuneytið að sveitarfélagið eigi fulltrúa í þeim starfshópi sem boðað er til af hálfu stjórnvalda um samhæft viðbragð í svæðinu. Svar frá ráðuneytinu barst og er hér lagt fram.
Bæjarráð ítrekar að samtal við sveitarfélagið um málið fari fram sem allra fyrst þar sem sveitarfélagið er virkur samstarfsaðili í verkefninu og hefur til að mynda lagt til húsnæði fyrir viðbragðsaðila á svæðinu.
10.
Ósk um styrk vegna markaðsdags Beint frá Býli
Málsnúmer 202508012
Beiðni um styrk til að halda Beint frá býli daginn 24. ágúst 2025 á Miðskeri í Nesjum. Dagurinn verður haldinn hátíðlegur víðsvegar um landið. Markaðsstemning með vörum og kynningu á starfsemi félagsmanna Beint frá býli og Samtaka smáframleiðenda. Óskað er eftir styrk að fjárhæð 250.000 kr. til þess að halda viðburðinn.
Bæjarráð samþykkir umbeiðna styrkbeiðni að upphæð 250.000 kr. en bendir um leið á styrkúthlutanir atvinnu- og menningarmálanefndar sem fer fram ár hvert.
Bæjarráð hvetur íbúa til þess að fjölmenna á viðburðinn.
Samþykkt samhljóða.