Bæjarráð Hornafjarðar
1191. fundur
7. október 2025
kl.
10:00
-
12:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Íbúaráð - Suðursveit og Mýrar - 9
Fundargerð íbúaráðs Suðursveitar og Mýra númer 9 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 103
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar númer 103 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
3.
Humarhátíð 2025
Skýrsla humarhátíðarnefndar lögð fram. Fulltrúar nefndarinnar mæta á fundinn.
Bæjarráð þakkar humarhátíðarnefnd fyrir vel heppnaða Humarhátíð og vonar að hátíðin verði jafn vel heppnuð á næsta ári.
4.
Fjárhagsáætlun 2026
Uppfærðar rammaáætlanir deilda og launaáætlun lagðar fram og yfirfarnar.
Vísað til áframhaldandi vinnu fjármálasviðs við fjárhagsáætlun 2026.
5.
Uppbygging miðbæjar á Höfn
Minnisblöð bæjarstjóra um uppbyggingu á nýjum miðbæ á Höfn og viljayfirlýsing og samkomulag við Landsbyggð ehf. lagt fram.
Bæjarstjóra falið að uppfæra gögnin í samræmi við umræður á fundinum. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
6.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Breyting á gistileyfi- Skyrhúsið - F2313246
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna leyfis til reksturs Gististaðir í flokki II - B stærra gistiheimili í Skyrhúsinu.
Bæjarráð gefur samhljóða jákvæða umsögn.
7.
Tímabundin undanþága frá hæfisskilyrðum skipulagsfulltrúa
Þann 23.09.2025 var staða mála varðandi ráðningu skipulagsfulltrúa kynnt fyrir bæjarráði. Sveitarfélagið hafði áður óskað eftir undanþágu frá menntunarkröfum fyrir skipulagsfulltrúa á grundvelli 6. mgr. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í svari frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu kom fram að slík undanþága væri einstaklingsbundin og því þyrfti sveitarfélagið að upplýsa ráðuneytið um menntun og reynslu þess sem gegna ætti starfinu.Þar sem ráðningarferli bar ekki árangur var ákveðið að sækja um tímabundna undanþágu fyrir Gunnlaug Róbertsson, verkfræðing. Gunnlaugur mun starfa sem skipulagsfulltrui sveitarfélagsins á meðan unnið er að varanlegri lausn í málinu.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að Gunnlaugur Róbertsson gegni tímabundið hlutverki skipulagsfulltrúa sveitarfélagsins, sbr. 1. mgr. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Gunnlaugur hefur á sama tíma sagt sig frá störfum í umhverfis- og skipulagsnefnd þar sem hann hefur gengt formennsku.
Málinu er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Gunnlaugur hefur á sama tíma sagt sig frá störfum í umhverfis- og skipulagsnefnd þar sem hann hefur gengt formennsku.
Málinu er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
8.
Útihirslur í almenningsrýmum
Tillaga um grenndarstöðvar í sveitarfélaginu var lögð fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd 3. september sl. Umhverfisfulltrúa var þá falið að leggja fram uppfært kort af núverandi sorptunnum og óskað var eftir kostnaðarmati fyrir nýjar tunnur. Lögð er fram tillaga um nýjar tunnur og tengdann kostnað.
Bæjarráð er jákvætt fyrir tillögunni en vísar kostnaði umfram núverandi fjárheimilda til vinnnslu fjárhagsáætlunnar.
9.
Styrkbeiðni vegna Legó hönnunarkeppni í Reykjavík
Erindi frá Grunnskóla Hornafjarðar -Styrkbeiðni vegna Legó hönnunarkeppni í Reykjavík lagt fram.
Upplýsinga- og stjórnsýslufulltrúa falið að óska eftir nánari upplýsingum.
10.
Starfshópur um húsnæðismál Grunnskóla Hornafjarðar
Fundargerð starfshóps um húsnæðismál Grunnskóla Hornafjarðar númer tvö, greinagerð um húsnæði Grunnskóla Hornafjarðar frá 2024 og dagskrá skólaheimsóknar lagt fram.
Lagt fram til kynningar.
11.
Félagsheimili sveitarfélagsins
Íbúaráð Suðursveitar og Mýra bendir á að klæða þyrfti utanhúss í Holti til þess að koma í veg fyrir leka og aðrar skemmdir. Einnig er óskað eftir að settir verði upp rafmagnstenglar utanhúss fyrir ferðavagna, en húsið er reglulega nýtt fyrir ættarmót á sumrin.
Bæjarráð vísar málinu til umsjónarmanns fasteinga og vinnslu viðhaldsáætlunnar.
12.
Ósk um leiksvæði á Hrollaugsstöðum
Íbúaráð Suðursveitar og Mýra óskar eftir því við bæjarráð að sett verði upp leiksvæði við Hrollaugsstaði norðan við íþróttavöllinn og vestan við ruslaportið.Einnig er óskað eftir því að sett verði leiktæki við Holt og að körfuboltavöllurinn verði lagaður en malbikið þar er mjög gróft.
Bæjarráð þakkar fyrir ábendinguna og vísar málinu til skoðunnar og kostnaðarmats á umhverfis- og framkvæmdasviði.
13.
Til umsagnar frumvarp til laga um breytingar á sveitarstjórnarlögum nr 1382011
Farið yfir frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum.
Sviðsstjóra stjórnsýslusviðs falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
14.
Fyrirhugaðar breytingar Heilbrigðiseftirlitsins
Umsögn Heilbrigðiseftirlits Austurlands um áform stjórnvalda um breytingar á ýmsum lögum vegna einföldunar, aukinnar skilvirkni, eftirlits með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum lagt fram.
Bæjarráð tekur undir með Heilbrigðiseftirliti Austurlands og leggur áherslu á að fyrirhugaðar breytingar komi ekki til með að auka kostnað hjá fyrirtækjum og stofnunum á svæðinu sem nýta þjónustuna og staðið verði vörð um störf og sérfræðiþekkingu á landsbyggðinni sem er mikils virði.
15.
Fundargerðir Nýheima Þekkingarseturs 2025
Fundargerð númer 155 fundar stjórnar Nýheima þekkingarseturs lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
16.
Minningardagur Sameinuðu þjóðanna um fórnarlömb umferðarslysa
Alþjóðlegur minningardagur Sameinuðu þjóðanna um fórnarlömbumferðarslysa verður haldinn sunnudaginn 16. nóvember 2025. Dagurinn er haldinn þriðja sunnudag í nóvember ár hvert og er tileinkaður minningu þeirra sem hafa látist í umferðarslysum.
Lagt fram til kynningar.
17.
Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
Fundargerð 985. fundar stjórnar Sambandsins frá 26. september 2025 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.