Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1196. fundur
11. nóvember 2025 kl. 10:00 - 12:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 81
Málsnúmer 2511003F
Fundargerð atvinnu- og menningamálanefndar númer 81 lögð fram
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 104
Málsnúmer 2510001F
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar númer 104 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
3.
Sindri 2025-2026
Málsnúmer 202508054
Fulltrúar frá aðalstjórn UMF Sindra mæta á fund og fara yfir stöðuna í félaginu.
Bæjarráð þakkar fulltrúum aðalstjórnar fyrir góða yfirferð á stöðunni og stefnumótunarvinnuni og óskar þeim góðs gengis í áframhaldandi vinnu.

4.
Frístundastyrkir 2025
Málsnúmer 202508084
Fræðslu- og frístundanefnd lagði til að gjaldskrá Sundlaugar Hafnar, Vöruhúss og dagforeldra yrði hækkuð um 3,7% í samræmi við hækkun vísitölu. Einnig lagði fræðslu- og frístundanefnd til að frístundastyrkurinn verði hækkaður skv. minnisblaði.
Bæjarráð samþykkir 3,5% hækkun á gjaldskrám Sundlaugar Hafnar, Vöruhúss og dagforeldra.
Bæjarráð samþykkir einnig að hækka frístundastyrk úr 65.000 kr. í 70.000 kr fyrir 6-18 ára börn og úr 12.500 kr í 15.000 kr fyrir 5 ára börn.

Samþykkt samhljóða.
5.
Breyting á reglum um gjaldskrá lengdrar viðveru - Kátakots
Málsnúmer 202510016
Fræðslu- og frístundanefnd lagði til að 30% afsláttur fyrir einstæða foreldra gildi í Kátakoti líkt og í leikskólanum. Minnisblað sviðsstjóra fræðslu-og frístundasviðs lagt fram.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagða breytingu á reglum um Kátakot um 30% afslátt fyrir einstæða foreldra og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
6.
Íþróttahús - hönnun
Málsnúmer 202402127
Fundargerð stýrihóps um nýtt íþróttahús númer 37 frá 6. október 2025 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
7.
Kæra á ákvörðun byggingarfulltrúa um að gefa út byggingarleyfi fyrir framkvæmdir á lóð Silfurbotn 1-5
Málsnúmer 202510080
Ákvörðun byggingarfulltrúa um að gefa út byggingarleyfi fyrir framkvæmdir á lóð Silfurbotn 1-5 hefur verið kært til Úrskurðarnefndar Umhverfis- og Auðlindamála.
Lagt fram til kynningar.
8.
Umsókn um lóð - Sandbakkavegur 3
Málsnúmer 202507049
T.I.M. Nord Development ehf.fékk úthlutaða lóðina Sandbakkavegur 3 þann 29.7.2025.Frestur til þess að greiða staðfestingargjald rann út Þann 17. október 2025 og engin greiðsla hefur borist. Send hefur verið tilkynning þess efnis að úthlutunin verður felld úr gildi.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við niðurfellinguna og felur starfsmanni að auglýsa lóðina lausa til úthlutunar.
9.
Beiðni um tækjakaup fyrir Áhaldahús - snjóskófla með vængjum
Málsnúmer 202510129
Minnisblað vegna beiðni bæjarverkstjóra um heimild til kaupa á nýrri vinnuskóflu fyrir Merlo-vél ásamt mati á fjárhagslegum áhrifum lagt fram.
Bæjarráð heimilar kaup á nýrri vinnuskóflu og vísar málinu til viðaukagerðar og til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
10.
Innsent erindi frá Félagi eldri Hornfirðinga- Minigolfvöllur, viðhald, fjölgun brauta og framtíð svæðisins
Málsnúmer 202511019
Innsent erindi frá Félagi eldri Hornfirðinga þar sem vakin er athygli á viðhaldsþörf á minigolfvelli við Víkurbraut ásamt ósk um fleiri brautir.
Bæjarráð er jákvætt fyrir erindinu og vísar málinu til framkvæmdaráætlunar.
11.
Umsókn um lóð - Hafnarbraut 6
Málsnúmer 202109071
Bæjarráð samþykkti á fundi nr. 1192 að vísa málinu til umræðu í umhverfis- og skipulagsnefnd. Samkvæmt gildandi skilmálum deiliskipulags eru Hafnarbraut 4-6 með samliggjandi byggingarreit.Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að breytingar verði unnar á gildandi deiliskipulagsskilmálum áður en lóðin er auglýst til úthlutunar á ný.
Bæjarráð felur skipulagsfulltrúa að vinna breytingar á deiliskipulagi í samráði við nærliggjandi lóðarhafa og umhverfis- og skipulagsnefnd.
12.
Lóðamál - geymslulóð fyrir jarðefni norðan við Drápskletta
Málsnúmer 202511023
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs vegna samskipta við Vegagerðina sem tengjast hálkuvörnum og geymslusvæði við Ægissíðu.
Lagt fram til kynnningar. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.
13.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2025
Málsnúmer 202501087
Viðauki 12 vegna óskar um aukafjárveitingu vegna skólaskoðunar, óskar um styrk vegna Legó hönnunarkeppni í Reykjavík og óskar um vegaframkvæmd á Miðósi að upphæð 8,1 m.kr. lagður fram. Viðbótarfjárheimildum verður mætt með lántöku.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við viðauka 12 og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar. Samþykkt samhljóða.
14.
Fjárhagsáætlun 2026
Málsnúmer 202508013
Fjármálastjóri fer yfir fjárhagsáætlun 2026-2029.
Fjárhagsáætlun 2026-2029 vísað til fyrri umræðu bæjarstjórnar.
15.
Verklag vegna styrkja og auglýsinga
Málsnúmer 202507025
Reglur atvinnu- og menningarmálanefndar vegna verkefna og viðburðastyrkja, reglur vegna auglýsingastyrkja og verklagsreglur bæjarráðs um styrkveitingar lagðar fram til samþykktar. Minnisblað um breytingar á fyrirkomulagi styrkja lagt fram til upplýsinga.
Bæjarráð samþykkir uppfærðar úthlutunarreglur vegna verkefna og viðburðarstyrkja og felur starfsmanni að uppfæra þær í samræmi við umræður á fundinum. Reglunum vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar með breytingum og til umræðu í fræðslu- og frístundanefnd og atvinnu- og menningamálanefnd. Reglur um auglýsingastyrki, rekstrarstyrk og styrki bæjarráðs vísað til áframhaldandi vinnu.

Samþykkt samhljóða.
16.
Fundargerð stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum
Málsnúmer 201305073
Fundargerð stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum nr. 84 lögð fram.
Lagt fram til kynningar
17.
Aðalfundur HAUST 2025
Málsnúmer 202510109
Fundarboð og fundargögn vegna aðalfundar HAUST lagt fram.
Lagt fram til kynningar. Fjármálastjóri sveitarfélagsins fer með atkvæði sveitarfélagsins á fundinum.