Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1197. fundur
18. nóvember 2025 kl. 10:00 - 12:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Velferðarnefnd - 45
Málsnúmer 2511004F
Fundargerð velferðarnefndar númer 45 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
2.
Fræðslu- og frístundanefnd - 130
Málsnúmer 2511001F
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar númer 130 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
3.
Hornafjörður náttúrulega
Málsnúmer 202301036
Byggðafulltrúi kynnir stöðuna á Hornafjörður Náttúrulega og leggur fram drög að stefnunni.
Bæjarráð þakkar byggða- og nýsköpunarfulltrúa fyrir kynninguna og samþykkir að stefnan verði birt í samráðsgátt þegar hún hefur verið uppfærð í samræmi við umræður á fundinum. Bæjarráð hvetur íbúa til þess að kynna sér drögin og senda inn athugasemdir.

Samþykkt samhljóða.
4.
Kærunefnd útboðsmála - Kæra Exton ehf.- Mál nr. 16-2025
Málsnúmer 202505021
Kærunefnd útboðsmála felldi ákvörðun sveitarfélagsins Hornafjarðar, 29. apríl 2025 um val á tilboði Atendi ehf. í útboði auðkennt "Sindrabær endurbætur. Útboð hljóð-, ljósa- og myndkerfa" úr gildi.Af niðurstöðu kærunefndar útboðsmála í þessu máli leiðir að ekkert gilt tilboð barst í hinu kærða útboði og því lýkur útboðsferlinu. Skv. úrskurði skal sveitarfélagið greiða kæranda, Exton ehf., 500.000 krónur í málskostnað.
Lagt fram til kynningar. Sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs falið að koma með tillögur að næstu skrefum.
5.
Framtíðarsýn um málefni aldraðra 2026-2030
Málsnúmer 202412045
Frá því í vor hefur verið unnið að gerð framtíðarsýnar í málefnum aldraðra fyrir árin 2026-2034 í Sveitarfélaginu Hornafirði. Haldnar voru vinnustofur í þéttbýlinu í apríl og maí, niðurstöður þeirra lagðar fyrir íbúaráð í dreifbýli og haldin voru opin hús í félagsheimilum í dreifbýlinu dagana 9.-11. september. Nú liggja fyrir drög að stefnunni sem byggja á þeirri vinnu sem hefur farið fram og lagðar eru fyrir fastanefndir sveitarfélagsins til kynningar og umsagnar.
Málinu frestað þar til kostnaðargreining liggur fyrir.
6.
Endurskoðun reglna um sérstakan húsnæðisstuðning
Málsnúmer 202510012
Tillaga á breytingum á reglum Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna sérstaks húsnæðisstuðnings og matskvarða lagðar fram til kynningar. Breytingarnar byggja á nýjum leiðbeiningum Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, annarsvegar vegna árlegrar uppfærslu og hins vegar vegna breytinga sem gerðar voru á örorkulífeyriskerfinu og tóku gildi 1. september s.l.
Bæjarráð samþykkir breytingar á reglunum og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.
7.
Framkvæmd - Hagahverfi (ÍB5), innviðauppbygging, undirbúningur
Málsnúmer 202407010
Á fundi bæjarráðs þann 04.11. sl. var sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs falið að fara yfir verklag og funda með fulltrúum Rósabergs vegna málsins.Af fundinum er ljóst að fyrirspurn sveitarfélagsins var ekki nægilega afmörkuð og að fulltrúar Rósabergs hafa ekki tekið þátt í formlegu ferli. Því var upphæð Rósabergs í bókun bæjarráðs frá 21.10.2025 ranglega sett þar inn.Jafnframt var farið yfir innra ferli sviðsins og gert ráð fyrir því að beiðnir um verð í efni skuli hér eftir berast skriflega, þær séu vel afmarkaðar og að veittur sé nægilegur frestur til að skila tilboðum.
Bæjarráð samþykkir að leiðrétta bókun sína frá 21.10.2025 og taka úr henni upphæð Rósabergs, í samræmi við 2. mgr. 23. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og vísar málinu til bæjarstjórnar.
8.
Ósk um lóðarvilyrði - Álaugarvegur 13 og 15
Málsnúmer 202507070
Tekin er fyrir umsókn Reynis Ásgeirssonar um lóðarvilyrði á Álaugarvegi 13 og 15. Skv. umsókn er gert ráð fyrir iðnaðarhúsnæði sem gæti hýst verslun og eða aðra starfsemi.
Álaugarvegur 13-15 er staðsettur á athafnasvæði AT1 en í skilmálum aðalskipulags segir um svæðið: „Heppa og Leirusvæði norðan við Álaugarveg að Bugðuleiru. Margvísleg atvinnustarfsemi, rafstöð, sláturhús, léttur iðnaður, verkstæði og smiðjur, geymslur og áhaldahús, geymsluport. Heimilt er að starfrækja verslun. Svæðið tengist hafnarsvæði. Móttöku- og flokkunarstöð fyrir sorp við Álaleiru á Höfn er innan svæðisins.“
Bæjarráð samþykkir að gert verði lóðarvilyrði vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á lóðunum. Starfsmanni falið að lagfæra samning vegna lóðarvilyrðis í samræmi við umræður á fundinum og felur bæjarstjóra að ganga frá undirritun.

Samþykkt samhljóða.
9.
Hagahverfi - úthlutun lóða
Málsnúmer 202511022
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs vegna uppbyggingar Hagahverfis.
Bæjarráð samþykkir að auglýsa lóðir í fyrsta áfanga Hagahverfis sem lausar til úthlutunar.
Jafnframt samþykkir bæjarráð að tímamörk framkvæmda í 7. grein reglna um úthlutun lóða skulu miða við dagsetningu byggingarhæfis lóða en ekki dagsetningu lóðarúthlutunar. Með byggingarhæfi er átt við að komnar séu akfærar götur að lóðum og að fyrir liggi tenging að neysluvatns- og fráveitukerfi að lóðarmörkum lóða. Núverandi áætlanir gera ráð fyrir að það ferli taki u.þ.b. 12 til 18 mánuði.

Bæjarráð felur starfsmönnum umhverfis- og framkvæmdasviðs að auglýsa lóðir sem lausar til úthlutunar á kortasjá og á heimasíðu sveitarfélagsins og birta þar alla skilmála og upplýsingar sem gilda um lóðirnar (þ.e. deiliskipulagsuppdrætti, greinargerð deiliskipulags, lóðarblöð, jarðrannsóknarskýrslu, skilmála fyrir grundun húsa og lóða, reglur um úthlutun lóða og framkvæmdaráætlun vegna uppbyggingar innviða, þegar hún liggur fyrir).

Gert er ráð fyrir að lóðir undir sambyggð raðhús og parhús verði úthlutaðar sama aðila.

Ásgerður Kristín Gylfadóttir gerir athugasemd við að kostnaðarmat liggi ekki fyrir.
10.
Verðfyrirspurn - Miðós, vegagerð
Málsnúmer 202510128
Fresti til að skila tilboðum í verkið er lokið. Kostnaðaráætlun verkefnis hljóðar upp á 8.067.150 kr. Eftirfarandi tilboð bárust sveitarfélaginu:1. Rósaberg ehf, 6.269.288 kr., 77,71% af kostnaðaráætlun.2. Skaftverk ehf, 6.764.184 kr., 83,85% af kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir tilboð Rósaberg ehf, 6.269.288 kr. og felur starfsmönnum umhverfis- og framkvæmdasviðs að ganga til samninga við verktaka.

Samþykkt samhljóða.
11.
Íþróttahús - hönnun
Málsnúmer 202402127
Fundargerð stýrihóps um nýtt íþróttahús númer 38 og númer 39 lögð fram.
Ekki hefur tekist að ráða í starf verkefnastjóra um byggingu nýs íþróttahúss. Starfið verður auglýst aftur með uppfærðri starfslýsingu.
Lagt fram til kynningar.
12.
Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2026 og þriggja ára áætlun til 2029
Málsnúmer 202508013
Greining á launaáætlunum leik- og grunnskóla auk yfirlit yfir langtímaveikindi starfsfólks.
Lagt fram til kynningar.
13.
Samþykkt um kjör fulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202412030
Launaleiðrétting nefnda og ráða samkvæmt samþykkt um kjör fulltrúa sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Launafulltrúa falið að ganga frá leiðréttingu launanna. Sviðsstjóra stjórnsýslusviðs falið að leggja fram tillögu að breytingu á samþykktinni í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða.
14.
Jólagjafir starfsfólks 2025
Málsnúmer 202511046
Ósk um aukafjárheimild vegna jólagjafa starfsfólks árið 2025.
Bæjarráð samþykkir að veita aukafjárheimild vegna jólagjafa skv. ósk fjármálastjóra.
15.
Heilbrigðisstofnun Suðausturlands, slit félags
Málsnúmer 202511048
Óskað er eftir heimild til að loka bankareikningum Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands vegna þess að þar fer ekki lengur fram starfsemi. Í kjölfarið er einnig óskað heimildar til að slíta félaginu.
Bæjarráð heimilar að loka bankareikning Heilbrigðisstofnun Suðausturlands og í kjölfarið að slíta félaginu. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
16.
Uppbygging miðbæjar á Höfn
Málsnúmer 202509060
Að frumkvæði Landsbyggðar stendur nú til að ráðast í stefnumótandi vinnu um framtíðarsýn og staðarímynd fyrir uppbyggingu nýs miðbæjar á Höfn. Vinnustofa um verkefnið þann 3. desember er lykilskref í því að móta framtíðarsýn fyrir nýjan miðbæ og samræma sýn lykilaðila að verkefninu. Markmiðið er að byrja að leggja traustan grunn að uppbyggingu sem mun skipta samfélagið miklu máli og styðja við jákvæða þróun svæðisins um ókomin ár.
Lagt fram til kynningar.
17.
Umsögn um útgáfu tækifærisleyfis til áfengisveitinga í íþróttamiðstöð Hafnar vegna Þorrablóts Hafnar
Málsnúmer 202511039
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við útgáfu á tækifærisleyfi fyrir áfengisveitingar í íþróttamiðstöð vegna Þorrablóts Hafnar.
Bæjarrá veitir samhljóða jákvæða umsögn.
18.
Styrkumsókn frá Sigurhæðum
Málsnúmer 202412076
Meðfylgjandi er umsókn um styrk til reksturs Sigurhæða
Sviðsstjóra velferðarsviðs falið að afla frekari gagna og afgreiðslu málsins frestað.
19.
Stöðuleyfisumsókn Ráðhústorgi- Jólamarkaður Kiwanis
Málsnúmer 202511038
Kiwanisklúbburinn Ós óskar eftir markaðssöluleyfi á aðventunni fyrir jólamarkað við bílastæði við Miðbæ þar sem seldar verða jólavörur og tré. Ágóði sölumarkaðarins rennur til góðgerðarmála í sveitarfélaginu.
Bæjarráð samþykkir að veita þeim markaðsleyfi gegn því að svæðinu verði skilað eins og komið er að því. Sveitarfélagið fellur frá innheimtu leyfisgjalds þar sem um góðgerða starfsemi er að ræða.
20.
Til umsagnar 237.mál - Breyting á þingsályktun nr.24152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Málsnúmer 202511049
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 237. mál - Breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.Umsagnir skal senda í gegnum umsagnagátt Alþingis.Frestur til að senda inn umsögn er til og með 25. nóvember nk.
Lagt fram til kynningar.
21.
Ósk um umsögn vegna flugeldasýningar
Málsnúmer 202511025
Björgunarfélag Hornafjarðar óskar eftir umsögn og samþykki landeiganda fyrir flugeldasýningu 22. Nóvember 2025 á höfninni.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
Málið var tekið fyrir og samþykkt í tölvupósti.
Lagt fram til kynningar.
22.
Til umsagnar 229.mál - Verndar- og orkunýtingaráætlun og raforkulög.
Málsnúmer 202511050
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 229. mál - Verndar- og orkunýtingaráætlun og raforkulög.Umsagnir skal senda í gegnum umsagnagátt Alþingis.Frestur til að senda inn umsögn er til og með 25. nóvember nk.
Lagt fram til kynningar.
23.
Ósk um umsögn vegna flugeldasýningar á áramótum
Málsnúmer 202511010
Björgunarfélag Hornafjarðar óskar eftir umsögn sveitastjórnar og leyfi landeiganda til að halda brennu og flugeldasýningu í landi sveitarfélagsins á áramótum þar sem Gamlabúð stóð áður.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
24.
Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
Málsnúmer 202502013
fundargerð 988. fundar stjórnar Sambandsins frá 31. október 2025 lögð fram
Lagt fram til kynningar.
25.
SASS/ áætluð framlög aðildarsveitarfélaga fyrir 2026
Málsnúmer 202511040
Upplýsingar um áætluð framlög aðildarsveitarfélaga til SASS, ART og annarra verkefna árið 2026 eins og þau voru samþykkt á ársþinginu.
Bæjarráð vísar málinu til fjárhagsáætlunargerð.
Samþykkt samhljóða.