Bæjarráð Hornafjarðar
1199. fundur
2. desember 2025
kl.
10:00
-
12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir
1. varamaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 82
Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar númer 82 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 105
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar númer 105 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
3.
Beiðni um styrk til lagfæringar á dreni á Silfurnesvelli
Erindi frá Golfklúbbi Hornafjarðar þar sem óskað er eftir styrk vegna drenunar á 1. braut Silfurnesvallar.
Erindið tekið fyrir og óskað er eftir frekari gögnum. Umhverfis- og framkvæmdasviði falið að vinna málið áfram.
4.
Kæra á ákvörðun byggingarfulltrúa um að gefa út byggingarleyfi fyrir framkvæmdir á lóð Silfurbotn 1-5
Fyrir liggur ákvörðun Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 160/2025. Málið varðar ákvörðun staðgengils byggingarfulltrúa sveitarfélagsins Hornafjarðar frá 19. september 2025 um að samþykkja byggingaráform fyrir lóðina að Silfurbotni 1-5.Kröfu kærenda um ógildingu ákvörðunarinnar hefur verið hafnað.
Lagt fram til kynningar.
5.
Umsögn um útgáfu tækifærisleyfis til áfengisveitinga- Þorrablót Nesja - og lónmanna- Mánagarði
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við tækifærisleyfi, tímabundið áfengisleyfi vegna þorrablóts Nesja og Lónmanna
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
6.
Beiðni um styrk til myndbandsgerðar
Bæjarráð styrkti gerð fræðslumyndbands um slysavarnir ungra barna á heimilum og öryggi þeirra í bílum. Myndbandið er nú klárt og fer í kynningu fljótlega.
Lagt fram til kynnningar.
7.
Samstarfssamningur við Rannsóknarsetur Háskóla Íslands
Drög að samstarfssamningi við Rannsóknarsetur Háskóla Íslands lögð fram ásamt minnisblaði sviðsstjóra stjórnsýslusviðs.
Málinu vísað til gerðar rekstrarsamnings, sviðsstjóra stjórnsýslusviðs falið að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
8.
Úrskurður - Kæra vegna gatnagerðagjalda Hagaleiru 11
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs leggur fram minnisblað um stöðu málsins og afgreiðslu að hluta.
Sveitarfélagið hefur endurgreitt gatnagerðargjöld og málskostnað samkvæmt úrskurði Innviðaráðuneytisins. Jafnframt hefur krafa vegna málsins verið send á Ríkislögmann þar sem ábyrgð á málalyktum er alfarið vegna málsmeðferðar Innviðaráðuneytisins.
9.
Skipurit stjórnsýslu- og fjármálasvið
Trúnaðarmál.
10.
Hluthafafundur - Leigufélagið Bríet ehf
Boðað hefur verið til hluthafafundar Leigufélagsins Bríetar, þann 2. desember 2025, kl. 11:00.
Bæjarstjóri sat hluthafafundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
11.
Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
fundargerð 989. fundar stjórnar Sambandsins frá 14. nóvember 2025 lögð fram
Lagt fram til kynningar