Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1204. fundur
13. janúar 2026 kl. 10:00 - 12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir varamaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson 1. varamaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Úrskurður - Kæra vegna gatnagerðagjalda Hagaleiru 11
Málsnúmer 202202048
Sveitarfélaginu hefur borist bréf frá ríkislögmanni þess efnis að stillt verði upp samkomulagi um fullnaðargreiðslu samkvæmt kröfum sveitarfélagsins að fjárhæð 7.094.070 kr. Í því felst sú heildarfjárhæð sem sveitarfélagið greiddi lóðarhöfum ásamt öllum útlögðum kostnaði sveitarfélagsins vegna málsins. Þetta er í samræmi við niðurstöðu úrskurðar Innviðaráðuneytisins þar sem fram kom að málsmeðferð sveitarfélagsins hafi verið samkvæmt jafnræðisreglum stjórnsýslulaga þegar lóðarhöfum var synjað um niðurfellingu gatnagerðargjalda.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ljúka samkomulagi við Ríkislögmann miðað við þessar forsendur.
Samþykkt samhljóða.
2.
Fundur með framkvæmdaaðila í Skaftafelli III og IV
Málsnúmer 202601073
Sveitarfélagið óskaði eftir fundi með fulltrúum Arctic Adventures í kjölfar mikillar umræðu um framkvæmdir við Skaftafell. Markmið fundarins var að ræða hvernig mætti, innan gildandi skipulags og heimilda, draga úr sjónrænum áhrifum framkvæmdanna og stuðla að meiri samfélagslegri sátt um verkefnið.Fundinn sátu bæjarstjóri, sviðsstjóri stjórnsýslusviðs, skipulagsfulltrúi og formaður umhverfis- og skipulagsnefndar fyrir hönd sveitarfélagsins ásamt fjórum fulltrúum Arctic Adventures. Á fundinum var m.a. fjallað um ásýnd mannvirkja, landmótun, lýsingu, efnisval og framtíðarsýn um áframhaldandi uppbyggingu á svæðinu.
Bæjarráð tók til kynningar fund sem haldinn var með fulltrúum Arctic Adventures þar sem rætt var um framkvæmdir við Skaftafell og mögulegar leiðir til að draga úr sjónrænum áhrifum þeirra.
Rætt var m.a. um litaval, landmótun, lýsingu, frágang og framtíðarútfærslu uppbyggingar með það að markmiði að mannvirki falli betur að landslagi.
Bæjarráð fagnar því að Arctic Adventures hafi lýst yfir vilja til áframhaldandi samtals og samvinnu um þessi atriði.

3.
Stjórnsýslukæra UUA2601001 framkvæmdaleyfi jarðtæknirannsóknir Hoffelli
Málsnúmer 202601049
Lögð er fram stjórnsýslukæra vegna ákvörðun sveitarfélagsins um að samþykkja umsókn um framkvæmdarleyfi fyrir jarðtæknirannsóknum við Hoffelslón.
Lagt fram til kynningar.
4.
Stjórnsýslukæra UUA2601006 Byggingarheimild Skaftafell 3C
Málsnúmer 202601070
Lögð er fram stjórnsýslukæra vegna ákvörðun byggingarfulltrúa sveitarfélagsins um að veita byggingarheimild fyrir byggingu 13 gistihúsa að Skaftafelli 3C í Öræfum.
Lagt fram til kynningar.
5.
Beiðni um gjaldfrjáls afnot af húsnæði sveitarfélagsins
Málsnúmer 202601062
Kiwanisklúbburinn Ós heldur umdæmisþing Kiwanis umdæmisins Ísland-Færeyjar dagana 11.-12. september 2026. Óskað er eftir gjaldfrjálsum afnotum af íþróttahúsi, Sindrabæ og hluta af Heppuskóla þessa daga.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk í formi afnota af umbeðnu húsnæði sveitarfélagsins 10.-13. september 2026 fyrir umdæmisþingið með fyrirvara um samþykki forstöðumanna í viðkomandi húsum. Bæjarráð vill koma á framfæri þökkum til Kiwanisklúbbsins Óss fyrir þeirra framlag til samfélagsins.

Samþykkt samhljóða.
6.
Beiðni um rekstrarstyrk- Karlakórinn Jökull
Málsnúmer 202601061
Karlakórinn Jökull óskar eftir rekstarstyrk að upphæð 1.300.000 kr til áframhaldandi rekstur kórsins.
Bæjarráð samþykkir að veita Karlakórnum Jökli rekstrarstyrk að fjárhæð 320.000 kr. á ári, til þriggja ára. Við mat á umsókninni var litið til fyrri styrkveitinga, en styrkurinn nam 300.000 kr. árið 2025.

Samþykkt samhljóða.
7.
Beiðni um rekstrarstyrk- Fenrir Elite Fitness
Málsnúmer 202601063
Fenrir Elite ehf. óskar eftir rekstrarstyrk að upphæð 4.000.000 kr. til stuðnings við áframhaldandi starfsemi stöðvarinnar.
Bæjarráð felur stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúa að óska eftir frekari gögnum.
8.
Íþróttahús - hönnun
Málsnúmer 202402127
Lagðar eru fram fundargerðir stýrihóps um nýtt íþróttahús, númer 42.43 og 44.
Lagt fram til kynningar.
9.
Starfshópur um húsnæðismál Grunnskóla Hornafjarðar
Málsnúmer 202502009
Lagðar eru fram fundargerðir starfshóps um húsnæðismál Grunnskóla Hornafjarðar númer 4,5 og 6.
Lagt fram til kynningar.
10.
Umsögn um útgáfu tækifærisleyfis - Góuhóf í Öræfum
Málsnúmer 202601072
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við tækifærisleyfi, tímabundið áfengisleyfi vegna Góuhófs í Öræfum.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.