Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1205. fundur
20. janúar 2026 kl. 10:00 - 11:04
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umsókn um lóð Álaleira 11
Málsnúmer 201709271
Gunnar Gunnlaugsson óskar fyrir hönd Mikael ehf. eftir fresti til þess að ljúka framkvæmdum á lóðinni Álaleira 11 eftir að hafa fengið tilkynningu þann 16. desember um fyrirhugaða afturköllun lóðarinnar. Hann segir að framkvæmdum muni ljúka á þessu ári 2026 og segir framkvæmdir nú þegar hafnar.Búið er að veita Mikael ehf. nokkra fresti til þess að ljúka framkvæmdum frá því í janúar 2021.
Bæjarráð samþykkir að veita Mikael ehf. frest til 31.desember 2026 til þess að ljúka framkvæmdum.
Samþykkt samhljóða.
2.
Umsókn um lóð - Sandbakkavegur 5
Málsnúmer 202512071
T.S.E. Group ehf. sækir um lóðina Sandbakkaveg 5. Minnisblað fjármálastjóra ásamt öðrum gögnum lagt fram.
Bæjarráð óskar eftir frekari gögnum og felur fjármálastjóra og sviðsstjóra stjórnsýslusvið að vinna málið áfram.
3.
Umsókn um lóð -Sandbakkavegur 3
Málsnúmer 202512072
T.s.e. Group ehf. sækir um lóðina Sandbakkaveg 5.
Bæjarráð óskar eftir frekari gögnum og felur fjármálastjóra og sviðsstjóra stjórnsýslusvið að vinna málið áfram.
4.
Verktakagreiðslur
Málsnúmer 202601064
Fjármálastjóri kemur fyrir fundinn til að ræða fyrirspurnir bæjarráðs frá fundi nr. 1202 varðandi verktakagreiðslur.
Fjármálastjóra falið að vinna málið áfram.
5.
Úrskurður - Kæra vegna gatnagerðagjalda Hagaleiru 11
Málsnúmer 202202048
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri hefur undirritað samkomulag við ríkislögmann um að embætti ríkislögmanns endurgreiði sveitarfélaginu að fullu bætur vegna þess kostnaðar sem greiddur hefur verið af hálfu sveitarfélagsins vegna málsins, þar með talið lögmanns- og ferðakostnað.Greiðsla fer fram 23. janúar næstkomandi og þar með lýkur þessu máli.
Bæjarráð lýsir yfir ánægju sinni með að loks sjái fyrir endann á þessu máli.
Lagt fram til kynningar.
6.
Framkvæmdir - Hafnarbraut 60 - gatnagerð og veitur, undirbúningur
Málsnúmer 202509056
Niðurstöður verðkönnunar vegna Hafnarbrautar 60 lagðar fram. Kostnaðaráætlun verkefnis hljóðar upp á 49.242.000 kr. Eftirfarandi tilboð bárust í verkið:Rósaberg ehf., 31.563.218 kr. 64,10% af kostnaðaráætlun.Gröfuþjónusta Olgeirs ehf. 28.997.000 kr. 58,89% af kostnaðaráætlun.Skaftverk ehf., 32.288.000 kr., 65,57% af kostnaðaráætlun.Jökulfell ehf. 33.660.900 kr., 68,36% af kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda, Gröfuþjónustu Olgeirs ehf. og felur starfsmönnum umhverfis- og framkævmdasviðs að ganga til verksamninga.
Samþykkt samhljóða.
7.
Beiðni um styrk til lagfæringar á dreni á Silfurnesvelli
Málsnúmer 202511086
Golfklúbbur Hornafjarðar óskar eftir staðfestingu á því að styrkur fáist til verksins. Mat á fjárhagslegum áhrifum lögð fram.
Bæjarráð samþykkir að styrkja Golfklúbb Hornafjarðar um 80% af framkvæmdakostnaði, en þó að hámarki 8.000.0000 kr. Fjármálastjóra falið að gera viðauka við fjárhagsáætlun.
Samþykkt samhljóða.
8.
Umsögn um útgáfu tækifærisleyfis - Þorrablót eldri Hornfirðinga
Málsnúmer 202601105
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við tækifærisleyfi, tímabundið áfengisleyfi vegna þorrablóts eldri Hornfirðinga í Sindrabæ.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
9.
Íþróttahús - hönnun
Málsnúmer 202402127
Fundargerð stýrihóps um nýtt íþróttahús númer 45. lögð fram.
Lagt fram til kynningar.