Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1207. fundur
3. febrúar 2026 kl. 10:00 - 11:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 281
Málsnúmer 2601010F
Fundargerð Hafnarstjórnar númer 281 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
2.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 84
Málsnúmer 2601009F
Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar númer 84 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
3.
Skaftfellingur
Málsnúmer 202509069
Erindisbréf fyrir ritnefnd Skaftfellings lagt fram.
Bæjarráð samþykkir samhljóða erindisbréf með þeim breytingum sem komu fram á fundinum og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
4.
Málefni héraðsfréttablaðsins Eystrahorns
Málsnúmer 202511078
Eftir umfjöllun í bæjarráði um málefni héraðsfréttablaðsins Eystrahorns er ljóst að sveitarfélagið þarf að marka skýra afstöðu varðandi héraðsfréttamiðilinn Eystrahorn og ritstjórnarlegt sjálfstæði þar sem sveitarfélagið á lénið og hefur greitt fyrir hýsingu út árið 2026.Minnisblað forstöðumanns Menningarmiðstöðvar ásamt drögum af samningi lagt fram.
Bæjarráð felur forstöðumanni Menningarmiðstöðvar að ganga til samninga við útgefendur samkvæmt fyrirliggjandi samningsdrögum um notkun vefsins út árið 2026.
Samþykkt samhljóða.
5.
Samgönguáætlun 2026-2040
Málsnúmer 202512021
Drög að umsögn um samgönguáætlun lögð fram.Umsagnarfrestur er til og með 9. febrúar næstkomandi.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlögð drög að umsögn og felur bæjarstjóra að senda þau inn í samráðsgátt.
6.
Úthlutun byggðakvóta 2025-2026
Málsnúmer 202601010
Fengin var frestur til þess að skila óskum um sérreglur um byggðakvóta til 13. febrúar. Ósk sveitarfélgsins um sérreglur lagt fram .
Samþykkt samhljóða og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
7.
Dýpkun á Grynnslum 2026-2028
Málsnúmer 202601088
Lagt fram erindi frá Vegagerðinni þar sem óskað er eftir samþykki Hafnarstjórnar Hornafjarðarhafnar til að ganga til samninga við lægstbjóðanda í útboði vegna dýpkunar á Grynnslunum 2026 til 2028.Verkefnið felur í sér dýpkun að meðaltali rúmlega 650.000 m³ á ári yfir tímabilið, samtals tæplega 2 milljónir m³. Hafnarstjórn leggur áherslu á mikilvægi þess að höfnin, sem er önnur lífæð samfélagsins og lykilinnviður fyrir atvinnulíf og byggð, njóti loks raunverulegs fyrirsjáanleika varðandi dýpkun. Í samstarfi við Vegagerðina og sérfræðinga, meðal annars DHI, hefur verið unnið að ítarlegum greiningum sem sýna að sandburður á svæðinu er kerfisbundinn og að hefðbundin dýpkun er í eðli sínu bráðabirgðalausn sem undirstrikar mikilvægi áframhaldandi faglegs samtals og rannsókna um varanlegri lausnir.Hafnarstjórn samþykkti að gengið yrði til samninga við lægstbjóðanda, Boskalis Westminister Limited, í samræmi við niðurstöðu útboðsins og tillögu Vegagerðarinnar.
Bæjarráð vísar málinu til staðfestingar bæjarstjórnar.
8.
Fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar 2026
Málsnúmer 202601125
Lögð er fram fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar fyrir árið 2026.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við fjárhagsáætlunina og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
9.
Gjaldskrá Hornafjarðarhafnar 2026
Málsnúmer 202601092
Gjaldskrá Hornafjarðarhafnar lögð fram. Hækkun á gjaldskrá nemur 5% og hækkun á launalið gjaldskrár er 7%. Framvegis verður gjaldskrá bundin vísitölu neysluverðs og skal hún endurreiknuð árlega 1. janúar í samræmi við breytingar á vísitölunni.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við gjaldskránna og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
10.
Búfjársamþykkt
Málsnúmer 202504074
Búfjársamþykktt Sveitarfélagsins hefur verið uppfærð og er lögð hér fram til kynningar ásamt minnisblaði, umsögn bændasamtakanna og eldri samþykkt til samanburðar.
Verkefnastjóra umhverfis- og skipulagsmála falið að vinna málið áfram.
11.
Framkvæmd - Hagahverfi (ÍB5), innviðauppbygging, undirbúningur
Málsnúmer 202407010
Útboðsgögn vegna útboðs fyrir jarðframkvæmdir í Hagahverfi, eða nánar tiltekið Kletthaga og Lambhaga lögð fram.
Bæjarráð felur skipulagsfulltrúa að auglýsa útboðið.
12.
Framkvæmd: Sindrabær breytingar 2024
Málsnúmer 202406005
Útboðsgögn vegna örútboðs á tæknimálum í Sindrabæ lögð fram.
Bæjarráð felur umsjónarmanni fasteigna að auglýsa örútboðið.
13.
Fyrirhugaðar breytingar Heilbrigðiseftirlitsins
Málsnúmer 202510018
Í samráðsgátt stjórnvalda hefur verið birt frumvarp til laga undir formerkjum um einföldun eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (sjá mál nr. S-3/2026: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum https://island.is/samradsgatt/mal/4150). Frumvarpið miðar að því að leggja niður heilbrigðisnefndir sveitarfélaga og flutning á opinberu eftirliti með starfs- og skráningarskyldri atvinnustarfsemi yfir til stofnana ríkisins
Bæjarráð óskar eftir fundi með framkvæmdarstjóra HAUST.
14.
Umsögn um 312.mál alþingis- Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.)
Málsnúmer 202601156
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar 312. mál - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.)Umsagnir skal senda í gegnum umsagnagátt Alþingis.Frestur til að senda inn umsögn er til og með 11. febrúar nk.
Sviðsstjóra velferðarsviðs falið að gera drög að umsögn.
15.
Umsögn um mál 305 frá velferðarnefnd alþingis- Framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn
Málsnúmer 202601158
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar 305. mál - Framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausnUmsagnir skal senda í gegnum umsagnagátt Alþingis.Frestur til að senda inn umsögn er til og með 11. febrúar nk.
Sviðsstjóra velferðarsviðs falið að meta þörf á umsögn um málið.
16.
Umsögn um mál 307 frá umhverfis- og samgöngunefnd alþingis- Breyting á þingsályktun nr.24152 um áætlun og vernd og orkunýtingu landssvæða
Málsnúmer 202601159
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 307. mál - Breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun og vernd og orkunýtingu landssvæðaUmsagnir skal senda í gegnum umsagnagátt Alþingis.Frestur til að senda inn umsögn er til og með 11. febrúar nk.
Málinu er frestað til næsta fundar.
17.
Umsögn um drög að frumvarpi til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga
Málsnúmer 202601160
Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 15/2026 - "Drög að frumvarpi til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga".Umsagnarfrestur er til og með 08.02.2026.
Bæjarráð felur hafnarstjóra að kanna áhrif frumvarpsins á Sveitarfélagið.
18.
Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Málsnúmer 202601163
Fundargerð stjórn Sambands íslenskra sveitarfélag númer 922 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
19.
Uppbyggingasjóður SASS - nýtt fyrirkomulag
Málsnúmer 202601121
Á fundi atvinnu- og menningarmálanefndar var eftirfarandi bókun gerð:Atvinnu- og menningarmálanefnd lýsir miklum vonbrigðum yfir þessari ákvörðun stjórnar SASS og skömmum fyrirvara breytinganna, sérstaklega með tilliti til þeirra sem höfðu áform um að sækja um styrki á vormánuðum vegna sumar- og haust verkefna. Fyrirséð er að þessi ákvörðun muni valda neikvæðum áhrifum á framgang mikilvægra verkefna á Suðurlandi.Uppbyggingarsjóður er mikilvægur stuðningur við atvinnuþróun og menningarstarf á svæðinu. Nefndin telur æskilegt að breytingar af þessu tagi séu kynntar með lengri fyrirvara, þannig að umsækjendur hafi svigrúm til að aðlaga áætlanir sínar að nýju fyrirkomulagi.Nefndin skorar því á stjórn SASS að fresta fyrirhuguðum breytingum þannig að tvær úthlutanir verði í ár, en nýtt fyrirkomulag verði tekið í gagnið árið 2027.
Bæjarráð tekur undir bóku atvinnu- og menningarmálanefndar og bendir einnig á að í niðurstöðum þjónustukönnunar Uppbyggingarsjóðs Suðurlands vegna vorúthlutunnar vorið 2024 (sjá á vef SASS), kom fram að skoðun svarenda á fjölda úthlutuna á ári var skýr, 91% umsækjenda kjósa 2 úthlutanir á ári og eru þessar niðurstöður sambærilegar fyrri árum. Því hvetur bæjarráð stjórn SASS til þess að endurskoða fyrirkomulagið sbr. bókun atvinnu- og menningarmálanefndar.