Bæjarráð Hornafjarðar
1209. fundur
17. febrúar 2026
kl.
10:00
-
12:25
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Velferðarnefnd - 48
Fundargerð velferðarnefndar númer 48 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
2.
Íbúaráð - Suðursveit og Mýrar - 11
Fundargerð íbúaráðs Suðursveitar og Mýra númer 11 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
3.
Íbúaráð - Nes og Lón - 11
Fundargerð Nesja og Lóns númer 11 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
4.
Málefni héraðsfréttablaðsins Eystrahorns
Forstöðumaður mennningarmiðstöðvar og útgefandi Eystrahorns koma á fund til þess að ræða málin.
Bæjarstjóra falið að undirrita samkomulag við útgefendur Eystrahorns í samræmi við umræður á fundinum.
5.
Barnaverndarþjónusta Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Kynning á starfsemi þjónustusvæðis Sveitarfélagsins Hornafjarðar í Barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Farið er yfir lykiltölur fyrir árið 2025 og samanburð frá árinu 2020.
Bæjarráð þakkar góða yfirferð á stöðu barnaverndarþjónustu í sveitarfélaginu.
6.
Heilsuþjálfun í Hornafirði - Spretthópur um heilsueflingu eldri borgara
Ein af aðgerðum ársins 2026 í framtíðarsýn um málefni aldraðra í Sveitarfélaginu Hornafirði er að setja á fót spretthóp sem skal framkvæma úttekt á úrræðum heilsueflingar eldri borgara í sveitarfélaginu. Starfsmenn hafa unnið að því að gera drög að vinnu spretthópsins og leggja nú fram minnisblað þess efnis ásamt drögum að erindisbréfi.
Sviðsstjóra velferðarsviðs er falið að leggja fram uppfært erindisbréf á næsta fundi bæjarráðs í samræmi við umræður á fundinum.
7.
Stefna í málefnum fatlaðs fólks 2027-2035
Unnið er að stofnun vinnuhóps um stefnumótun í málefnum fatlaðs fólks. Lögð eru fram drög að erindisbréfi fyrir vinnuhópinn.
Sviðsstjóra velferðarsviðs er falið að vinna að undirbúningi fyrir stefnumótunina sem áætlað er að hefjist næsta haust að loknum kosningum.
8.
Frístundaakstur 2026
Minnisblað sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs um frístundaakstur lagt fram.
Bæjarráð samþykkir tillögu að breyttu fyrirkomulagi á skóla- og frístundaakstri. Sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs falið að vinna málið áfram.
9.
umsókn um endurnýjun á æfingatækjum í eigu bæjarfélagsins Hornafjarðar fyrir hönd leigutaka
S.S. Sport sækir um fjármagn til endurnýjunar á tækjum sem eru í eigu sveitarfélagsins og eru nýtt í Sporthöllinni.
Sviðsstjóra fræðslu- og frístundanefndar falið að vinna málið áfram og koma með tillögu og mat á fjárhagslegum áhrifum á næsta fund bæjarráðs.
10.
Styrkbeiðni vegna endurbóta á félagsheimili í Stekkhól
Hestamannafélagið Hornfirðingur sækir um styrk hjá Sveitarfélaginu Hornafirði að upphæð 8.340.000 kr. vegna endurbóta á félagsheimili sínu að Fornustekkum í Nesjum.
Fjármálastjóra falið að gera mat á fjárhagslegum áhrifum.
11.
Krafa um viðurkenningu ábyrgðar og greiðslu vegna tafa á deiliskipulagi og fjártjóns
Þann 5. febrúar síðastliðinn barst sveitarfélaginu krafa frá Marina Travel ehf. um viðurkenningu ábyrgðar og greiðslu vegna tafa á deiliskipulagi og fjártjóns. Lagt er fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs með tímalínu í málinu auk álits lögmanns.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara kröfu Marina Travel ehf.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
12.
Framlög til stjórnmálaflokka
Staðfesting á skráningu Kex framboðsins sem stjórnmálasamtök lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
13.
Fyrirhugaðar breytingar Heilbrigðiseftirlitsins
Samtök heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi hafa sent inn umsögn í samráðsgátt um fyrirhugaðar breytingar á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum og eru hér lögð fram.
Sviðsstjóra stjórnsýslusviðs er falið að senda inn umsögn um málið.
14.
Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánsjóðs sveitarfélaga
Lánasjóður sveitarfélaga auglýsir eftir framboðum í stjórn. Aðalfundur félagsins er 20. mars næstkomandi.
Lagt fram til kynningar.
15.
Fundur með ISAVIA
Fundur var haldin með framkvæmdastjóra ISAVIA ásamt umdæmisstjóra um málefni tengd flugsamgöngum í sveitarfélaginu. Fundargerð og glærukynning frá ISAVIA lagt fram.
Bæjarráð þakkar fulltrúum ISAVIA fyrir góðan og upplýsandi fund um málefni flugvalla og flugsamgangna í sveitarfélaginu.
Á fundinum var meðal annars farið yfir samstarf ISAVIA og Slökkviliðs Hornafjarðar, þar sem er stefnt að formlegum samningi um sameiginlegar æfingar og þjálfun. Þá var staðfest að slökkvibúnaður á flugvellinum hefur verið uppfærður og næsta formlega flugslysaæfing áætluð árið 2028.
Einnig var rætt um öryggisinnviði í Öræfum og mögulega staðsetningu björgunarmiðstöðvar í tengslum við flugvelli á svæðinu. Unnið er að þarfagreiningu og frekara samráð við viðbragðsaðila og íbúa er fyrirhugað áður en ákvörðun um staðsetningu liggur fyrir. Ljóst er að málið krefst frekari vinnu, samráðs og aðkomu stjórnvalda.
Varðandi Hornafjarðarflugvöll kom fram að flugið sé stöðugt og þjóni 8?10 þúsund farþegum árlega. Undanfarin ár hafa verið gerðar umtalsverðar umbætur á flugvellinum, m.a. á flugbraut, ljósabúnaði, slökkvibúnaði og veðurmælingum.
Bæjarráð þakkar fulltrúum ISAVIA fyrir jákvætt samtal og leggur áherslu á áframhaldandi gott samstarf.
Á fundinum var meðal annars farið yfir samstarf ISAVIA og Slökkviliðs Hornafjarðar, þar sem er stefnt að formlegum samningi um sameiginlegar æfingar og þjálfun. Þá var staðfest að slökkvibúnaður á flugvellinum hefur verið uppfærður og næsta formlega flugslysaæfing áætluð árið 2028.
Einnig var rætt um öryggisinnviði í Öræfum og mögulega staðsetningu björgunarmiðstöðvar í tengslum við flugvelli á svæðinu. Unnið er að þarfagreiningu og frekara samráð við viðbragðsaðila og íbúa er fyrirhugað áður en ákvörðun um staðsetningu liggur fyrir. Ljóst er að málið krefst frekari vinnu, samráðs og aðkomu stjórnvalda.
Varðandi Hornafjarðarflugvöll kom fram að flugið sé stöðugt og þjóni 8?10 þúsund farþegum árlega. Undanfarin ár hafa verið gerðar umtalsverðar umbætur á flugvellinum, m.a. á flugbraut, ljósabúnaði, slökkvibúnaði og veðurmælingum.
Bæjarráð þakkar fulltrúum ISAVIA fyrir jákvætt samtal og leggur áherslu á áframhaldandi gott samstarf.
16.
Beiðni um ferðaheimild vegna funda kjörinna fulltrúa
Óskað er eftir ferðaheimild vegna þátttöku á málþingi Byggðastofnunnar um áhrif loftslagsbreytinga. Einnig er óskað eftir greiðslu akstursstyrks vegna fundar varamanns í dreifbýli.
Bæjarráð veitir heimild til greiðslu og styðst með því við 7.gr. samþykkt um kjör kjörinna fulltrúa og samþykkir því greiðslu sem nemur 1,5% af viðmiðunarupphæð fyrir setinn fund.
Bæjarráð veitir heimild til greiðslu aksturstyrks skv. 11.gr. sömu samþykktar.
Samþykkt samhljóða.
Bæjarráð veitir heimild til greiðslu aksturstyrks skv. 11.gr. sömu samþykktar.
Samþykkt samhljóða.
17.
Skýrsla bæjarstjóra um ýmsa fundi við ráðuneyti og stofnanir
Lagt fram til kynningar minnisblað bæjarstjóra um fundi sem haldnir hafa verið undanfarið með Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Vegagerðinni, FSRE og Fjármála- og efnahagsráðuneytinu vegna verkefna og hagsmuna sveitarfélagsins.Rætt var um eflingu bráðaviðbragðs og mögulegt heilsugæslusel í Öræfum, flýtingu endurbyggingar Loðnubryggju, stöðu framkvæmda við nýtt hjúkrunarheimili á Höfn og endanlegt fjárhagslegt uppgjör og framtíðareignarhald vegna þess verkefnis.
Bæjarráð lýsir ánægju með framgang mála og þann lausnamiðaða farveg sem viðræður eru komnar í, og leggur áherslu á að áfram verði unnið markvisst að því að tryggja hagsmuni sveitarfélagsins og íbúa þess.