Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1213. fundur
17. mars 2026 kl. 10:00 - 11:35
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Velferðarnefnd - 49
Málsnúmer 2603003F
Fundargerð velferðarnefndar númer 49 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
2.
Breytingar á lögum um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga
Málsnúmer 202602173
Alþingi samþykkti á liðnu ári ný heildarlög um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Meðal þeirra breytinga sem ný lög fela í sér er að framlög sjóðsins vegna málefna fatlaðs fólks skuli reiknuð á grundvelli samræmds mats á stuðningsþörf (SIS) á landsvísu. Óvissa hefur verið með heimild sveitarfélaganna til þess að gera SIS-mat að skilyrði fyrir veitingu þjónustu. Nú hefur félags- og húsnæðisráðuneytið aflað lögfræðiálits og álitsgerð um málið lögð fyrir velferðarnefnd.Málið hefur áður verið til umfjöllunar á 49. fundi velferðarnefndar sveitarfélagsins sem vísaði því til frekari umræðu í bæjarráði.
Bæjarráð leggur til að engar breytingar verði gerðar á reglum sveitarfélagsins um stoðþjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
3.
Framkvæmd: Sindrabær breytingar 2024
Málsnúmer 202406005
Lögð eru fram gögn vegna tilboðs í hljóð og mynd í Sindrabæ.Kostnaðaráætlun verkefnisins hljóðaði upp á 30.960.639 kr.Eitt tilboð barst í verkið frá Atendi sem hljóðaði upp á 33.344.908 kr. og var 107.70% af kostnaðaráætlun.
Umsjónarmanni fasteigna falið að ganga til samninga við Atendi.
Samþykkt samhljóða.
4.
Aðalfundur Félags slökkviliðisstjóra á Höfn 2027
Málsnúmer 202603061
Óskað hefur verið eftir því að aðalfundur félags slökkviliðsstjóra verðu haldin á Höfn árið 2027. Minnisblað slökkviliðsstjóra lagt fram ásamt dagskrá frá aðalfundi félagi slökkviliðsstjóra frá árinu 2022 sem haldin var á Húsavík.
Slökkviliðsstjóra falið að vinna leggja fram frekari upplýsingar.
5.
Samþykkt um kjör fulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202412030
Samþykkt um kjör fulltrúa sveitarfélagsins vegna funda og ráðstefna lögð fram til umræðu.
Sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs falið að vinna málið áfram.
6.
Samningur við Hestamannafélagið Hornfirðing
Málsnúmer 202102075
Eignaskiptayfirlýsing vegna Fornustekka reiðskemmu ásamt minnisblaði sviðsstjóra fræðslu og frístundasviðs um málið lagt fram.
Bæjarstjóra falið að undirrita eignaskiptayfirlýsinguna.
7.
Húsnæðisáætlun - Hornafjörður 2026
Málsnúmer 202512004
Húsnæðisáætlun 2026 lögð fram.
Starfsmönnum falið að vinna málið áfram.
8.
Mótun og fyrirkomulag íbúaráða
Málsnúmer 202601142
Íbúaráð hafa öll fjallað um mótun og fyrirkomulag íbúaráðanna, framlagt er minnisblað um samantekt á umræðum og tillögur að aðgerðum.
Deildarstjóra skrifstofu- og þjónustu falið að skipuleggja sameiginlegan fund íbúaráða sveitarfélagsins með bæjarráði þar sem farið verður yfir tillögur að endurskoðun erindisbréfs ráðanna.
9.
Beiðni um rekstrarstyrk Samkór Hornafjarðar
Málsnúmer 202603037
Samkór Hornafjarðar sækir um rekstrarstyrk að upphæð 300.000 kr.
Bæjarráð samþykkir að veita rekstrarstyrk að upphæð 300.000 kr. til þriggja ára.
Fjármálastjóra falið að ganga frá samning við félagið.
10.
Umsögn um útgáfu tækifærisleyfis til áfengisveitinga- Sjómannadagsskemmtun
Málsnúmer 202603064
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við útgáfu á tækifærisleyfi fyrir áfengisveitingar á Sjómannadagsball.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
11.
Umsögn um leyfi til reksturs veitingastaðar í flokki II - A veitingahús Hafnarbraut 4, 780 Höfn, F2180643
Málsnúmer 202602138
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna leyfis til reksturs veitingastaðar í flokki II-A veitingahús, hámarksfjöldi gesta 170 manns. Slökkviliðið fellst á að leyfi verði veitt miðað við 70 manns.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn með sömu skilmálum og slökkviliðsstjóri gerir.
12.
Íþróttahús - hönnun
Málsnúmer 202402127
47. fundargerð stýrihóps um íþróttamannvirki lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
13.
Úthlutun byggðakvóta 2025-2026
Málsnúmer 202601010
Tillögur Sveitarfélagsins um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026 var skilað til innviðaráðuneytisins þann 12.02.2026. Málið hefur verið tekið til efnislegrar meðferðar og fallist á umbeðnar tillögur Sveitarfélagsins. Bréf frá ráðuneytinu um niðurstöðuna lagt fram.
Lagt fram til kynningar.
14.
Samstarf um verkefni tengt loftslagsaðlögun sveitarfélaga
Málsnúmer 202603060
Orkídea óskar eftir þátttöku Sveitarfélagsins Hornafjarðar í evrópska rannsóknar- og þróunarverkefninu ACCELERATE, sem styrkt er af Horizon Europe áætlun Evrópusambandsins. Markmið verkefnisins er að þróa og prófa aðferðir sem auka aðlögunargetu samfélaga gagnvart loftslagsbreytingum í samstarfi stjórnvalda, atvinnulífs, fræðasamfélags og íbúa.Á Suðurlandi leiða Orkídea og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) verkefnið í samstarfi við þátttökusveitarfélög. Hlutverk sveitarfélagsins myndi m.a. felast í þátttöku í vinnustofum og samráði, miðlun upplýsinga og þátttöku í prófun lausna sem þróaðar verða innan verkefnisins. Þátttakan felur ekki í sér beinar fjárhagslegar skuldbindingar fyrir sveitarfélagið.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að taka þátt í verkefninu.
15.
Frumvarp til nýrra sveitarstjórnarlaga
Málsnúmer 202603063
Drög að nýjum sveitarstjórnarlögum hafa verið lögð fram á Alþingi og eru nú til umfjöllunar hjá umhverfis- og samgöngunefnd. Nefndin hefur kallað eftir umsögnum um frumvarpið og er umsagnarfrestur til 20. mars nk.
Lagt fram til kynningar.
16.
Fundargerðir Nýheima Þekkingarseturs 2026
Málsnúmer 202601007
Fundargerð Nýheima þekkingarseturs númer 157 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
17.
Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Málsnúmer 202601163
Fundargerð 994. fundar stjórnar Sambandsins frá 3. mars 2026 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
18.
Umsögn - 499.mál - varnir gegn sjóflóðum og skriðuföllum og Vegagerðin, framkvæmdastofnun samgöngumála (markmið nýting eigna, framkvæmdaumsjón)
Málsnúmer 202603021
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs leggur fram drög að umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum og Vegagerðin, framkvæmdastofnun samgöngumála (markmið, nýting eigna, framkvæmdaumsjón).
Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að skila inn umsögninni.

Samþykkt samhljóða.