Bæjarráð Hornafjarðar
1216. fundur
14. apríl 2026
kl.
10:00
-
12:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 113
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar númer 113 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 283
Fundargerð Hafnarstjórnar númer 283 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
3.
Fræðslu- og frístundanefnd - 135
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar númer 135 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
4.
Fyrirspurn vegna búningsaðstöðu og stuðnings fyrir börn með sérþarfir í sundi
Minnisblað sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs vegna fyrirspurnar um búningsklefa fyrir börn með sérþarfir lagt fram.
Lagt fram til kynningar.
5.
Samstarfssamningur við Rannsóknarsetur Háskóla Íslands
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs leggur fram drög að styrktarsamningi við Rannsóknarsetur Háskóla Íslands ásamt leigusamningi um skrifstofurými.
Sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs falið að leggja fram lokaútfærslu að samning í samræmi við umræður á fundinum.
6.
Undirbúningur framkvæmdar - Fiskhóll, endurbætur
Óskað er samþykkis bæjarráðs til að hefja útboðsferli vegna endurbóta á Fiskhól - gatnagerð og lagnir. Lagt er fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs vegna kostnaðaráætlunar.
Bæjarráð veitir heimild til þess að bjóða verkið út.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
7.
Undirbúningur framkvæmdar - Silfurbraut, endurbætur
Óskað er samþykkis bæjarráðs til að hefja útboðsferli vegna endurbóta á Silfurbraut - gatnagerð og lagnir. Lagt er fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs vegna kostnaðaráætlunar.
Bæjarráð veitir heimild til þess að bjóða verkið út.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
8.
Framkvæmd Hafnarskóli Endurbætur þak
Sveitarfélagið hefur leitað tilboða í verkið Framkvæmd Hafnarskóli Endurbætur þak.Kostnaðaráætlun verkefnisins er 12.533.000 kr.Tvö tilboð bárust í verkið:Mikael ehf. að upphæð 26.945.660 kr. eða 215% af kostnaðaráætlunBeinlínis ehf. að upphæð 9.796.709 kr. eða 78,17% af kostnaðaráætlun
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda, Beinlínis ehf. og felur starfsmönnum umhverfis- og framkvæmdasviðs að ganga til verksamnings.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
9.
Umferðaröryggi á bryggjusvæði
Innsent erindi frá Skinney Þinganes um umferðaröryggi á bryggjusvæði við löndun. Lagt er til að sett verði upp einfaldar lokanir á svæðinu á meðan að löndun stendur yfir, að tryggt verði að aðgengi fyrir viðbragðsaðila sé óhindrað og að útfærsla verði unnin í nánu samráði við sveitarfélagið og aðra hlutaðeigandi aðila.
Bæjarráð er jákvættt fyrir erindinu og vísar því til umfjöllunar í hafnarstjórn.
10.
Ósk um kaup á hlutafé í Kornfélagi Austur- Skaftfellinga
Stjórn Kornfélags Austur- Skaftfellinga hyggist auka hlutafjár félagsins úr 2,5 milljónum í allt að 10 milljónir með það í huga að endurnýja þreskivél félagsins. Óskað er eftir því að sveitarfélagið kaupi hlutafé í félaginu fyrir allt að 6 milljónir króna.
Bæjarráð þakkar fyrir erindi Kornfélags Austur?Skaftfellinga varðandi hlutafjáraukningu vegna kaupa á þreskivél.
Bæjarráð telur ekki hlutverk sveitarfélagsins að leggja fram hlutafé í félögum af þessu tagi.
Jafnframt lýsir bæjarráð yfir jákvæðri afstöðu til verkefnisins enda um að ræða mikilvæga og atvinnuskapandi fjárfestingu fyrir landbúnað heima í héraði.
Bæjarráð beinir því til forsvarsmanna að hafa samband við byggða- og nýsköpunarfulltrúa sveitarfélagsins m.t.t. fjármögnunarmöguleika svo sem styrkja.
Bæjarráð telur ekki hlutverk sveitarfélagsins að leggja fram hlutafé í félögum af þessu tagi.
Jafnframt lýsir bæjarráð yfir jákvæðri afstöðu til verkefnisins enda um að ræða mikilvæga og atvinnuskapandi fjárfestingu fyrir landbúnað heima í héraði.
Bæjarráð beinir því til forsvarsmanna að hafa samband við byggða- og nýsköpunarfulltrúa sveitarfélagsins m.t.t. fjármögnunarmöguleika svo sem styrkja.
11.
Stjórnsýsluskoðun KPMG 2025
Lögð er fram lokaskýrsla um stjórnsýsluskoðun KPMG vegna ársins 2025.
Lagt fram til kynningar.
12.
Kaup á eignaumsjónarkerfi
Óskað er eftir um heimild til kaupa á eignaumsjónarkerfi til þess að halda utan um framkvæmdir og viðhald á fasteignum. Gert er ráð fyrir að heildarkostnaður sveitarfélagsins við innleiðingu fyrsta fasa verði um 2,8 milljónir með vsk. og síðan er mánaðargjald að upphæð 167.400 m. vsk. Fjárhagslegt mat lagt fram.
Fjármálastjóra falið að kanna hvort að beiðnin rúmist innan fjárheimilda sviðsins.
13.
Beiðni um styrk vegna forvarnardags ungra ökumanna
FAS, í samstarfi við lögreglu og slökkvilið á Hornafirði, hyggst standa fyrir forvarnadegi fyrir unga ökumenn þann 5. maí 2026. Markmið verkefnisins er að efla vitund um umferðaröryggi, draga úr áhættuhegðun í akstri og auka þekkingu á réttum viðbrögðum við neyðartilvikum.Verkefnið beinist að nemendum í 10. bekk grunnskóla og nemendum FAS og felur í sér bæði fræðslu og verklegar æfingar sem veita raunhæfa innsýn í afleiðingar umferðarslysa og mikilvægi ábyrgrar hegðunar í umferðinni.Óskað er eftir styrk frá sveitarfélaginu að upphæð 230.000 kr til að standa undir hluta kostnaðar verkefnisins, með það að markmiði að stuðla að auknu öryggi í umferðinni og efla forvarnir meðal ungs fólks.
Bæjarráð samþykkir að veita styrkinn. Málinu vísað til fjármálastjóra.
14.
Skuld við Íbúðafélag Hornafjarðar
Trúnaðarmál til kynningar.
15.
Sumarstarf á umhverfis- og framkvæmdarsviði
Umhverfis- og framkvæmdasvið óskaði eftir heimild til að ráða sumarstarfsmann til starfa á komandi sumri. Fjármálastjóri hefur yfirfarið launaáætlun sviðsins ásamt verktakakostnaði og í ljós breytinga á starfsmannamálum innan sviðsins á árinu er svigrúm til ráðningar innan gildandi fjárhagsáætlunar.
Bæjarráð veitir heimild til þess að auglýsa eftir sumarstarfsmanni þar sem starfið rúmast innan launaáætlunar sviðsins.
16.
Tilhögun síðustu funda fastanefnda vegna komandi sveitarstjórnarkosninga
Lögð er fram tillaga fjármálastjóra um tilhögun síðasta funda fastanefnda á yfirstandandi kjörtímabili.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagða tillögu.
17.
Hofgarður Endurbætur
Fjárhagslegt mat vegna beiðni um aukið fjárframlag vegna uppfærðrar kostnaðaráætlunar fyrir framkvæmdir við eldhús í Hofgarði lagt fram.
Málinu vísað til viðaukagerðar.
18.
Krókheysisbíll - tankbíll
Fjárhagslegt mat vegna beiðni um aukið fjárframlag til kaupa á tankbifreið lagt fram.
Bæjarstjóra falið að afla frekari upplýsinga um málið.
19.
Íþróttahús - hönnun
Fundargerðir stýrihóps um nýtt íþróttahús númer 48 og 49 lagðar fram.
Lagt fram til kynningar.
20.
Samráðsfundur um endurskoðun byggðaráætlunar
Boðað hefur verið til samráðsfundar/vinnustofu á vegum Innviðaráðuneytisins og Byggðastofnunar, í samstarfi við SASS, vegna endurskoðunar byggðaáætlunar. Fundurinn fer fram á Teams þann 21. apríl nk.Tilgangur fundarins er að kynna fyrstu drög að endurskoðaðri byggðaáætlun, með sérstakri áherslu á aðgerðaáætlun hennar, og skapa vettvang fyrir skoðanaskipti. Athugasemdir og ábendingar sem fram koma munu nýtast við áframhaldandi vinnu, m.a. við gerð hvítbókar sem sett verður í samráðsgátt stjórnvalda.Óskað er eftir að sveitarfélögin sendi amk tvo fulltrúa á fundinn til þess að taka þátt í þessar vinnu. Einnig er mikilvægt að fulltrúar ungmennaráða sveitarfélaganna taki þátt í fundinum.
Eyrún Fríða Árnadóttir og Ásgerður Kristín Gylfadóttir mæta á fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.
21.
Fundargerðir Nýheima Þekkingarseturs 2026
Fundargerð stjórnar Nýheima þekkingarseturs númer 158 og fundargerð ársfundar lagðar fram.
Lagt fram til kynningar.
22.
Umsögn um mál frá nefnda- og greiningasviði Alþingis.582.mál - Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits)
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 582. mál - Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits)Frestur til að senda inn umsögn er til og með 16. apríl nk.
Lagt fram til kynningar.
23.
Stefna um opinbera þjónustu
Fyrir liggja drög að stefnu um opinbera þjónustu, sem unnin hefur verið af fjármála- og efnahagsráðuneytinu í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga. Stefnan tekur til þjónustu bæði ríkis og sveitarfélaga og leggur áherslu á aukna samræmingu þjónustu þvert á stjórnsýslustig, með það að markmiði að efla gæði, aðgengi og hagkvæmni.Stefnan byggir á niðurstöðum fyrra samráðs og er ætlað að leysa af hólmi gildandi stefnu um stafræna þjónustu frá árinu 2021. Samhliða er áfram lögð megináhersla á stafrænar lausnir, með hliðsjón af mikilvægi fjölbreyttra samskiptaleiða.Næsta skref er gerð aðgerðaáætlunar sem fylgja mun stefnunni, og er óskað eftir ábendingum frá sveitarfélögum þar að lútandi.
Lagt fram til kynningar.
24.
Umsögn um mál frá nefnda- og greiningasviði Alþingis. 568. mál - Stofnun atvinnuveganna
Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar 568. mál - Stofnun atvinnuvegannaFrestur til að senda inn umsögn er til og með 15. apríl nk.
Lagt fram til kynningar.
25.
Fundartími bæjarstjórnar
Lagt er til að fundur bæjarstjórnar sem áætlaður er 7. maí verði færður til 12. maí nk.
Samþykkt samhljóða.