Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1217. fundur
21. apríl 2026 kl. 10:00 - 12:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Velferðarnefnd - 50
Málsnúmer 2604001F
Fundargerð velferðarnefndar númer 50 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
2.
Fræðslu- og frístundanefnd - 136
Málsnúmer 2604004F
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar númer 136 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
3.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 114
Málsnúmer 2604007F
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar númer 114 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
4.
Ársskýrsla 2025
Málsnúmer 202602094
Árskýrsla velferðarsviðs 2025 lögð fram til kynningar. Í skýrslunni er farið yfir helstu verkefni og tölfræði varðandi umfang þjónustunnar árið 2025. Fjölmörg verkefni voru unnin á árinu og má þar á meðal nefna metnaðarfulla framtíðarsýn í málefnum aldraðra fyrir árin 2026-2034, verkefni til eflingar fjölmenningar og inngildingar svo sem fjölmenningarbíó, framkvæmdaáætlun Barnaverndarþjónustu Fjarðarbyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar og þá var 2025 fyrsta árið þar sem akstursþjónusta aldraðra og fatlaðs fólks var formlega tekin í notkun. Sviðsstjóri fer yfir árskýrsluna, þau verkefni og umfang þjónustunnar eins og hún birtist í tölfræðinni.
Lagt fram til kynningar.
5.
Aukið samstarf Grunnskólans í Hofgarði við Grunnskóla Hornafjarðar
Málsnúmer 202604033
Lagt er fram minnisblað svisðsstjóra fræðslu og frístundasviðs vegna fyrirhugaðs fyrirkomulags skólasóknar elstu nemenda í Hofgarði, þar sem gert er ráð fyrir að þeir stundi nám að hluta við Grunnskóla Hornafjarðar. Breytingin felur í sér aukinn kostnað vegna skólaaksturs.
Sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs falið að vinna málið áfram.
6.
Umsókn um lóð Ósland lóð K (Sandeyri 10)
Málsnúmer 202002027
Lóðirnar að Sandeyri 8 og 10 hafa verið afturkallaðar og lagði umhverfis - og skipulagsnefnd til að umræddum lóðum verði ekki úthlutað í ljósi yfirstandandi áforma um nýjan miðbæ á Höfn.
Bæjarráð tekur undir með umhverfis- og skipulagsnefnd um að lóðinni Sandeyri 8 verði ekki úthlutað fyrr en afstaða íbúa til uppbyggingar á nýjum miðbæ liggur fyrir.
7.
Fyrirspurn til umhverfis- og skipulagsnefndar - hleðslustöð við Nettó
Málsnúmer 202510067
Orka náttúrunnar ohf hefur sótt um aðstöðu til þess að setja upp hleðslustöð við Litlubrú 1 (Nettó). Erindið hefur fengið umfjöllun í ungmennaráði og umhverfis- og skipulagsnefnd sem vísaði málinu til umræðu í bæjarráði.
Starfsmönnum á skipulagssviði falið að vinna málið áfram og leggja fram uppfærð gögn.
8.
Krókheysisbíll - tankbíll
Málsnúmer 202603091
Svar frá slökkviliðsstjóra um samnýtingu tankbíla lagt fram.
Málinu vísað til viðaukagerðar.
9.
Útboð/Verðkönnun Endurbætur Hofgarður
Málsnúmer 202604062
Lagt fram minnisblað starfsmanna umhverfis- og framkvæmdasviðs vegna framkvæmda á Hofgarði. Óskað er heimildar bæjarráðs til að fara í útboðsferli.
Bæjarráð veitir heimild til þess að hefja útboðsferli og vísar málinu til viðaukagerðar.
Samþykkt samhljóða.
10.
Sjálfboðaliðar vegna jöklaleiðar
Málsnúmer 202604063
Minnnisblað verkefnastjóra umhverfis- og skipulagsmála vegna vinnu við Jöklaleiðina lagt fram.
Starfsmanni falið að afla frekari upplýsinga.
11.
Atvikaskráning kjörinna fulltrúa
Málsnúmer 202604043
Umræður um atvikaskráningu kjörinna fulltrúa í kjölfar umræðna á bæjarstjórnarfundi.
Mannauðsstjóra falið að afla upplýsinga hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga hvort unnið hafi verið með þann þátt í greiningarvinnu á starfsaðstæðum kjörinna fulltrúa þar sem áreiti, ofbeldi og einelti kemur fyrir.
12.
Samþykkt um kjör fulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202412030
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs leggur fram tillögu að nýrri samþykkt um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa ásamt minnisblaði um þóknun ungmennaráða.
Sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs falið að vinna málið áfram.
13.
Samstarfssamningur við Rannsóknarsetur Háskóla Íslands
Málsnúmer 202507056
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs leggur fram samning við Rannsóknarsetur Háskóla Íslands um fjárframlag og skrifstofuaðstöðu ásamt leigusamningi og minnisblaði.
Bæjarráð samþykkir framlagða samninga og vísar málinu til viðaukagerðar.
Samþykkt samhljóða.
14.
Beiðni um rekstrarstyrk - Kvennakór Hornafjarðar
Málsnúmer 202604068
Kvennakór Hornafjarðar óskar eftir rekstrarstyrk að upphæð 300.000 kr.
Bæjarráð samþykkir að veita rekstrarstyrk að upphæð 300.000 kr. til þriggja ára.
Fjármálastjóra falið að ganga frá samning við félagið.
15.
Aukaaðalfundur Samtaka orkusveitarfélög
Málsnúmer 202604064
Boðað er til aukaaðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga sem haldinn verður í fjarfundi miðvikudaginn 29. apríl kl. 16:00.
Lagt fram til kynningar.
16.
Boð á ársfund Brákar íbúðafélags
Málsnúmer 202604066
Boðað er til ársfundar Brákar íbúðafélags hses. þriðjudaginn 28. apríl 2026 kl. 12:00
Bæjarstjóra falið að fara með atkvæði sveitarfélagsins á fundinum.
17.
Beiðni um frestun aðgerða
Málsnúmer 202604082
Lóðarhafa var send tilkynning um fyrirhugaða stöðvun framkvæmda þann 14. apríl 2026. Bréf barst frá lögmanni lóðarhafa 20. apríl 2026 þar sem óskað var að samkomulag yrðu gert um greiðslur og aðgerðum frestað.
Sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs falið að svara bréfinu í samráði við lögmann.