Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1220. fundur
12. maí 2026 kl. 10:00 - 11:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 284
Málsnúmer 2605001F
Fundargerð Hafnarstjórnar Hornafjarðar nr. 284 lögð fram.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 115
Málsnúmer 2604016F
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr. 115 lögð fram.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
3.
Íþróttahús - hönnun
Málsnúmer 202402127
Fundargerð stýrihóps um byggingu nýs íþróttahúss nr. 51 lögð fram.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
4.
Jarðefni fyrir rekstur urðunarstaðar
Málsnúmer 202604078
Þekjuefni innan urðunarstaðar er að ganga til þurrðar. Minnisblað verkefnastjóra umhverfismála um erindið er lagt fram.Umhverfis- og skipulagsnefnd vísaði beiðni um kaup á þekjuefni utan svæðisins til að tryggja áframhaldandi rekstur til bæjarráðs.
Bæjarráð felur skipulags- og byggingafulltrúa að vinna málið áfram, m.a. að fá frekari upplýsingar um framkvæmd og magn af efni sem þarf í verkefnið.

Samþykkt samhljóða.
5.
Styrkbeiðni vegna þátttöku í keppni í motorcross
Málsnúmer 202605046
Guðni Þór Valþórsson sækir um styrk fyrir hönd Hannesar Þórs Guðnasonar að fjárhæð 350.000 kr. vegna ferðakostnaðar og endurnýjunar öryggisbúnaðar fyrir æfingar og keppni í motocrossi.
Sveitarfélagið veitir árlega framlag til styrktar- og afrekssjóðs USÚ, en tilgangur sjóðsins er meðal annars að styrkja hornfirska afreksmenn til æfinga og keppni.

Bæjarráð telur mikilvægt að styðja við íþróttastarf og efnilega iðkendur í sveitarfélaginu en að mati bæjarráðs er eðlilegast að umsóknum af þessum toga sé beint til styrktar- og afrekssjóðs USÚ. Umsækjandi er hvattur til að sækja um styrk úr sjóðnum.

Samhljóða samþykkt að hafna umsókninni.



6.
Beiðni um fjárstyrk vegna uppsetningar farsímamasturs í Dalsnúp Þórisdal
Málsnúmer 202507034
Lagt er fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs um framgang málsins í framhaldi af bókun bæjarráðs frá 28. apríl 2026. Sviðsstjóri hefur, í samræmi við fyrirmæli bæjarráðs, leitað leiðbeininga hjá Fjarskiptastofu og aflað lögfræðilegs álits vegna styrkbeiðni Félags sumarhúsaeigenda í Stafafellsfjöllum. Í erindi félagsins er óskað eftir 10 milljóna króna styrk til lagningar rafmagns og ljósleiðara vegna nýs farsímamasturs Íslandsturna í Dalsnúp. Félagið hefur lagt fram tillögu að tveggja áfanga lausn til að tryggja öryggi á svæðinu og nýta samlegð við yfirstandandi framkvæmdir RARIK sumarið 2026.
Bæjarráð er jákvætt fyrir erindi Félags sumarhúsaeigenda í Stafafellsfjöllum um allt að 10 milljóna króna styrk vegna verkefnisins um að leggja innviði að farsímamastri í Dalsnúp, með fyrirvara um mat á fjárhagslegum áhrifum.

Bæjarráð telur málið hafa sérstöðu þar sem um er að ræða stóra sumarhúsabyggð og nærliggjandi svæði sem þjóna miklum fjölda fólks yfir sumartímann. Vegna lokunar 3G-kerfisins verður svæðið nánast sambandslaust, sem skapar hættu fyrir neyðarfjarskipti og brunavarnir. Mastrið myndi þjóna stóru svæði svo um er að ræða öryggismál. Tækifæri gefst til að nýta yfirstandandi framkvæmdir RARIK á svæðinu sumarið 2026, sem lækkar stofnkostnað innviðanna miðað við síðari tíma framkvæmd.

Bæjarráð felur fjármálastjóra að meta fjárhagsleg áhrif styrkveitingarinnar og leggja fram tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun ef þörf krefur.

Þá skorar bæjarráð á fjarskiptafyrirtæki landsins að stíga fram og tryggja nauðsynlega innviðauppbyggingu þannig að öryggi fólks um allt land sé tryggt þrátt fyrir lokun 3G-kerfisins.

Samþykkt samhljóða.

7.
Umsókn í Framkvæmdarsjóð aldraðra 2026
Málsnúmer 202602177
Að fenginni tillögu stjórnar Framkvæmdasjóðs aldraðra hefur félags- og húsnæðismálaráðherra ákveðið að veita framlag til endurbóta á hreinlætisaðstöðu, sameiginlegu rými, starfsmannaaðstöðu og aðengi í Ekru um allt að 20.603.042 kr. úr Framkvæmdasjóði aldraðra. Framlagið nemur 50% af áætluðum kostnaði samkvæmt umsókn.
Lagt fram til kynningar.
8.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Flokkur II C Veitingasala og greiðasala - Dalbraut 12 - Golfskálinn - F2180607
Málsnúmer 202605023
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við rekstrarleyfi í flokki II C Veitingasala og greiðasala - Dalbraut 12, hámarksfjöldi gesta 50 manns auk 20 manns í útirými.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
9.
Boðun á fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþings vegna máls nr.499
Málsnúmer 202605040
Óskað er eftir að Sveitarfélagið sendi fulltrúa á fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis þriðjudaginn 19. maí 2026 kl. 9:30 þar sem fjallað verður um mál nr. 499 - Varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum og Vegagerðin, framkvæmdastofnun samgöngumála.
Bæjarráð felur Eyrúnu Fríðu Árnadóttur, formanni bæjarráðs, að sækja fundinn.

Samþykkt samhljóða.
10.
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða 2023 (Múlagljúfur, Leiðarhöfði)
Málsnúmer 202310022
Verkefnastjóri umhverfis- og skipulagsmála leggur fram minnisblað vegna styrkbeiðni í fyrsta hluta framkvæmdar á Leiðarhöfða í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða.Sveitarfélagið hlaut ekki styrk að þessu sinni þar sem enn er opinn styrkur vegna Múlagljúfurs og nýlega búið að ljúka málum vegna styrkja úr sjóðnum allt aftur til ársins 2016.
Lagt fram til kynningar.
11.
Starfshópur um tillögur að framtíðarfyrirkomulagi náttúrustofa
Málsnúmer 202605039
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur ákveðið að skipa starfshóp sem falið er það hlutverk að leggja fram tillögur að framtíðarfyrirkomulagi náttúrustofa landsins. Vinna starfshópsins byggir á fyrra samráði sem ráðuneytið hefur átt við sveitarfélög sem standa að náttúrustofum um endurskoðun á stjórnskipulagi náttúrustofanna. Samráð var einnig haft við Náttúrufræðistofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
12.
Ársskýrsla náttúrufræðistofnunar 2025
Málsnúmer 202605041
Ársskýrsla Náttúrufræðistofnunar fyrir árið 2025 lögð fram.https://utgafa.natt.is/Arsskyrslur/NATT_Arsskyrsla_2025/
Ársskýrslan lögð fram til kynningar.
13.
Endurskoðun byggðakvótakerfisins
Málsnúmer 202605056
Innviðaráðuneytið hefur hafið heildarendurskoðun á byggðakvótakerfinu, þ.m.t. með það að markmiði að móta skýrari, markvissari og skilvirkari umgjörð um ráðstöfun þeirra aflaheimilda sem ætlaðar eru til stuðnings sjávarbyggðum. Óskað er eftir að sveitarfélagið skili inn umsögn um áhrif almenns og/eða sértæks byggðarkvóta á sveitarfélagið. Umsögnum skal skilað inn fyrir 26. maí nk.
Byggða- og nýsköpunarfulltrúa er falið að vinna málið áfram, m.a. fá sjónarmið frá aðilum sem eiga hagsmuna að gæta.

Samþykkt samhljóða.