Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1221. fundur
19. maí 2026 kl. 10:00 - 11:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
1.
Undirbúningur framkvæmdar - Malbikunarframkvæmdir 2026
Málsnúmer 202604055
Óskað er eftir samþykki bæjarráðs til að hefja útboðsferli vegna malbikunarframkvæmda og fara í fyrirspurnarferli vegna jöfnunarlags og kantsteina.Lagt er fram minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda vegna kostnaðaráætlunar.
Bæjarráð veitir heimild til að hefja útboðsferli vegna malbikunarframkvæmda og fara í fyrirspurnarferli vegna jöfnunarlags og kantsteina. Málinu vísað til meðferðar og eftir atvikum viðaukagerðar hjá fjármálastjóra.

Samþykkt samhljóða.
2.
Íþróttahús - hönnun
Málsnúmer 202402127
Stýrihópur um byggingu nýs íþróttahúss gerir tillögu að því að farið verði í verðkönnun, þar sem verkefnið er undir viðmiðunarfjárhæðum, í þeim tilgangi að afla hönnunarþjónustu verkfræðinga vegna endurnýjunar knattspyrnuvallar og hlaupabrautar á Sindravelli. Að lokinni verðkönnun verða framkomin tilboð lögð fyrir bæjarráð á síðari fundi til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fara í verðkönnun vegna hönnunarþjónustu verkfræðinga vegna endurnýjunar knattspyrnuvallar og hlaupabrautar á Sindravelli.
3.
Skjalastefna sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202605768
Lögð eru fram drög að uppfærðri skjalastefnu sveitarfélagsins til umræðu og kynningar. Fyrri stefna gilti fyrir tímabilið 2019-2024 og er því útrunnin. Við endurskoðun stefnunnar hefur hún verið einfölduð, stytt og gerð hnitmiðaðri með það að markmiði að auka skýrleika og notagildi hennar í daglegri stjórnsýslu sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir samhljóða uppfærða Skjalastefnu sveitarfélagsins og vísar stefnunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
4.
Persónuverndarstefna sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202605759
Lögð eru fram drög að nýrri persónuverndarstefnu sveitarfélagsins til umræðu og kynningar. Við endurskoðun stefnunnar var lögð áhersla á breytta nálgun frá eldri stefnu. Fyrri stefna var fyrst og fremst ætluð til að uppfylla fræðsluskyldu sveitarfélagsins gagnvart íbúum og öðrum aðilum, en ný stefna er einkum hugsuð sem innra stjórntæki fyrir stjórnendur og starfsfólk sveitarfélagsins með það að markmiði að tryggja að starfsemi sveitarfélagsins samræmist kröfum persónuverndarlaga.Í stefnunni er sett fram skýrt verklag og leiðir til að uppfylla helstu kröfur laganna. Sérstök áhersla er lögð á að hafa stefnuna skýra, hnitmiðaða og aðgengilega í framkvæmd.
Bæjarráð samþykkir samhljóða uppfærða Persónuverndarstefnu sveitarfélagsins og vísar stefnunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
5.
Fyrirspurn frá Björgunarfélagi Hornafjarðar
Málsnúmer 202605001
Björgunarfélag Hornafjarðar óskaði eftir upplýsingum um styrk sem fjallað var um í fundargerð hafnarstjórnar nr. 277.
Bæjarráð fagnar þeirri mikilvægu og metnaðarfullu uppbyggingu sem á sér stað hjá Björgunarfélagi Hornafjarðar og Slysavarnadeildinni Framtíðinni og vill koma á framfæri þakklæti fyrir þeirra ómetanlega framlag til öryggis íbúa og gesta í sveitarfélaginu. Starfsemin skiptir samfélagið miklu máli og uppbygging nýrrar björgunarmiðstöðvar á Höfn og koma nýs björgunarskips á síðasta ári eru stórt framfaraskref fyrir viðbragðs- og öryggismál í sveitarfélaginu.

Í bókun á fundi hafnarstjórnar nr. 277 þar sem samþykkt var að styrkja björgunarbátasjóð um 5 m.kr. á ári næstu 3 árin var vísað í bókun til þess að sveitarfélagið hefði styrkt Björgunarfélag Hornafjarðar um rúmlega 50 m.kr. á árunum 2023-2025. Það orðalag var bæði óheppilegt og ekki nægilega skýrt og beðist er velvirðingar á því.

Umrædd fjárhæð vísar annars vegar til niðurfellingar á byggingar- og tengigjöldum vegna uppbyggingar nýrrar björgunarmiðstöðvar, sem nema um 20 m.kr., hins vegar til framkvæmda og fjárfestinga Hafnarsjóðs vegna hafnaraðstöðu fyrir nýtt björgunarskip, sem nema um 20 m.kr., auk styrkja samkvæmt samstarfs- og þjónustusamningi við Björgunarfélag Hornafjarðar að fjárhæð 4 m.kr. á ári.

Bæjarráð vill árétta að um er að ræða stuðning sveitarfélagsins og Hafnarsjóðs við mikilvæga öryggisuppbyggingu í sveitarfélaginu í heild sinni, þar á meðal aðstöðu fyrir nýtt björgunarskip og starfsemi Björgunarbátasjóðs, en ekki eingöngu beina styrki til Björgunarfélags Hornafjarðar.

Bæjarráð leggur ríka áherslu á áframhaldandi gott samstarf við Björgunarfélag Hornafjarðar, Slysavarnadeildina Framtíðina og Björgunarbátasjóð enda gegna þessir aðilar lykilhlutverki í öryggi og viðbragðsgetu samfélagsins.

Samþykkt samhljóða.
6.
Styrkbeiðni fyrir Kálfafellsstaðarkirkju
Málsnúmer 202604048
Sóknanefnd Kálfafellsstaðarkirkju óskar eftir styrk til þess að leggja nýtt bílaplan ásamt því að girða á lóðinni. Tilefnið er 100 ára afmæli kirkjunnar.
Sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs falið að afla frekari gagna frá umsækjanda.
7.
Atvikaskráning kjörinna fulltrúa
Málsnúmer 202604043
Mannauðsstjóri hefur kannað hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga hvort unnið hafi verið með þann þátt í greiningarvinnu á starfsaðstæðum kjörinna fulltrúa þar sem áreiti, ofbeldi og einelti kemur fyrir. Það hefur ekki verið gert og það er engin sameiginleg stefna eða viðbragðsáætlun til fyrir sveitarfélögin. Hjá sveitarfélaginu hefur hingað til verið miðað við að mál bæjarfulltrúa fari í sama ferli og annarra starfsmanna í samræmi við stefnu Hornafjarðar gegn einelti, kynferðlislegri eða kynbundinni áreitni og ofbeldi ásamt atvikaskráningu hjá Atvik.is.
Mannauðsstjóra er falið að vinna málið áfram þar sem núverandi kerfi nær ekki utan um sérstakar aðstæður sem geta komið upp varðandi kjörna fulltrúa.
8.
Krafa um viðurkenningu ábyrgðar og greiðslu vegna tafa á deiliskipulagi og fjártjóns
Málsnúmer 202602041
Lögð er fram krafa fyrrum lóðarhafa að Óslandsvegi 2 um viðurkenningu á bótaskyldu vegna afturköllunar lóðarinnar.
Sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs er falið að útbúa drög að svörum í samvinnu við lögmann.

Samþykkt samhljóða.
9.
Kæra til úrskurðarnefndar um upplýsingamál - afhending gagna II
Málsnúmer 202605771
Lögð er fram kæra frá Sveinbirni Imsland til úrskurðarnefndar um upplýsingamál til kynningar.
Bæjarráð felur fjármálastjóra og persónuverndarfulltrúa sveitarfélagsins að svara úrskurðarnefnd um upplýsingamál.
10.
Starfsemi hjúkrunarheimilisins Skjólgarðs
Málsnúmer 202605713
Matthildur Ásmundardóttir gerði grein fyrir starfsemi hjúkrunarheimilisins í öldungaráði á 22. fundi ráðsins. Fór hún almennt yfir starfsemina, hvernig þjónustan er aðlöguð að þeim áskorunum sem koma upp í tengslum við uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis og hvernig starfseminni verður háttað á meðan endurbætur í gamla Skjólgarði munu standa yfir. Öldungaráð bókaði eftirfarandi: Öldungaráð þakkar Matthildi fyrir kynningu á stöðunni. Öldungaráð leggur áherslu á að verklýsing á framkvæmdinni verði endurskoðuð í heild sinni áður en til útboðs kemur. Jafnframt leggur ráðið áherslu á að ekki verði rof á framkvæmdum og að endurbætur á gamla Skjólgarði fari í gang strax í kjölfar flutninga íbúa í nýbygginguna. Öldungaráð vísar bókuninni til umfjöllunar í bæjarráði.
Bæjarráð tekur undir bókun öldungaráðs: Bæjarráð leggur áherslu á að verklýsing á framkvæmdinni verði endurskoðuð í heild sinni áður en til útboðs kemur. Jafnframt leggur ráðið áherslu á að ekki verði rof á framkvæmdum og að endurbætur á gamla Skjólgarði fari í gang strax í kjölfar flutninga íbúa í nýbygginguna.

Sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs er falið er senda bókun bæjarráðs á viðeigandi ráðherra.

Samþykkt samhljóða.