Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

479. fundur
12. október 2009 kl. 16:00 - 19:35
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð stýrihóps um fjölskyldustefnu 25. fundur
Málsnúmer 200910030
Fundargerð samþykkt
2.
Fundargerðir starfshóps um fjölskyldustefnu
Málsnúmer 200910010
Fundargerð samþykkt
3.
Fjárhagsáætlun 2010
Málsnúmer 200905044
Fjárhagsáætlun 2010 – forsendur.
Ásta kynnti fyrstu drög að fjárhagsáætlun 2010. Vísað til áframhaldandi vinnu hjá starfsmönnum m.v. fyrirliggjandi forsendur.

4.
Umsókn um afnot af atvinnulóð við Bugðuleiru
Málsnúmer 200910020
Bæjarráð felur starfsmönnum að ganga frá málinu í samræmi við umræður á fundinum.
5.
Tilboð í gervigrasvöll
Málsnúmer 200910031
Tvö tilboð bárust í jarðvegsskipti undir gervigrasvöll: Ólafur Halldórsson bauð kr. 14.069.100 (92,8% af kostnaðaráætlun). Rósaberg ehf. bauð kr. 10.230.858 (67,% af kostnaðaráætlun). Kostnaðaráætlun var kr. 15.158.000.
Bæjarráð frestar ákvörðun til næsta bæjarráðsfundar.
6.
Tilboð í Sandbakka 3, 010103
Málsnúmer 200910036
Bæjarráð samþykkir að gert verði gagntilboð og starfsmönnum heimilt að ljúka málinu m.v. umræður á fundinum.
7.
Markaðsstofa Suðurlands
Málsnúmer 200910018
Málinu vísað til Atvinnumálanefndar.
8.
Útleiga á Hrollaugsstöðum
Málsnúmer 200910019
Farið var yfir drögin og ýmsar breytingar gerðar. Bæjarráð samþykkir með drögin með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.
9.
Jarðhitaleitarátak 2008-2010
Málsnúmer 200807048
Haukur Ingi kynnti málið og fór yfir samninginn og ræddi um tillögur að borunum. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning og tillögur að úthlutun með fyrirvara um forgangsröðun á borunum.
10.
Eftirlitsgjöld 2010 og kostnaður vegna sýnatöku á neysluvatni
Málsnúmer 200910032
Bæjarráð gerir athugasemdir við þennan kostnað og vísar málinu til starfsmanna.
11.
ÓSK UM LEYFI TIL NIÐURRIFS TRÉSMÍÐAVERKSTÆÐI VIÐ VÍKURBRAUT
Málsnúmer 200909006
Til kynningar.
12.
Ósk um stækkun lóðar að Dalbraut 10
Málsnúmer 200909005
Til kynningar.
13.
Beiðni um stækkun lóðar
Málsnúmer 200908013
Til kynningar.
14.
Ályktun fundar stjórnar og trúnaðarmanna um þjónustu sveitarfélaga m.t.t. starfsmannamála
Málsnúmer 200910023
Til kynningar.
15.
Trúnaðarmenn Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi
Málsnúmer 200910024
Til kynningar.
16.
Ályktun til ríkisstjórnar og sveitarfélaga
Málsnúmer 200910022
Vísað til félagsmálaráðs.
17.
Vegur upp úr botni Hoffellsdals
Málsnúmer 200811052
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
18.
Ráðgjöf á sviði sveitarstjórnarmála
Málsnúmer 200910021
Til kynningar.
19.
Afleiðingar óveðurs 10. okt. 2009
Málsnúmer 200910037
Fyrirspurn um vatnstjón í Nesjahverfi og nágrenni aðfaranótt laugardags. Haukur upplýsti að fundur um málið yrði á morgun.
20.
Samningur um byggingu reiðhús á félagssvæði Hestamannafélagsins Hornfirðings
Málsnúmer 200904063
Rætt var um málefni Hestamannafélagsins varðandi byggingu reiðskemmu.