Bæjarráð Hornafjarðar
481. fundur
28. október 2009
kl.
13:00
-
17:40
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Atvinnumálanefnd 53.fundur
Fundurinn var ólögmætur, aðeins mættu tveir kjörnir fulltrúar á fundinn.
Bæjarráð samþykkir að taka stuðning við Matvælasmiðju fyrir sem sér liður á næsta bæjarráðsfundi.
Bæjarráð samþykkir að taka stuðning við Matvælasmiðju fyrir sem sér liður á næsta bæjarráðsfundi.
2.
Almannavarnanefnd 34
Upplýst var að Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra komi til fundar 13. nóvember n.k.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
3.
Heilbrigðis- og öldrunarráð 106
Fundargerð samþykkt.
4.
Fjárhagsáætlun 2010
Farið var yfir rekstrarramma og óskir forstöðumanna um stofnbúnað.
5.
Stuðningur sveitarfélagsins við fyrirtæki í atvinnurekstri
Bæjarráð er sammála um að sveitarfélaginu sé ekki stætt á að koma með beinum hætti að rekstri einstakra fyrirtækja. Bæjarráð telur að allur atvinnurekstur í sveitarfélaginu sé á sinn hátt samfélagslega mikilvægur. Bæjarráð beinir til fyrirtækja og atvinnurekenda að sveitarfélagið rekur atvinnu- og rannsóknasjóð sem getur veitt styrki í einstök þróunarverkefni.
6.
Reglur um flutningsstyrki
Bæjarráð samþykkir að fella úr gildi reglur um flutnings- og húsaleigustyrk til starfsmanna frá og með næsta fjárhagsári. Núgildandi samningar við starfsfólk haldi gildi sínu.
7.
Reglur um húsaleigustyrk starfsmanna sveitarfélagsins
Bæjarráð samþykkir að fella úr gildi reglur um flutnings- og húsaleigustyrk til starfsmanna frá og með næsta fjárhagsári. Núgildandi samningar við starfsfólk haldi gildi sínu.
8.
Gjaldskrá fyrir sorphirðingu og eyðingu
Bæjarráð vísar málinu til áframhaldandi vinnu og málið tekið upp á næsta bæjarráðsfundi.
9.
Samþykkt um sorphirðu
Bæjarráð vísar málinu til áframhaldandi vinnu og málið tekið upp á næsta bæjarráðsfundi.
10.
Ósk um styrk fyrir vinnustofu og verkstæði að Sólheimum
Erindinu hafnað
11.
Snorraverkefnið 2010
Erindinu hafnað.
12.
Úrskurður mennta- og menningarmálaráðuneytisins v. vettvangsferða í grunnskólum
Vísað til skólanefndar.
13.
Tilkynning um málþing um lífrænan úrgang til landbóta
Vísað til tækni og umhverfissviðs.
14.
Afnotaréttur á nafninu Eystrahorn
•
Afnot af Eystrahorni. Bæjarráð samþykkir að auglýsa eftir aðilum sem áhuga hafa á notkun á nafninu Eystrahorni.
Afnot af Eystrahorni. Bæjarráð samþykkir að auglýsa eftir aðilum sem áhuga hafa á notkun á nafninu Eystrahorni.