Bæjarráð Hornafjarðar
482. fundur
30. október 2009
kl.
16:15
-
18:40
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Skólanefnd Hornafjarðar 119
Undir þessum lið voru afhentar niðurstöður á könnun sem gerð var meðal foreldra í dreifbýli vegna aukaakstursins og nýtingu á honum sl. 5 fimmtudaga en hann hafa nýtt frá 1 upp í 4 börn í ferð. Bæjarráð samþykkir að aukaakstur standi til áramóta. Rætt var um forvarnamál og samþykkt að taka þessi mál fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Stýrihópur vegna fjölskyldustefnu 26
Fundargerð samþykkt.
3.
Fjárhagsáætlun 2010
Margrét mætti á fundinn og gerði grein fyrir rekstrarramma Lönguhóla og óskum skólans um stofnbúnað. Samþykkt að starfsmenn fari yfir nýtingu á leikskólaplássum eftir kl. 16.
Bæjarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun 2010 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun 2010 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
4.
Staða bæjarsjóðs 30. september 2009
Farið yfir útsend gögn. Fram kom að reksturinn er betri en áætlanir gera ráð fyrir.
5.
Endurskoðun skólastefnu sveitarfélagsins
Stefán gerði grein fyrir vinnu skólanefndar við endurskoðun á skólastefnu sveitarfélagsins. Sagði hann endurskoðunina vera að stærstum hluta vera vegna nýrra laga og og reglugerða um leik- og grunnskóla en einnig vegna breytinga sem orðið hafa á skólum sveitarfélagsins undanfarin tvö ár. Bæjarráð vísar endurskoðaðri skólastefnu til bæjarstjórnar.
6.
Íþróttasalur
Haukur Ingi fór yfir tilboð í tjöld (drapperingar) í íþróttahúsið á Höfn. Einnig farið yfir hugmyndir um efni á gólf. Samþykkt að starfsmenn vinni áfram að málinu.
7.
Sameiginleg hvatning K Í og Samb. ísl. sveitarf.élaga til skóla og sveitarfélaga um hagnýtingu nýlegra rannóknaniðurstaða í skólastarfi
Vísað til skólanefndar.
8.
Tilkynning um málþing um sjálfbæra þróun í sveitarfélögum á Íslandi
Til kynningar.
9.
Ályktanir frá ársþingi SASS 2009
•
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, bréf dags. 27. október 2009, afrit af bréfi til heilbrigðisráðuneytisins með samþykkt ársþings SASS um þjónustusamning milli ríkisins og Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
•
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, bréf dags. 27. október 2009, afrit af bréfi til Umhverfisráðuneytisins með samþykkt ársþings SASS um Vatnajökulsþjóðgarð.

10.
Málstofa um ríkisaðstoð
Til kynningar.
11.
Afnotaréttur á nafninu Eystrahorn
•
Réttur til að nýta heitið Eystrahorn til blaðaútgáfu. Í kjölfar auglýsingar hefur borist ein umsókn um að nýta nafnið til útgáfu héraðsfréttablaðs. Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri gangi til samninga við umsækjanda, Albert Eymundsson.

12.
Viðburðir og ráðstefnuhald í sveitarfélaginu
•
Hjalti greindi frá samtölum við rekstararaðila í ferðaþjónustu vegna viðburða og ráðstefnuhalds í sveitarfélaginu.
Hjalti greindi frá samtölum við rekstararaðila í ferðaþjónustu vegna viðburða og ráðstefnuhalds í sveitarfélaginu.
13.
Ósk um að leigja Hafnarbraut 52 yfir vetrarmánuðina
•
Þjónustumiðstöð SKG ehf. óskar eftir að leigja Hafnarbraut 52 (þjónustumiðstöð á tjaldstæði) yfir vetrarmánuðina. Bæjarráð samþykkir að starfsmenn ræði við viðkomandi vegna málsins.
Þjónustumiðstöð SKG ehf. óskar eftir að leigja Hafnarbraut 52 (þjónustumiðstöð á tjaldstæði) yfir vetrarmánuðina. Bæjarráð samþykkir að starfsmenn ræði við viðkomandi vegna málsins.