Bæjarráð Hornafjarðar
484. fundur
16. nóvember 2009
kl.
16:10
-
18:10
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Byggingar- og skipulagsnefnd 116
Fundargerð samþykkt.
2.
Fundargerð húsnæðisnefndar 88
Fundargerð samþykkt.
3.
Fundarg. menningar- og tómst. 15. fundur
Undir þessum lið var fjallað um mál sem komu til umræðu á fundi menningar- og tómstundanefndar með ungmennaráði sem sat hluta fundarins. Björn Ingi gerði að umtalsefni 4. lið á dagskrá nefndarinnar, beiðni NOVA um fjarskiptaloftnet á gamla vatnstanknum. Einnig rætt um leigutekjur af aðstöðu sem fyrirtæki hafa á tanknum og meðferð þeirra tekna í áætlunum Menningarmiðstöðvar. Samþykkt að starfsmenn fari yfir framangreindar leigutekjur og geri bæjarráði grein fyrir meðferð þess fjár.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
4.
Fundargerð HAUST 87
Til kynningar.
5.
Fundargerð stjórnar Samb. ísl sveitarf. 768
Til kynningar.
6.
Fundargerð fundar um sjávarfallavirkjanir
Til kynningar.
7.
Ósk um umsögn á frumvarpi til laga um sveitarstjórnakostningar 149. mál, persónukjör
Bæjarráð samþykkir að vísa vinnu við umsögn til bæjarstjóra.
8.
Umsókn um stofnun fasteignar í fasteignaskrá
Bæjarráð samþykkir stofnun fasteignar í fasteignaskrá, sbr. meðfylgjandi gögn.
9.
Beiðni um umsögn vegna landskipta Fornustekka
Bæjarráð gerir engar athugasemdir við skipti á jörðinni Fornustekkum, sbr. meðfylgjandi gögn.
10.
Markmiðssetning Nýheima
Bæjarráð fagnar því að sett sé fram formleg stefna um Nýheima og gerir ekki efnislegar athugasemdir við hana. Aðkoma sveitarfélagsins á hverjum tíma ræðst af fjárhagsáætlun hvers árs. Einnig fagnar bæjarráð umhverfisstefnu Nýheima og telur hana mjög í anda þess sem unnið er að í þessum málflokki á vegum sveitarfélagsins.
11.
Umhverfisstefna Nýheima
Bæjarráð fagnar því að sett sé fram formleg stefna um Nýheima og gerir ekki efnislegar athugasemdir við hana. Aðkoma sveitarfélagsins á hverjum tíma ræðst af fjárhagsáætlun hvers árs. Einnig fagnar bæjarráð umhverfisstefnu Nýheima og telur hana mjög í anda þess sem unnið er að í þessum málflokki á vegum sveitarfélagsins.
12.
Ósk um styrk til Átaks gegn einelti
Erindinu vísað til skólanefndar til umfjöllunar.
13.
Ósk um að leigja Hafnarbraut 52 yfir vetrarmánuðina
Bæjarráð samþykkir leigu á Hafnarbraut 52 yfir vetrarmánuðina. Bæjarráð leggur áherslu á að fari fram önnur starfsemi en um er sótt þurfi að sækja um leyfi til þess hverju sinni. Leigugjald fyrir húsið sé grundvallað á þeim kostnaði sem fellur á húsið yfir vetrarmánuðina. Starfsmönnum falið að ganga frá málinu fyrir hönd sveitarfélagsins.
14.
Samningur um byggingu reiðhús á félagssvæði Hestamannafélagsins Hornfirðings
Bæjarráð heimilar bæjarstjóra að ganga frá samkomulagi við Hestamannafélagið Hornfirðing og Sparisjóð Vestmannaeyja um aðkomu sveitarfélagsins að því að ljúka byggingu reiðskemmu félagsins sem nú er risin að hluta til. Til grundvallar eru lögð drög að samkomulagi sem bæjarstjóri kynnti á fundinum.
15.
Gjaldskrá fyrir sorphirðingu og eyðingu
Bæjarráð samþykkir að vísa fram lagðri tillögu að gjaldskrá fyrir sorphirðu 2010.
16.
Skipting stofnbúnaðarramma 2009
Bæjarráð samþykkir að skipta fé til stofnbúnaðarkaupa 2009 í samræmi við tillögur sem kynntar voru í útsendum gögnum.
17.
Knattspyrnuhús /gervigrasvöllur
Bæjarráð felur framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs að ganga frá útboðsgögnum vegna gervigrasvallar.
18.
Ósk um umsögn á útgáfu rekstleyfis fyrir Árnanes
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis fyrir Gistiheimilið Árnanes.
19.
Tilkynning um álagningu erfðafjárskatts
Samþykkt að erfðafjárskattur verði greiddur af liðnum óráðstafað, kr. 439.564.
20.
Fyrirhugaður niðurskurður á á endurgreiðslu vegna refaveiða 2009-2010
Bæjarráð mótmælir niðurskurði á endurgreiðslum vegna refaveiða harðlega. Jafnframt er þess krafist að Umhverfisstofnun greiði allan kostnað við minkaveiðar.