Bæjarráð Hornafjarðar
485. fundur
23. nóvember 2009
kl.
16:10
-
00:00
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð hafnarstjórnar 119
Björn Ingi spurði um ályktun hafnarstjórnar um að hafa vigt og vigtarhús á sama stað. Reynir upplýsti um afgreiðslu hafnarstjórnar og ástæður þess að hafa vigtina og húsið á núverandi stað. Sagði Reynir að ekki þyrfti að endurnýja vigtarpall á allra næstu árum.
Björn Ingi spurði um björgunarlaun vegna v/s Axels. Reynir og Hjalti upplýstu um umræður í hafnarstjórn og að óskað hafi verið eftir lögfræðiáliti.
Fundargerð samþykkt.

2.
Rekstrarstaða 31. okt. 2009
Gerð grein fyrir rekstrarstöðu 31. október sem er í samræmi við áætlanir.
3.
Fjárhagsáætlun 2010
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun 2010 í bæjarráði. Samþykkt að afgreiða hana frá í bæjarráði í næstu viku.
Mikil umræða skapaðist um uppbyggingu á félagssvæði Hestamannafélagsins Hornfirðings, girðingar umhverfis félagssvæðið og hvernig best sé að standa að framkvæmdum.

4.
Íþróttasalur
Reynir lagði fram tilboð frá Gunnari Pálmi Péturssyni, dags. 17. nóvember 2009 vegna skiptitjalds í íþróttahúsinu.
5.
Yfirfærsla málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga
Farið yfir stöðu málsins. Bent á eftirfarandi texta í viljayfirlýsingu sem ritað var undir á milli ríkisins og Sambands sveitarfélaga:
„Þjónustusvæði verða mynduð um rekstur þjónustu og er miðað við að þau hafi að lágmarki um átta þúsund íbúa. Ráðherra getur þó í undantekningartilfellum veitt undanþágu frá þessu viðmiði á grundvelli landfræðilegra aðstæðna, enda hafi viðkomandi sveitarfélög sýnt fram á getu til að veita alhliða þjónustu.“
Bæjarráð Hornafjarðar leggur áherslu á að Sveitarfélagið Hornafjörður verði skilgreint sem sérstakt þjónustusvæði. Ekki er séð hvaða ávinning þjónustuþegar á Hornafirði hafi með því að vera hluti af stærra þjónustusvæði. Auk þess hefur Sveitarfélagið Hornafjörður sýnt fram á að veita megi góða þjónustu á hagkvæman og skilvirkan hátt þrátt fyrir að þjónustusvæði telji færri íbúa en viðmið í viljayfirlýsingu ríkis og sveitarfélaga gera ráð fyrir.
Bæjarráð vísar málinu til félagsmálaráðs til frekari umfjöllunar.

6.
Jarðhitaleitarátak 2008-2010
Haukur Ingi gerði grein fyrir viðræðum við framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs, landeigendur í Öræfum og ráðgjafa um áframhaldandi jarðhitaleit í Öræfum og hugmyndum um virkjun jarðhitans í Skaftafelli. Starfsmönnum falið að vinna áfram að undirbúningi virkjunar í Skaftafelli sem nýtist fyrir nærsvæðið.
Lögð fram tilboð um dýpkun á holum og borun á hitastigulsholum. Samþykkt að taka tilboði Jarðborana í hitastigulsholur og dýpkun í H-14 frá Ræktunarsambandinu.

7.
Knattspyrnuhús /gervigrasvöllur
Útboðsgögn vegna gervigrasvallar
Til kynningar.
Til kynningar.
8.
Reglur um úthlutun styrkja menningar- og tímstundanefndar - drög
Mikil umræða skapaðist um úthlutun styrkja frá sveitarfélaginu. Rætt um að tengja styrki betur við rekstur og viðburði á vegum félagasamtaka en ekki eingöngu hefðbundið starf þeirra. Bæjarráð vísar til menningar- og tómstundarnefndar að undirbúa úthlutun næsta árs með góðum fyrirvara með það fyrir augum að kalla eftir ítarlegri áætlunum um starfsemi og sérstök verkefni á vegum félagasamtaka.
Framlög drög samþykkt.
Framlög drög samþykkt.
9.
Skipting á jörðinni Uppsalir 1
•
Bjarni Sævar Geirsson, afrit svarbréfa til Fasteignaskrár ríkisins, dags. 10. október og 10. nóvember 2009, skráning mannvirkja á jörðinni Uppsalir.

10.
Áskorun 46.sambandsþings UMFÍ v. æskulýðs- og íþróttastarfs
•
Ungmennafélag Íslands, bréf dags. 10. nóvember 2009, áskoranir til sveitarfélaga um stuðning við íþrótta- og æskulýðsstarf og yfirlýsing vegna uppbygginga íþróttamannvirkja á landinu.

11.
Kynning á íslenskri málstefnu
•
Mennta- og menningarmálaráðuneytið, bréf dags. 13. nóvember 2009, kynning á íslenskri málstefnu.
Til kynningar.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið, bréf dags. 13. nóvember 2009, kynning á íslenskri málstefnu.
Til kynningar.
12.
Samþætting fjölskyldu- og atvinnulífs
•
Jafnréttisráð, tölvubréf dags. 17. nóvember 2009, þema ársins 2010 “Samþætting fjölskyldu- og athafnalífs„.
Til kynningar.
Jafnréttisráð, tölvubréf dags. 17. nóvember 2009, þema ársins 2010 “Samþætting fjölskyldu- og athafnalífs„.
Til kynningar.
13.
Ósk um umsögn um tillögu til þingsályktunar um náttúruverndaráætlun 2009-2013
•
Umhverfisnefnd Alþingis , tölvubréf dags. 19. nóvember 2009, ósk um umsögn um tillögu til þingsályktunar um náttúruverndaráætlun 2009–2013, 200. mál: http://www.althingi.is/altext/138/s/0224.html.

14.
Sala á leiguíbúðum
•
Lagt fram tilboð í tvær íbúðir sveitarfélagsins á Sandbakka. Samþykkt að heimila bæjarstjóra að samþykkja tilboðin.