Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

486. fundur
30. nóvember 2009 kl. 16:10 - 18:45
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð skólanefndar 120
Málsnúmer 200912008
Rætt um viðbyggingu við Lönguhóla. Bæjarráð sammála um að á þessu stigi verði lögð áhersla á viðbyggingu og svara þannig nýjum lögum um leikskóla. Undir þessum lið var tekin fyrir gjaldskrá sundlaugar. Björn Ingi velti því upp hvort til greina komi að hjón geti nýtt saman árskort, svo sem þegar verið er að fara með börn í sund, þó ekki samtímis báðir aðilar. Bæjarráð samþykkir tillögu skólanefndar að gjaldskrá fyrir árið 2010.
Fundargerð samþykkt.
2.
Fjárhagsáætlun 2010
Málsnúmer 200905044
Bæjarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun fyrir árið 2010 til annarrar umræðu í bæjarstjórn með þeim breytingum sem samþykktar hafa verið frá fyrri umræðu.
3.
Þriggja ára áætlun 2010-2012
Málsnúmer 200911048
Bæjarráð samþykkir að vísa þriggja ára áætlun til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
4.
Umfjöllun um sorpmál á Hornafirði
Málsnúmer 200707002
Sorpmál í sveitum.
Hjalti gerði að umtalsefni ábendingar og athugasemdir sem komið hafa frá íbúum dreifbýlisins um sorpmál í sveitum. Haukur Ingi fór yfir hugmyndir að breytingum í þessum málaflokki.
Bæjarráð samþykkir að starfsmenn haldi áfram vinnu við útfærslu á sorpmálum í dreifbýli.
5.
Gjaldskrá fyrir sorphirðingu og eyðingu
Málsnúmer 200910122
Umsögn heilbrigðisfulltrúa Austurlands um gjaldskrá fyrir sorphirðu/eyðingu 2010.
Farið yfir athugasemdir Heilbrigðiseftirlits Austurlands, sbr. bréf þess, dags. 25. nóvember 2009.
6.
Þjónustustig tiltekinna flugvalla vegna sparnaðarráðstafanna
Málsnúmer 200903005
Vísað til heilbrigðis- og öldrunarráðs.
7.
Rafmagnsöryggi- þjónusta rafverktaka
Málsnúmer 200912007
Til kynningar.
8.
Norræn ráðstefna um fjármálakreppu, húsnæðismarkað og heimilin
Málsnúmer 200912009
Til kynningar
9.
Leigusamningur um Hrollaugsstaði
Málsnúmer 200912004

Hjalti gerði grein fyrir undirritun samnings vegna útleigu á Hrollaugsstöðum og samtali við leigutaka um nauðsynlegar lagfæringar og endurbætur á húsinu.
10.
Samningur um byggingu reiðhús á félagssvæði Hestamannafélagsins Hornfirðings
Málsnúmer 200904063

Hjalti gerði grein fyrir samræðum við forsvarsmenn Hestamannafélagsins Hornfirðings og kynnti drög að sameiginlegri yfirlýsingu félagsins og sveitarfélagsins. Í yfirlýsingunni kemur fram með hvaða hætti áframhaldandi bygging reiðhallar verður útfærð. Bæjarstjóra falið að skrifa undir yfirlýsinguna.
11.
Hitaveita í Öræfum
Málsnúmer 200912010

Haukur Ingi kynnti hugmyndir um stofnun og uppbyggingu hitaveitu í Öræfum með tengingu við borholu í Skaftafelli. Undir þessum lið var einnig rætt (í fundarsíma) við framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs um framkvæmd við hugsanlega hitaveitu. Bæjarráð samþykkir að fé sem fara átti í borholu í Svínafelli verði nýtt í borholu í Skaftafelli að því gefnu að stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs heimili að nýtanlegt vatn úr borholunni verði einnig nýtt fyrir bæi austan við þjóðgarðinn.