Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

487. fundur
14. desember 2009 kl. 18:00 - 21:00
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Atvinnumálanefnd 54. fundur
Málsnúmer 200912025
Farið yfir tölur um atvinnuleysi í sveitarfélaginu árinu 2009 með tilliti til aldurs, menntunar
og starfa. Fram kom að lítið atvinnuleysi hafi verið í sveitarfélaginu á árinu.
Fundargerð samþykkt.
2.
Byggingar- og skipulagsnefnd 117. fundur
Málsnúmer 201001012
Fundargerð samþykkt.
3.
Fundargerð félagsmálaráðs 199
Málsnúmer 200912039
Fundargerð samþykktar.
4.
Fundargerð félagsmálaráðs 200
Málsnúmer 200912040
Fundargerð samþykktar.
5.
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 107
Málsnúmer 200912041
Fundargerð samþykktar.
6.
Fundargerð umhverfisnefndar 82
Málsnúmer 200912042
Vakin athygli á umræðu á utanvegaakstri og ræddi bæjarráð í framhaldi um aukinn fjölda ferðamanna, utanvegaakstri mótócrosshjóla og mikilvægi þess að sporna við utanvegaakstri. Rætt um að setja skilti til að vara við utanvegaakstri.
Fundargerð samþykkt.
7.
Fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga 769
Málsnúmer 200912020
Til kynningar.
8.
Endurskoðun auglýsingar fyrir fólkvang í Óslandi
Málsnúmer 200912021
Haukur Ingi kynnti auglýsinguna. Samþykkt.
9.
Samningur um söfnun á raf- og rafeindatækjaúrgangi
Málsnúmer 200912022
Haukur Ingi kynnti samninginn. Spurt um kostnað sveitarfélagsins og skyldur þess í samningnum Haukur Ingi upplýsti að sveitarfélagið leggi til aðstöðu en fái greitt fyrir hana skv. gjaldskrá sem umhverfisráðuneytið leggur út. Enginn beinn kostnaður á að falla á sveitarfélagið vegna samningsins. Samningurinn samþykktur.
10.
Skiptitjald í íþróttahúsi
Málsnúmer 200910144
Undir þessum lið var tekið fyrir tilboð frá Gunnari Pálma Péturssyni í skiptitjald. Efnið í tjaldinu, sbr. tilboð.

Málinu vísað til starfsmanna til frekari úrvinnslu.
11.
Skipulag á Lambleiksstöðum á Mýrum
Málsnúmer 200912034
Tekið undir bókun byggingar- og skipulagsnefndar um að fá álit frá ráðgjafa sveitarfélagsins í skipulagsmálum um fyrirhugaða landnotkun og staðsetningu.
12.
Flugmál á Hornafirði
Málsnúmer 200912044
Hjalti upplýsti um samtal við forsvarsmenn Ernis um samskipti þeirra við Vegagerðina. Einnig upplýsti um áform Vegagerðarinnar að fækka um eina ferð til Hornafjarðar vegna kröfu um niðurskurð.

Um leið og bæjarráð hrósar Flugfélaginu Erni fyrir góða flugþjónustu þá minnir bæjarráð Vegagerðina á að reglulegar almenningsflugsamgöngur séu grundvallaratriði fyrir búsetu á Hornafirði.
13.
Byggðaþróun - verkefnistillaga
Málsnúmer 200912013
Íbúaþing.
Árni greindi frá umræðum í stýrihóp um aðalskipulag um samráðsfund með íbúum. Bæjarráð samþykkir að ganga til viðræðna við Alta en skoða betur tímasetningar fyrir fundinn.
14.
Sóknaráætlun 20/20
Málsnúmer 200912045
Gerð grein fyrir viðræðum við nefndarmenn í nefnd um sóknaráætlanir, starfsmenn í iðnaðarráðuneytinu og fleiri. Bæjarráð er sammála um að fara í fundarferð í upphafi næsta árs til að koma sjónarmiðum á framfæri.
15.
Verkfallslistar v. kjarasamninga
Málsnúmer 200712012
Lögð fram tillaga um verkfallslista. Samþykkt.
16.
Knattspyrnuhús /gervigrasvöllur
Málsnúmer 200802023
Haukur Ingi fór yfir fyrirliggjandi tilboð. Bæjarráð samþykkir að ganga til viðræðna við Polytan um kaup á ligaturf gervigrasi skv. tilboði. Samþykkt að ganga frá kaupum á búnaði til lýsingar og gólfhitarörum.
17.
Staða bæjarsjóðs 30. nóvember 2009
Málsnúmer 201001013
Farið yfir stöðu bæjarsjóðs sem er í samræmi við áætlanir. Útlit er fyrir jákvæða rekstrarniðurstöðu á árinu 2009.
18.
Yfirfærsla málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga
Málsnúmer 200911036
Málefni fatlaðra.
Maren Sveinbjörnsdóttir kom inn á fundinn undir þessum lið. Hún gerði grein fyrir sjónarmiðum sínum hvað varðar rekstur og flutning á málaflokknum frá ríki til sveitarfélaga. (Hjalti vék af fundi á meðan rætt var um þátt sambýla í fyrirhuguðum verkefnaflutningi.) Bæjarráð er sammála félagsmálaráði um eftirfarandi áherslur sem bókaðar voru á fundi ráðsins 8. desember 2009:

„Sveitarfélagið Hornafjörður hefur með þjónustusamningi við félagsmálaráðuneytið sinnt þjónustu við fatlaða frá ársbyrjun 1997. Á þeim tíma hefur starfsfólk sveitarfélagsins byggt mikla þekkingu á málaflokknum og fengið orð fyrir að veita fyrirmyndarþjónustu ásamt því að bregðast ávallt skjótt við þegar nýrra úrræða hefur verið þörf. Í ljósi góðrar reynslu sveitarfélagsins af rekstri málefna fatlaðra leggur félagsmálaráð Hornafjarðar áherslur mikilvægi þess að Sveitarfélagið Hornafjörður verði skilgreint sem sérstakt þjónustusvæði þegar málaflokkurinn verður fluttur frá ríki til sveitarfélagsins í ársbyrjun 2011 enda hafi það sýnt getu og þekkingu til að sinna þessum málaflokki.“

Enn fremur leggur bæjarráð áherslu á að nægjanlegir fjármunir flytjist með málaflokknum til að sveitarfélagið getið staðið undir kröfum um þjónustu og aðbúnað allra þeirra sem falla undir málaflokkinn í sveitarfélaginu.
19.
Ný veglína yfir Skeiðarársand
Málsnúmer 200912046

Fornleifavernd ríkisins, bréf dags. 24. nóvember 2009, ný veglína um Skeiðarársand.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
20.
Skipting á jörðinni Uppsalir 1
Málsnúmer 200809015

Sigurgeir Jónsson/Hvítingur ehf., bréf til bæjarráðs vegna Uppsala I og II ásamt afriti bréfs til Fasteignaskrár ríkisins um endurskráningu á túni á Uppsölum II.
Til kynningar.
21.
Samþykkt stjórnar sambandsins um tilfærslu á þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga
Málsnúmer 201001014

Samband ísl. sveitarfélaga,bréf dags. 30. nóvember 2009, tilfærsla á þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga, samþykkt stjórnarfundar 27. nóvember 2009.
Til kynningar.
22.
Félagsþjónustunefnd Samb. ísl. sveitarfélaga
Málsnúmer 201001016

Samband ísl. sveitarfélaga,bréf dags. 1. desember 2009, félagsþjónustunefnd Sambands ísl. sveitarfélaga bréf og erindisbréf fyrir nefndarmenn.
Til kynningar.
23.
Undirskriftarlisti barna á Mýrum vegna leikvallar við Holt
Málsnúmer 201001015

Undirskriftalisti frá börnum á Mýrum vegna leikvallar við Holt.
Vísað til starfsmanna á tækni- og umhverfissviði um að koma með tillögur að úrbótum á leiksvæði í kringum Holt.
24.
Úttektir á grunnskólum
Málsnúmer 200912026

Menntamálaráðuneytið, tölvubréf dags. 4. desember 2009, úttektir á grunnskólum.
Vísað til skólanefndar.
25.
Fréttatilkynning um styrki til almenningssamgangna
Málsnúmer 200912023

Vegagerðin, fréttatilkynning dags. 4. desember, styrkir til almenningssamgangna.
Til kynningar.
26.
Breyting á lit á eyrnamerkjum
Málsnúmer 200912033

Matvælastofnun, bréf dags. 7. desember 2009,breyting á lit á eyrnamerkjum.
Til kynningar.
27.
Ábending vegna alvarlegs umferðarslyss á Siglufirði
Málsnúmer 201001017

Rannsóknarnefnd umferðaslysa, bréf dags. 2. desember 2009, ábending vegna alvarlegs umferðaslyss á Hvanneyrarbraut, Siglufirði, þann 17.nóvember 2009.
Vísað til byggingarfulltrúa.
28.
Söluframlög Varasjóðs húsnæðismála
Málsnúmer 200912038
Vísað til fjármálastjóra.
29.
Grunnfjárhæðir fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga
Málsnúmer 201001018

Félags- og tryggingamálaráðuneytið, bréf dags. 215. desember 2009, grunnfjárhæðir fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga.
Til kynningar.
30.
Vegur upp úr botni Hoffellsdals
Málsnúmer 200811052

Umhverfisstofnun,bréf dags. 11. desember 2009, lagning vegar upp úr botni Hoffellsdals.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
31.
Kvörtun vegna sandfoks á Leirusvæði
Málsnúmer 201001024

Sandfok á Leirusvæði. Greint frá athugasemdum íbúa á Leirusvæði. Bæjarráð felur starfsmönnum að leita leiða til að hefta fok yfir veturinn. Í vor verði við fyrstu hentugleika sáð í svæðið.
32.
Unglingalandsmót UMFÍ 2010
Málsnúmer 201001042

Reynir óskaði eftir að starfsmenn færu yfir kostnað og ræddu við ungmennasambandið um að halda unglingalandsmót næsta sumar.
33.
Smáframleiðsla á matvælum - samningur
Málsnúmer 200902061

Lögð fram samningsdrög á milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Matís um smáframleiðslu matvæla á Hornafirði. Fundarmenn ánægðir með drögin og ákveðið að taka málið fyrir á næsta fundi.