Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

488. fundur
11. janúar 2010 kl. 16:00 - 18:35
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu -og félagssviðs
Dagskrá
1.
Fundargerð 17. fundar suðursvæðis svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs
Málsnúmer 201001029
Hjalti greindi frá vinnu við verndaráætlun þjóðgarðsins.
2.
Fundargerð 770. fundar stjórnar Samb. ísl. sveitarf.
Málsnúmer 201001030
Björn Ingi spurðist fyrir um varasjóð húsnæðismála og hvort eitthvert fjármagn væri á leið í sjóðinn.
Til kynningar.
3.
Álit Samkeppniseftirlitsins um skipulag, lóðaúthlutanir og samkeppni
Málsnúmer 201001031
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
4.
Álit Samkeppniseftirlitsins opinber útboð,samkeppni og samkeppnishindranir
Málsnúmer 201001032
Farið yfir álit Samkeppniseftirlits um opinber útboð m.m. og þau rædd. Vísað til starfsmanna að hafa þetta álit að leiðarljósi.
5.
Háskólasetrið á Hornafirði - starfsemi og framtíð
Málsnúmer 200912035
Hjalti greindi frá viðræðum við forstöðumann um málefni setursins og fjárhagslegri stöðu þess og þeim breytingum sem orðið hafa, svo sem vegna þess að fjármagn sem fylgdi mótvægisaðgerðum er búið. Ljóst sé að fjármunir til setursins fari minnkandi.
6.
Reglur um niðurfellingu fasteignaskatts
Málsnúmer 201001002
Samþykkt að reglurnar verði uppfærðar í samræmi við breytingar á launavísitölu.
7.
Framkvæmd vetrarþjónustu á helmingamokstursvegum í Hornafirði
Málsnúmer 201001034
Nýjar reglur Vegagerðarinnar um vetrarþjónustu á þjóðvegum ræddar. Bæjarráð leggur þunga áherslu á 7 daga þjónustu m.a. með tilliti til þeirra miklu flutninga sem eru til og frá svæðinu. Einnig rædd framkvæmd vetrarþjónustu á „helmingamokstursvegum“ í sveitarfélaginu.
8.
Tillögur um framtíðarfyrirkomulag upplýsingamiðstöðva
Málsnúmer 201001035
Sigurlaug Gissurardóttir, formaður Ferðamálafélags Austur-Skaftafellssýslu, Unnur Halldórsdóttir formaður Ferðamálasamtaka Íslands og Ólafur Hilmarsson starfsmaður Markaðsstofu Suðurlands mættu á fundinn kl: 17:35
Hjalti fór yfir málið og sagði frá þeim verkefnum sem sveitarfélagið hefur styrkt varðandi ferðaþjónustu .
Ólafur kynnti starf Markaðsstofu Suðurlands
Unnur kynnti starf Ferðamálasamtaka Íslands
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skrifa umsókn á grundvelli umræðna á fundinum.
9.
Niðurstöður könnunar á hagræðingaraðgerðum sveitarfélaga í skóla- og fræðslumálum
Málsnúmer 201001036
Skólamálanefnd Sambands ísl. sveitarf. kannaði í tvígang á sl. ári hagræðingaraðgerðir sveitarfélaga í skóla- og fræðslumálum. Svör bárust frá sveitarfélögum sem ná til 97% íbúa landsins. Niðurstöður sýna að sveitarfélög eru almennt að leita að möguleikum til að hagræða í rekstri viðkomandi stofnana. Skýrslunni vísað til umfjöllunar í skólanefnd.

10.
Beiðni um umsögn á útgáfu tækifærisleyfis vegna þorrablóts að Hrollaugsstöðum
Málsnúmer 201001037
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu framangreinds tækifærisleyfis.
11.
Þjónusta í fjármögnun,verkefnasstjórnun ofl.
Málsnúmer 201001040

Askar Capital hf., bréf dags.16. desember 2009, kynning á þjónustu.
Til kynningar.
12.
Húsaleigubætur - uppreiknuð eignamörk
Málsnúmer 200901065

Félags- og tryggingamálaráðuneytið, bréf dags. 4. janúar 2010, húsaleigubætur - uppreiknuð eignamörk.
Til kynningar.
13.
Uppreiknuð tekj- og eignamörk vegna félagslegra leiguíbúða
Málsnúmer 201001038

Félags- og tryggingamálaráðuneytið, bréf dags. 4. janúar 2010, uppreiknuð tekju- og eignamörk vegna félagslegra leiguíbúða.
Til kynningar.
14.
Umferðaröryggisáætlun
Málsnúmer 201001039

Umferðarstofa, bréf dags. 6. janúar 2009, gerð umferðaröryggisáætlun
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
15.
Skólaakstur á Mýrum
Málsnúmer 201001041

Greint frá erindi íbúa á Mýrum sem fer fram á að sérstakur akstur verði á þriðjudögum fyrir yngri börnin þannig að þau þurfi ekki að bíða eftir þeim eldri. Bæjarráð felur starfsmönnum að kanna þá kosti sem eru í stöðunni og leita samstarfs við foreldra grunnskólabarna á Mýrum og í Suðursveit með það að markmiðið að koma til móts við sjónarmið foreldra. Einnig rætt um hvort sveitarfélagið eigi að setja sér viðmiðunartíma í skólaakstri.
16.
Samningur um byggingu reiðhús á félagssvæði Hestamannafélagsins Hornfirðings
Málsnúmer 200904063

Opnun tilboða í stálvinnu vegna reiðskemmu







Hlutfall af kostnaðaráætlun
Vélsmiðjan Foss

10.992.203.-


138,37%
Vélsmiðja Hornafjarðar
11.200.000.-


140,99%

Kostnaðaráætlun

7.944.000.-

Bæjarráð samþykkir að áður en ákvörðun verður tekin verði leitað til Ríkiskaupa til að fara
yfir tilboðin.
17.
Jarðhitaleitarátak 2008-2010
Málsnúmer 200807048

Jarðhiti í Skaftafelli. Bæjarstjóri sagði frá stöðu málsins.