Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

490. fundur
23. janúar 2010 kl. 09:00 - 11:40
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu -og félagssviðs
Dagskrá
1.
Fundargerð atvinnumálanefndar 55
Málsnúmer 201001055
Hjalti sagði að þróun atvinnuleysis væri svipuð og á sl. ári. Bæjarstjóra falið að taka saman yfirlit á mögulegum átaksverkefnum á vegum sveitarfélagsins. Farið yfir umsóknir og úthlutanir í atvinnu- og rannsóknasjóð sveitarfélagsins. Nokkur umræða var um hvernig úthlutanir fara fram og rætt hvort ekki þurfi að skerpa úthlutunarreglur sjóðsins.
Fundargerðir samþykktar.
2.
Fundargerð atvinnumálanefndar 56
Málsnúmer 201001056
Hjalti sagði að þróun atvinnuleysis væri svipuð og á sl. ári. Bæjarstjóra falið að taka saman yfirlit á mögulegum átaksverkefnum á vegum sveitarfélagsins. Farið yfir umsóknir og úthlutanir í atvinnu- og rannsóknasjóð sveitarfélagsins. Nokkur umræða var um hvernig úthlutanir fara fram og rætt hvort ekki þurfi að skerpa úthlutunarreglur sjóðsins.
Fundargerðir samþykktar.
3.
Byggingar- og skipulagsnefnd 118
Málsnúmer 201001057
Fundargerð samþykkt.
4.
Menningar- og tómstundanefnd 16
Málsnúmer 201001058
Fundargerð samþykkt.
5.
Stýrihópur vegna fjölskyldustefnu 32
Málsnúmer 201001059
Fundargerð samþykkt.
6.
Skiptitjald í íþróttahúsi
Málsnúmer 200910144
Haukur Ingi fór yfir málið. Greindi frá því að efni í dúk sé þegar til staðar. Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við þá einstaklinga sem buðu í skiptitjald, kr. 2.115.000. Samþykkt að taka af óráðstöfuðu.
7.
Jarðhitaleitarátak 2008-2010
Málsnúmer 200807048
Drög að endurskoðun samninga vegna jarðhitaleitar
Haukur Ingi gerði grein fyrir breytingum á milli funda. Bæjarráð sammála um að unnið verði eftir fyrirliggjandi drögum að samningi. Starfsmönnum falið að kynna samninga fyrir landeigendum og undirbúa næstu skref.
8.
Fyrirspurn vegna íbúða í eigu Íbúðalánasjóðs
Málsnúmer 200912048
Fasteignagjöld Íbúðalánasjóðs vegna íbúða á Hornafirði
Vegna fyrirspurnar Íbúðalánasjóðs bendir bæjarráð á gildandi reglur um staðgreiðsluafslátt á fasteignagjöldum. Hvað varðar sorphirðugjöld af íbúðum sem ekki eru nýttar verður tekin afstaða í hverju tilfelli fyrir sig óháð hver er eigandi íbúðarinnar í lok árs.
9.
Beiðni um framkvæmdaleyfi til efnistöku við Breiðá í Öræfum
Málsnúmer 201001028
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
10.
Jarðvegsframkvæmdir í sveitarfélaginu 2010
Málsnúmer 201001060
Haukur Ingi fór yfir málið og ræddi mögulega nýtingu á fergingarefni á gervigrasvelli á Leirusvæði – Sílavík. Urðu töluverðar umræður um málið. Hauki Inga falið að ræða við viðkomandi veitustofnanir vegna lagna í götur sveitarfélagsins.
11.
Stuðningur við atvinnulífið
Málsnúmer 201001061
Vinnumálastofnun, desember 2009, erindi Vinnumarkaðsráðs Austurlands varðandi stuðning við atvinnulífið.
Vísað til atvinnumálanefndar.
12.
Skipting á jörðinni Uppsalir 1
Málsnúmer 200809015
Sigurgeir Jónsson/Hvítingur ehf. , afrit bréfs til samgönguráðuneyti dags. 29. desember 2009, málefni Uppsala I og II.
Vísað til byggingarfulltrúa.
13.
Fuglaathugunarstöð Suðausturlands afgreiðsla fjárlaganefndar Alþingis
Málsnúmer 201001062
Brynjúlfur Brynjólfsson vegna Fuglaathugunarstöðvar Suðausturlands, tölvubréf dags. 18. janúar 2010, höfnun fjárlaganefndar um Alþingis um styrk.
Til kynningar.
14.
Dagur leikskólans 6. febrúar 2010
Málsnúmer 201001063
Samband ísl. sveitarfélaga/Menntmálaráðuneytið, tölvubréf dags. 18. janúar 2010, Dagur leikskólans 6. febrúar n.k..
Er á dagskrá skólanefndar 27. janúar nk.
15.
Styrkir sveitarfélaga til hjálparstarfs á Haítí
Málsnúmer 201001064
Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf dags. 20. janúar 2010, athygli vaki á fréttum um styrki sveitarfélaga til hjálparstarfs á Haítí.
Samþykkt að styrkja hjálparstarf á Haítí um 210.000 kr. og upphæðin verði afhent Rauða kross Íslands. Tekið af óráðstöfuðu.
16.
Rammasamningur Ríkiskaupa aðild að
Málsnúmer 200706080
Ríkiskaup, tölvubréf 20. janúar 2010, rammasamningur Ríkiskaupa 2010.
Upplýst að staðfest hafi verið aðild sveitarfélagsins að samningunum..
17.
Viðbygging við Lönguhóla
Málsnúmer 201001065
Rætt um viðbyggingu við Lönguhóla, grundun byggingar, áætlaðan verktíma o.fl.
18.
Lokun svæðisútvarpsstöðva
Málsnúmer 201001066
Bæjarráð lýsir yfir vonbrigðum með lokun á svæðisútvarpsstöðvum Ríkisútvarpsins.
19.
Málefni líkamsræktar á Hornafirði
Málsnúmer 201001051
Hjalti gerði grein fyrir viðræðum um möguleg kaup Sveitarfélagsins á líkamsræktartækjum. Bæjarstjóra falið að halda áfram að vinna að málinu.