Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

491. fundur
1. febrúar 2010 kl. 16:00 - 18:10
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Byggingar- og skipulagsnefnd 119
Málsnúmer 201002041
Bæjarráð tekur undir afgreiðslu byggingar- og skipulagsnefndar um að Vegagerðinni verði heimilað grjótnám við Breiðá og framkvæmdaleyfi því veitt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Hafnarstjórn 121. fundur
Málsnúmer 201002042
Fundargerð samþykkt.
3.
Skólanefnd 121. fundur
Málsnúmer 201002043
Halldóra lýsti yfir vonbrigðum með afgreiðslu meirihluta skólanefndar sem snýr að sumarlokun leikskóla. Tók hún jafnframt undir bókun Sigríðar Kristinsdóttur sem mælti með skörun á sumarlokun leikskólanna. Halldóra óskaði upplýsinga um vaktaplön í sundlaug og hugsanlegar breytingar á þeim. Einnig spurði hún um athugasemd Torfa við auglýsingu um starf í sundlaug. Stefán svaraði hver sú athugasemd var. Hjalti greindi frá þeirri vinnu sem er í gangi hvað varðar vaktaplön í sundlaug og fleiri vinnustöðum í sveitarfélaginu.
Fundargerð samþykkt.
4.
Svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs 18. fundur
Málsnúmer 201002044
Hjalti greindi frá vinnu við drög að verndaráætlun þjóðgarðs og að drögin hafi verið send ýmsum hagsmunaaðilum til kynningar. Einnig rætt um framlög ríkisins til þjóðgarðsins.
5.
Þriggja ára áætlun 2011-2013
Málsnúmer 201002045
Farið yfir helstu lykiltölur þriggja ára áætlunar sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir að þriggja ára áætlun verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.
6.
Umsókn um lóð
Málsnúmer 201002032

Skeljungur, umsókn um lóð nr. 38 við Hafnarbraut, dags. 25. janúar 2010.
Farið yfir umsóknina. Reynir sagðist vilja sjá meira en bara bensíndælur á þessari lóð. Fyrir þurfi að liggja ákveðin áform um byggingu á lóðinni. Halldóra sagðist frekar mótfallin því að setja upp bensínstöð í hjarta bæjarins. Þá spurði hún um nýtingarhlutfall á lóðinni. Svaraði Haukur Ingi hvernig því máli væri háttað. Bæjarráð samþykkir að vísa lóðarumsókninni til umfjöllunar í byggingar- og skipulagsnefnd. Starfsmönnum falið að ræða við Skeljung vegna umsóknarinnar.
Halldóra lagði til að vísað verði til byggingar- og skipulagsnefndar að fjalla um hugsanlegar þungatakmarkanir á þeim svæðum Hafnarbrautarinnar sem hafa verið hellulögð. Var það samþykkt.
7.
Umsókn um leyfi til jarðvegsskipta v. viðbyggingar við Lönguhóla
Málsnúmer 201001007
(Björgvin Sigurjónsson og Björn Imsland sátu fundinn undir þessum lið.)
Farið yfir nokkrar mismunandi mögulegar leiðir við grundun hússins, grafa niður á fast, fergja eða byggja á staurum.
Halldóra óskar eftir kostnaðaráætlun við heildarframkvæmd við Lönguhóla. Einnig sagðist hún hafa viljað að farin hefði verið önnur leið en að byggja við Lönguhóla.
Tekið var til afgreiðslu tilboð frá Guðna Karlssyni og Olgeiri Jóhannessyni í staurarekstur undir viðbyggingu. Samþykkt að ganga til samninga við tilbjóðendur.
8.
Umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 201001053
(Björgvin Sigurjónsson og Björn Imsland sátu fundinn undir þessum lið.)
Farið yfir nokkrar mismunandi mögulegar leiðir við grundun hússins, grafa niður á fast, fergja eða byggja á staurum.
Halldóra óskar eftir kostnaðaráætlun við heildarframkvæmd við Lönguhóla. Einnig sagðist hún hafa viljað að farin hefði verið önnur leið en að byggja við Lönguhóla.
Tekið var til afgreiðslu tilboð frá Guðna Karlssyni og Olgeiri Jóhannessyni í staurarekstur undir viðbyggingu. Samþykkt að ganga til samninga við tilbjóðendur.
9.
Flutningur málefna fatlaðra til sveitarfélaga
Málsnúmer 200905104
Farið yfir drög að tillögu Sveitarfélagsins Hornafjarðar um að það verði sérstakt þjónustusvæði þegar málefni fatlaðra verða flutt frá ríki til sveitarfélaga. Að lokinni yfirferð samþykkti bæjarráð að vísa til starfsmanna að breyta drögunum í samræmi við þær umræður sem fram fóru á fundinum.
10.
Jöklasýning og Vatnajökulsþjóðgarður
Málsnúmer 201002047
Hjalti fór yfir málefni Jöklasýningar, upplýsingamiðstöðvar, gestastofu og hugmyndir um samstarf við þjóðgarðinn um þessa þætti. Sköpuðust um þessar hugmyndir töluverðar umræður.
11.
Jarðvegsframkvæmdir - Leirsvæði
Málsnúmer 201002048
Haukur Ingi greindi frá samtölum við starfsmenn RARIK og Símans vegna fyrirhugaðra lagna á Leirusvæði. Einnig rætt hvaða lagnir séu nauðsynlegar vegna núverandi framkvæmda á svæðinu.
12.
Endurskoðun auglýsingar fyrir fólkvang í Óslandi
Málsnúmer 200912021

Náttúrufræðistofnun Íslands, bréf dags. 20. janúar 2010, endurskoðun friðlýsingarskilmála fyrir fólkvang í Óslandi – umsögn.
Halldóra óskaði eftir að farið yrði yfir forsögu málsins og á hvaða forsendum það sé til umræðu. Einnig ræddar athugasemdir Náttúrufræðistofnunar. Málinu vísað til umverfisnefndar og óskað eftir að nefndin fari yfir athugasemdir Náttúrufræðistofnunar.
13.
Uppgjör framlaga úr Jöfnunarsjóði á árinu 2009
Málsnúmer 201002049
Til kynningar.
14.
Reiðleiðir og - stígar
Málsnúmer 201002050

Landssamband hestamannafélaga, bréf dags. 21. janúar 2010, hálendisvegir og slóðir.
Vísað til starfshóps um endurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélagsins.
15.
Ný matvælalöggjöf
Málsnúmer 201002051

Matvælastofnun, tölvubréf dags. 22. janúar 2010, fræðslufundur vegna nýrrar matvælalöggjafar. Til kynningar.