Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

493. fundur
22. febrúar 2010 kl. 16:00 - 18:17
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð atvinnumálanefndar 57
Málsnúmer 201002058
Hjalti fór yfir umræður í nefndinni um bann við flutningi fjár yfir Hornafjarðarfljót. Urðu um þetta mál nokkrar umræður. Samþykkt um búfjarhald tekið fyrir sem sérliður á næsta fundi bæjarráðs. Björn Ingi spurðist fyrir um 4. lið á fundi nefndarinnar, samtal formanns atvinnumálanefndar við atvinnurekanda. Hjalti svaraði um hvað væri verið að ræða.
Fundargerð samþykkt.
2.
Fundargerð bygg/skip 120
Málsnúmer 201002059
Haukur Ingi fór yfir umræður og afgreiðslu byggingar- og skipulagsnefndar, sbr. 6. lið, umsókn um lóð undir bensínafgreiðslu. Greindi hann einnig frá samtölum sem hann hefur átt við aðila vegna þessa máls.
Bæjarráð tekur undir álit byggingar- og skipulagsnefndar að umrædd starfsemi henti ekki fyrir þessa lóð miðað við þá uppbyggingu í íþrótta- og æskulýðsmálum sem átt hefur sér stað á miðbæjarsvæði. Einnig er nú unnið að nýju deiliskipulagi fyrir miðbæjarsvæði og ekki liggur fyrir niðurstaða í frekari nýtingu á svæðinu.
Fundargerð samþykkt.
3.
Fundargerð félagsmálaráðs 202
Málsnúmer 201002060
Fundargerð samþykkt.
4.
Fundargerð menningar- og tómstundan 17
Málsnúmer 201002061
Hjalti gerði grein fyrir hugmyndum um breytingar á starfsemi Menningarmiðstöðvar og Jöklasýningar yfir sumartímann og viðræðum við starfsmenn þar að lútandi.
Fundargerð samþykkt.
5.
Fundargerð umhverfisnefndar 94
Málsnúmer 201002062
Haukur fór yfir endurskoðun auglýsingar fyrir fólkvang í Óslandi, mörk svæðisins o.fl.
Fundargerð samþykkt.
6.
Ósk um endurnýjun leigusamnings vegna tjaldsvæðis
Málsnúmer 201002063
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til viðræðna við umsækjendur í samræmi við umræður í bæjarráði.
7.
Viðhald Hafnarbrautar 30
Málsnúmer 201002064
Hjalti fór yfir málið og ástæðu þess að það er hér til umræðu. Bæjarstjóra falið að ræða við Urtustein.
8.
Ósk um umsögn á útg. tækifærisleyfis v. Góuhófs
Málsnúmer 201002065
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu tækifærisleyfis vegna góuhófs í Hofgarði.
9.
Sameining sveitarfélaga
Málsnúmer 201002068
Hjalti fór yfir málið og ástæðu þess að það er hér til umræðu. Voru bæjarráðsmenn sammála um að þessi mál þurfi að ræða vel með þátttöku íbúanna.
10.
Auglýsing vegna Unglingalandsmóts UMFÍ 2012
Málsnúmer 201002066

UMFÍ, bréf dags. 28. janúar 2010, Unglingalandsmót 2012.
Auglýst er eftir ungmennafélögum sem áhuga hafa á að taka að sér Unglingalandsmót UMFÍ 2012. Bæjarráð hvetur USÚ til að sækja um að halda mótið 2012.
11.
Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu
Málsnúmer 201002033

Þjóðskrá, bréf dags. 5. febrúar 2010, þjóðaratkvæðagreiðsla 6. mars n.k., dagsetning lögheimilisskráningar.
Vísað til starfsmanna.
12.
Flutningur málefna fatlaðra til sveitarfélaga
Málsnúmer 200905104

Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf dags. 6. febrúar 2010, vinnufundur um tilfærslu þjónustu við fatlaða til sveitarfélaga.
Til kynningar.
13.
Auglýsing styrkja úr Mótvægissjóði
Málsnúmer 201002067

Samband ísl. sveitarfélaga/Velferðarvakt ríkisstjórnarinnar, tölvubréf dags. 8. febrúar 2010, auglýsing um styrki úr Mótvægissjóði.
Vísað til félagsmálastjóra.
14.
Ráðstöfun fjárlagal. 11-373 niðurgreiðsla húshitunarkostn. og fl.
Málsnúmer 201002069

Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum/Iðnaðarráðuneytið, ráðstöfun fjárlagaliðar 11-373 niðurgreiðsla húshitunarkostnaðar o. fl. . hækkun raforkuverðs og önnur hagsmunamál íbúa sveitarfélaga á köldum svæðum.
Til kynningar.
15.
Útboð á rekstri kaffiteríu í Nýheimum
Málsnúmer 200909048

Hjalti greindi frá breytingum á kaffiteríu í Nýheimum. Bæjarráð gerir ekki efnislegar athugasemdir við málið.
16.
Uppsagnarbréf ÞJV
Málsnúmer 201002072

Samkvæmt bréfi, dags. 10. febrúar 2010, segir Þorvaldur Viktorsson upp skólastjórastöðu sinni við Grunnskóla Hornafjarðar. Bæjarstjóri gerði það að tillögu sinni að starfið verði auglýst laust til umsóknar sem fyrst.