Bæjarráð Hornafjarðar
511. fundur
30. ágúst 2010
kl.
16:00
-
18:25
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fundarg 2. fundar atvinnu og menningarmálanefndar
Bæjarráð tekur undir bókun atvinnu- og menningarmálanefndar í öðrum lið.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Félagsmálaráð fundargerðir funda 206. og 207
Undir fundargerð 206 sköpuðust umræður um hæfismál.
Árni benti á að í öðrum lið fundargerðar 207 að unnin hafi verið skýrsla um stefnu sveitarfélagsins í húsnæðismálum á síðasta kjörtímabili.
Fundargerðir samþykktar.
Árni benti á að í öðrum lið fundargerðar 207 að unnin hafi verið skýrsla um stefnu sveitarfélagsins í húsnæðismálum á síðasta kjörtímabili.
Fundargerðir samþykktar.
3.
Hafnarstjórn fundargerð 126. fundar
Árni spurðist fyrir um málefni björgunar Axels. Hjalti Þór gerði grein fyrir niðurstöðu í málinu. Haukur gerði grein fyrir vinnu sem farið hefur fram við kostnaðarmat á endurbótum Vogarbryggja.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
4.
Erindisbréf nefnda
Ásgerður gerði grein fyrir að stjórn HSSA fjallar um erindisbréfið n.k miðvikudag. Hjalti lagði til að verði miklar áherslubreytingar á erindisbréfi HSSA verði umfjöllun þess erindisbréfs frestað til næsta fundar Bæjarstjórnar en önnur erindisbréf verði lögð fyrir næsta fund Bæjarstjórnar. Árni spurðist fyrir um erindisbréf atvinnu- og menningarmálanefndar Hornafjarðar. Samþykkt að vísa erindisbréfum til bæjarstjórnar með áorðnum breytingum.
5.
Málefni hestamannafélagsins - verkstaða reiðhallarbyggingar
Hjalti gerði grein fyrir minnisblaði dags 25. ágúst. Töluverðar umræður sköpuðust um málið. Málinu vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
6.
Drög að reglum og gjaldskrá fyrir leigu á húsnæði sveitarfélagsins
Stefán fór yfir forsögu málsins og gerði grein fyrir drögunum. Töluverðar umræður sköpuðust um drögin. Bæjarráð vísar drögum að reglum um útleigu á húsnæði í eigu sveitarfélagsins til umfjöllunar atvinnu- og menningarmálanefndar og skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar.
7.
Þjónustustöð - starfsmannamál og skipulag
Hjalti og Haukur Ingi gerðu grein fyrir minnisblaði dagsettu 27. ágúst sl. Lagt til að ráðnir verði tveir aðilar í Þjónustustöðina annar sinni m.a verkefnum gámaports og hinn aðilinn sinni vélavinnu og opnum svæðum. Ekki er um fjölgun stöðugilda að ræða miðað við núverandi stöðu. Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu. Bæjarráð gerir ekki athugasemd við kaup á timburkurlara í samræmi við áætlun. Bæjarráð vísar öðrum málum til fjárhagsáætlunargerðar.
8.
Minnisblað vegna funda í stofnunum og fyrirt. í Rvík haustið 2010
Hjalti gerði grein fyrir undirbúningi að umsóknum til fjárlaganefndar.
9.
Kauptilboð Sandbakka 3, 0102
Hjalti lagði til að samþykkt verði framlagt tilboð í íbúð að Sandbakka 3, bæjarráð samþykkir að taka tilboðinu í Sandbakka 3, íbúð 0102, fastanúmer 218-1174. Bæjarráð heimilar sölu á íbúðinni.
10.
Efling heilsugæslunnar - drög að áfangaskýrslu nefndar ráðherra
Hjalti gerði grein fyrir málinu. Bæjarráð vísar skýrslunni til stjórnar HSSA.
11.
Reglur um notkun á Pakkhúsi fyrir tónlistarviðburði
Bæjarráð vísar málinu til vinnu við endurskoðun á reglum um útleigu húsnæðis í eigu sveitarfélagsins.
12.
Framkvæmdir án leyfis við Uppsali 2
Málinu vísaði til starfsmanna
13.
Kostnaður og styrkir framboða vegna sveitarstj. kosninga 2010 - samatekt Samfylkingarinnar á Hornafirði
Til kynningar
14.
EFtirlitsskýrsla v. Brennu Flosa
Til kynningar
15.
Skilti og nafnabreytingar - Uppsalir 1 og 2
Málinu vísað til starfsmanna
16.
Athugasemdir við lögheimilisskráningu aðila
Málinu vísað til starfsmanna
17.
Úttektir á leik- og grunnskólum
Bæjarráð leggur til að Sveitarfélagið Hornafjörður taki þátt í verkefninu. Starfsmönnum falið að ræða við ráðuneytið um samstarf.
18.
Sameining sveitarfélaga
Hjalti gerði grein fyrir samtali við framkvæmdastjóra SASS um sameiningarnefnd sem á að fara yfir sameiningarmál sveitarfélaga. Lagt er til að Hjalti Þór Vignisson taki sæti í nefndinni. Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu.
Árni Rúnar gerir ekki athugasemd við framlagða tillögu í ljósi nýs meirihluta í bæjarstjórn en veltir upp þeirri spurningu hvort ekki væri eðlilegra að kjörinn fulltrúi sæti í nefndinni.
Árni Rúnar gerir ekki athugasemd við framlagða tillögu í ljósi nýs meirihluta í bæjarstjórn en veltir upp þeirri spurningu hvort ekki væri eðlilegra að kjörinn fulltrúi sæti í nefndinni.
19.
Fjarskiptasamband í sýslunni
Ásgerður gerði grein fyrir slæmu fjarskiptasambandi í sýslunni. Starfsmönnum falið að fara yfir málið og rita áskorun um úrbætur til réttra aðila.