Bæjarráð Hornafjarðar
519. fundur
1. nóvember 2010
kl.
16:00
-
17:40
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Haukur Ingi Einarsson
Framkvæmdastjóri framkvæmda- og fjármálasviðs
Dagskrá
1.
Fundargerðir
2.
Fundargerð stjórnar HSSA 4
Björn Ingi spurðist fyrir um ráðningu ráðgjafa við vinnu stefnumótunar fyrir HSSA. Ásgerður gerði grein fyrir því að stefnumótun hafi verið slegið á frest.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
3.
Fundargerð ungmennaráðs 1
Bæjarráð vísar fjórða lið um úthlutun fjármagns til Ungmennaráðs til vinnu fjárhagsáætlunar 2011.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
4.
Fundargerð stjórnar Samb. ísl. sveitaf. 779
Til kynningar
5.
Fjárhagsáætlun 2011
Hjalti gerði grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2011. Unnið er að því að klára forsendur fjárhagsáætlunargerðar í samráði við bæjarráð, bæjarstjórn, starfsmenn og íbúa. Hjalti lagði til að boðað verði til íbúafundar um fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2011 og heilbrigðismál nú í nóvember. Bæjarráð samþykkti framlagða tillögu.
6.
Gagnaflutningar og fjarskipti í sveitarfélaginu
Hjalti fór yfir minnisblað dagsett 5. okt 2010 um gagnaflutning og fjarskipti í sveitarfélaginu. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
7.
Umsókn um styrk til markaðssetingar fyrir gagnaver
Hjalti gerði grein fyrir umsókn um styrk til markaðssetningar fyrir gagnaver. Bæjarráð vísar málinu til atvinnu- og menningarmálanefndar.
8.
Umsókn um styrk til kaupa á búnaði til fjallamennsku
Hjalti gerði grein fyrir umsókn FAS um kaup á búnaði til námskeiðs gögnu, leiðsögn og fjallamennsku. Bæjarráð fagnar erindi FAS og felur starfsmönnum að vinna að málinu í samstarfi við Björgunarfélag Hornafjarðar og FAS.
9.
Innsend erindi:
10.
Samkeppni um titilinn Norrænt orkusveitarfélag 2011
Málinu vísað til atvinnu- og menningarmálanefndar
11.
Auglýsing ums styrki til sveitarfélaga vegna aukinnar þjónustu við langveik börn og börn með ADHD
Málinu vísað til félagsmálaráðs.
12.
Áskorun Velferðarvaktarinnar um aðgæslu þegar ákvarðanir eru teknar í hagræðingarskyni
Til kynningar.
13.
Varðar leyfi Fiskistofu til framkvæmda við ár og vötn
Til kynningar.
14.
Upplýsingar framboða um kostnað og styrki vegna sveitarstjórnakosninga 2010
Eftirfarandi framboð hafa skilað inn upplýsingum um kostnað og styrki vegna sveitarstjórnarkostninga 2010:
Framsóknarflokkurinn
Samfylkingin
Sjálfstæðisflokkurinn
Framsóknarflokkurinn
Samfylkingin
Sjálfstæðisflokkurinn
15.
Fyrirspurnir - bæjarráð:
Árni Rúnar lagði fram neðangreindar fyrirspurnir á fundinum.
1. Á Sveitarfélagið ógreidda kröfu á ríkið vegna reksturs HSSA?
2. Ef svo er, hversu há er sú krafa, frá hvaða ári er hún og hverjar eru líkurnar á hún verði greidd?
3. Hafa starfsmenn sveitarfélagsins kannað hvort önnur sveitarfélög ætli að létta undir með rekstri heilbrigðisstofnana með fjárhagslegri aðkomu sveitarfélaganna vegna fjárlaga fyrir næsta ár?
Hjalti lagði fram neðangreind svör við fyrirspurn Árna Rúnars.
1. Sveitarfélagið gerði árið 2007 kröfur á ríkið um greiðslur að upphæð 31 m.kr. Þær kröfur fengust að fullu greiddar um mitt árið 2008.
2. Sjá svar við spurningu nr. 1.
3. Starfsmenn sveitarfélagsins hafa ekki átt viðræður við önnur sveitarfélög um hvort þau hyggist verja grunnþjónustu í heilbrigðismálum á sínum svæðum, með fjárframlögum til heilbrigðisstofnana.
Undir fyrirspurninni sköpuðust umræður um hlutverk ríkis og sveitarfélags um rekstur HSSA.
Fyrirspurn barst um hversu margir einstaklingar hafa sótt um tómstundakort árin 2009 og 2010:
222 einstaklingar árið 2009
152 einstaklingar það sem af er árinu 2010