Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

520. fundur
8. nóvember 2010 kl. 16:00 - 18:30
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Haukur Ingi Einarsson Framkvæmdastjóri framkvæmda- og fjármálasviðs
Dagskrá
1.
Fundargerðir
Málsnúmer 200811043
2.
Fundargerð félagsmálaráðs 210. fundur
Málsnúmer 201011011
Fundargerð samþykkt.
3.
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 5. fundur
Málsnúmer 201011010
Umræður sköpuðust um 2. og 5. lið.

Ásgerður vék af fundi þegar 2. liður var til umræðu. Björn Ingi sat hjá við afgreiðslu á 2. lið, hann telur að atvinnuhúsnæði eigi ekki að notast sem íbúðarhúsnæði. Árni Rúnar tók ekki afstöðu til málsins þar sem Samfylkingin átti ekki fulltrúa á umræddum fundi og telur sig ekki hafa fullnægjandi upplýsingar til að taka afstöðu til málsins. Formaður tekur undir afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar á 2. lið.

Fundargerð samþykkt.
4.
Fundargerð svæðisráðs suðursvæðis Vatnajökulsþjóðagarðs 22. fundur
Málsnúmer 201011018
Hjalti gerði grein fyrir fundinum.

Fundargerð til kynningar.
5.
Frumkvöðlasetur Austurlands fundargerð
Málsnúmer 201011016
Hjalti fór yfir málefni Frumkvölaseturs Austurlands.

Fundargerð til kynningar.
6.
Umsókn um styrk til kaupa á búnaði til fjallamennsku -framhaldsumræður
Málsnúmer 201010083
Hjalti gerði grein fyrir samskiptum sínum við FAS. Hauki Inga falið að vinna áfram að málinu með öllum aðilum málsins.
7.
Yfirbreiðsla í sundlaug - tillaga
Málsnúmer 201011013
Haukur kynnti tillögu að yfirbreiðslu. Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
8.
Gjaldskrá fyrir sorphirðu - minnisblað HIE
Málsnúmer 200707002
Haukur Ingi gerði grein fyrir minnisblaðinu, ræddi hann um þá hagræðingu sem átt hefur sér stað í málaflokknum frá því sveitarfélagið tók upp markvissari flokkun úrgangs. Starfsmönnum falið að gera tillögu að nýrri gjaldsskrá í samræmi við umræður á fundinum.
9.
Atvinnumál - minnisblað HÞV
Málsnúmer 201011017
Hjalti gerði grein fyrir minnisblaðinu, ræddi hann hugmyndir um ráðstöfun hluta aukaframlags jöfnunarstjóðs til uppbyggingar atvinnulífs. Bæjarráð felur starfmönnum að vinna áfram að málinu.
10.
Uppsögn húsaleigusamnings um skrifstofuhúsnæði Nýsköpunarmiðst. Íslands í Nýheimum og ósk um viðræður um nýjan samning
Málsnúmer 200807014
Starfsmönnum falið að ræða við Nýsköpunarmiðstöð Íslands um nýjan húsaleigusamning.
11.
Samstarf sveitarfélagsins við Atvinnuþróunarfélag Suðurlands
Málsnúmer 201011012
Hjalti kynnti málið, bæjarráð samþykkir að fresta afgreiðslu málsins þangað til endurskipulagning á stoðkerfi atvinnulífs liggur fyrir.
12.
Innsend erindi:
Málsnúmer 201010050
13.
Áætlað tekjujöfnunarframlag 2010
Málsnúmer 201011014
Til kynningar.
14.
Áætluð úthlutun aukaframlaga Jöfnunarsjóðs 2010
Málsnúmer 201010071
Til kynningar
15.
Niðurstöður könnunarinnar: Heilsa og lífskjör skólanema á Suðursvæði 2006-2010
Málsnúmer 201011005
Málinu vísað til skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar.
16.
Skipulag áfallahjálpar á Íslandi
Málsnúmer 201011015
Málinu vísað til stjórnar HSSA.
17.
Fyrirspurnir - bæjarráð:
Málsnúmer 201009100
Fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar

Skilningur á samþykkt um fundarsköp bæjarstjórnar:
Annar kafli samþykktar um stjórn, stjórnsýslu og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar fjallar um fundarsköp bæjarstjórnar. Í 3. tl. 9. greinar samþykktarinnar, sem fjallar um verkefni bæjarstjórnar, segir að á dagskrá bæjarstjórnarfunda skuli taka: „Önnur mál sem falla undir verksvið bæjarstjórnar og bæjarstjóri og/eða forseti bæjarstjórnar ákveður að taka á dagskrá eða einhver bæjarfullttrúi óskar eftir að tekin verði á dagskrá. Bæjarfulltrúi sem óskar eftir að fá mál tekið á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal tilkynna það bæjarstjóra skriflega með tillögu eða fyrirspurn a.m.k. fjórum sólarhringum fyrir fund“. Í 2. mgr. 23. greinar kemur fram að framsögumaður skv. 3. tl. 9. greinar geti talað þrisvar sinnum en aðrir bæjarfulltrúar tvisvar.

Af þessu vaknar sú spurning hvernig forsetar bæjarstjórnar Hornafjarðar skilgreina framsögumann í málum sem bæjarfulltrúi óskar eftir að tekin séu á dagskrá bæjarstjórnarfunda.

Svar:
Mánudaginn 1. nóvember barst ósk frá bæjarfulltrúa um að „sjávarútvegsmál – minnisblað um skýrslu sáttanefndar...og sbr. fyrirspurn mína á síðasta bæjarráðsfundi - verði sérliður á næsta bæjarstjórnarfundi.“ Eins og segir í fyrirspurn frá bæjarfulltrúa óskaði hann eftir að málefnið yrði sér liður á dagskrá bæjarstjórnarfundar skv. 3. tl. 9. gr. Taka ber fram að fyrirspurnin kom rúmum þremur sólarhringum fyrir bæjarstjórnarfundinn en ekki fjórum eins og reglan segir til um. Hins vegar er það álitamál í viðkomandi máli hvor sé málshefjandi, sá sem ber upp óskina eða sá er setti málin fyrst á dagskrá í bæjarráði. Það er ljóst að minnisblað um sáttanefnd í sjávarútvegsmálum var tekið saman af bæjarstjóra í septembermánuði og var vísað til í ósk bæjarfulltrúa um að gera sjávarútvegsmál að sér lið. Ástæðan fyrir því að bæjarstjóri myndi hefja umræðuna byggðist fyrst og fremst á þeirri staðreynd að hann hafði tekið saman minnisblaðið, sem vísað var til í ósk um að sjávarútvegsmál væru sérliður, á undan því að bæjarfulltrúi lagið fram fyrirspurn um sjávarútvegsmál á fundi bæjarráðs. Auk þess kom ekki fram sérstök ósk frá bæjarfulltrúa um að hann yrði málshefjandi. Til að taka af öll tvímæli mun forseti bæjarstjórnar óska eftir áliti lögfræðings Sambands íslenskra sveitarfélaga um þetta mál og önnur sambærileg.