Bæjarráð Hornafjarðar
523. fundur
29. nóvember 2010
kl.
16:00
-
19:10
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Haukur Ingi Einarsson
framkvæmdastjóri framkvæmda- og fjármálasviðs
Dagskrá
1.
Fundargerðir
2.
Fundargerð hafnarstjórnar 128. fundur
Umræður sköpuðust um komu farþegaskipa og viðhaldsáætlun hafnarinnar. Starfsmönnum falið að senda viðhaldsáætlun á bæjarráð.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
3.
Fundargerð stjórnar Samb. ísl. sveitarfélaga 781. fundur
Rætt um flutning málefna fatlaðra frá ríki yfir til sveitarfélaga.
Fundargerð til kynningar.
Fundargerð til kynningar.
4.
Styrkir til félagasamtaka
Stefán fór yfir samantek um þróun styrkja til Umf. Sindra. Málinu vísað til áframhaldandi vinnu til starfsmanna.
5.
Starfsmannastefnan 67 ára aldurinn
Starfsmenn gerðu grein fyrir lögum sem giltu um starfslok starfsmanna.
6.
Málefni Hestamannafélagsins Hornfirðings
Hjalti gerði grein fyrir framvindu uppbyggingar á reiðskemmu og þann ágreining sem uppi er um aðkomu að svæði hestamanna.
7.
Fjárhagsáætlun 2011
Starfsmenn gerðu grein fyrir útsendu efni. Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu og leggja fyrir bæjarráð á næsta fundi þar sem forstöðumenn verða einnig boðaðir á fundinn. Fundurinn verður haldinn bæjarráðs mánudaginn 6. desember n.k kl 12:00.
Farið var yfir viðhaldsáætlun fyrir árið 2011.
Starfsmönnum falið að ræða við forstöðumenn um fyrirkomulag námsleyfa í samræmi við umræður á fundinum.
Farið var yfir viðhaldsáætlun fyrir árið 2011.
Starfsmönnum falið að ræða við forstöðumenn um fyrirkomulag námsleyfa í samræmi við umræður á fundinum.
8.
Ákvörðun um útsvarshlutfalls 2011
Bæjarráð samþykkir að vísa neðangreinda bókun til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarráð Hornafjarðar samþykkir að útsvarshlutfall árið 2011 verði óbreytt, þ.e. 13,28%, en með fyrirvara um að nauðsynlegar lagabreytingar nái fram að ganga á Alþingi um tilfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga og hækkun útsvarshlutfalls um 1,20 prósentustig sem af því leiðir, verður álagningarhlutfallið 14,48% á árinu 2011.
Bæjarráð Hornafjarðar samþykkir að útsvarshlutfall árið 2011 verði óbreytt, þ.e. 13,28%, en með fyrirvara um að nauðsynlegar lagabreytingar nái fram að ganga á Alþingi um tilfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga og hækkun útsvarshlutfalls um 1,20 prósentustig sem af því leiðir, verður álagningarhlutfallið 14,48% á árinu 2011.
9.
Staða bæjarsjóðs 31. október 2010
Ásta gerði grein fyrir stöðu 31. október 2010.
10.
Ósk um umsögn á útgáfu tækifærisleyfis vegna dansleiks á Víkinn 26. des. 2010
Bæjaráð gerir ekki athugasemd.
11.
Ósk um umsögn á útgáfu tækifærsleyfi fyrir dansleik á Víkinni 31. jan. 2010
Bæjaráð gerir ekki athugasemd.
12.
Breytingar á ráðhúsi - Svavarssafn
Bæjarráð telur að gert sé ráð fyrir of litlu rými fyrir Ástustofu og eins komu fram sjónarmið um að nánast sami kostnaður er af því að flytja tæknirýmið milli herbergja eins og að flytja það í t.d. í rými sem áður voru fangaklefar.
13.
Innsend erindi:
14.
Ósk um umsögn á frumvarpi til laga um meðhöndlun úrgangs (skilakerfi fyrir einnota drykkjarvöruumbúðin og EES-reglur,186. mál
Málinu vísað til fjármála- og framkvæmdasviðs.
15.
Breytingar á raforkuverði
Málinu vísað til atvinnu- og menningarmálanefndar.
16.
Skemmtanir fyrir unglinga undir lögaldri á vínveitingastöðum
Málinu vísað til félagsmálaráðs og skóla-, íþrótta, og tómstundanefndar
17.
Auglýsing um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála
Málinu vísað til félagsmálaráðs
18.
Ósk um styrk til eldvarnaátaks 2010
Bæjarráð hafnar ósk um styrk.
19.
Fyrirspurnir - bæjarráð: