Bæjarráð Hornafjarðar
525. fundur
13. desember 2010
kl.
16:00
-
18:40
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Haukur Ingi Einarsson
Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs
Dagskrá
1.
Fundargerðir
2.
Fundargerð félagsmálaráðs 211.fundur
Guðrún spurðist fyrir um stöðu húsnæðismála í sveitarfélaginu. Hjalti gerði grein fyrir stöðu húsnæðismála.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
3.
Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 6. fundur
Björn Ingi fjallaði um tillögu að breytingu á gjaldskrá sundlaugar. Umræður sköpuðust um tillögur nefndarinnar um breytingar á gjaldskrá sundlaugar.
Lögð fram tillaga að breytingum á gjaldskrá sundlaugar í samræmi við tillögu nefndarinnar. Bæjarráð bendir á að tryggja þurfi að börn undir 10 ára aldri sem eiga foreldra með lögheimili í sveitarfélaginu fái frítt í sund.
Tillaga í heild samþykkt með tveimur atkvæðum, Björn Ingi sat hjá. Guðrún sagðist ekki styðja breytinguna.
Björn Ingi fjallaði um tillögu í 3. lið fundargerðarinnar um fjárhagsáætlun skólanna er varðar millistjórnendur. Umræður sköpuðust um málið. Bæjarráð telur mikilvægt að málið verði unnið áfram í skólanefnd.
Borin upp afgreiðsla skólanefndar á hækkun gjaldskrár fyrir fæði í leik- og grunnskóla. Tillagan gerir ráð fyrir 5% hækkun á fæði í leikskólum sem stafar af hærra hráefnisverði og hækkun úr 250 krónum í 260 krónum fyrir hádegismat í Grunnskóla Hornafjarðar. Jafnframt að gjald fyrir fæði í lengdri viðveru takið mið af innkaupum á hráefni.
Samþykkt með tveimur atkvæðum, Björn Ingi sat hjá. Guðrún Ingimundardóttir sagðist ekki styðja hækkunina.
Björn Ingi fjallaði um 7. lið fundargerðarinnar er varðar niðurstöður samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10. bekk 2010. Umræður sköpuðust um mikilvægi þess að fara heildstætt yfir fræðslu- og uppeldismál í sveitarfélaginu.
Ásgerður greindi frá hugmynd um að gera skautasvell á nýju bílastæði við Íþróttahús. Þar væri góð lýsing og ágætt skjól. Starfsmönnum falið að gera tilraun með að búa til skautasvell þar.

4.
Fundargerð stjórnar Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs 51. fundur
Fundargerð samþykkt.
5.
Fundargerð stjórnar Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs 52. fundur
Björn Ingi spurðist fyrir um úthlutunarreglur sjóðsins. Guðrún Ingimundardóttir spurðist fyrir um rekstrarform sjóðsins og velti því upp hvort ekki ætti að stofna líknarfélag því þau greiði ekki virðisaukaskatt. Gerð var grein fyrir því að sjóðurinn fái endurgreiddan virðisaukaskatt. Guðrún óskaði eftir upplýsingum um málið.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
6.
Fundargerð Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 1. des. 2010
Ásgerður Gylfadóttir vék af fundi og Kristján Guðnason kl 17.20 kom inn á fundinn í hennar stað.
Hjalti ræddi um orkumál og niðurgreiðslur. Þá gerði hann að sérstöku umtalsefni síðasta lið í fundargerðinni þar sem varpað er upp hugmyndum um eflingu samtakanna.
Bæjarráð mótmælir fyrirhugðum niðurskurði til jarðhitarleitar, stofnkostnaðar hitaveitu og niðurgreiðslum til almennings á köldum svæðum. Bæjarráð leggur jafnframt áherslu á að stjórnvöld stuðli að því að kostnaður við húshitun á köldum svæðum verði sambærilegur við það sem gerist annar staðar á landinu.
Fundargerð til kynningar.

7.
Fjárhagsáætlun 2011
Lögð fram fjárhagsáætlun samstæðu, sveitarsjóðs, kaupleigukerfisins, Hornafjarðarveitna, Hornafjarðarhafnar og HSSA.
Gerð grein fyrir breytingum á áætluninni frá síðasta fundi sem felast fyrst og fremst í að tekjur voru hækkaðir í samræmi við áætlun jöfnunarsjóðs sem gefin var út fyrir nokkrum dögum.
Starfsmenn fóru yfir áætlunina og greinargerð með henni þar sem kom fram yfirlit yfir helstu verkefni ársins 2011. Samkvæmt áætlun samstæðunnar skilar reksturinn 133 m.kr. afgangi. Rekstrarekjur alls eru 1.518 m.kr. og rekstrargjöld 1.345 m.kr. Fjármagnsliðir eru neikvæðir um 39 m.kr. Langtímaskuldir verða 731 m.kr. og ekki er gert ráð fyrir nýrri lántöku á árinu 2011 en framkvæmdum upp á 210 m.kr. Eigið fé sveitarfélagsins verður 2.011 m.kr. en skuldir og skuldbindingar alls 1.255 m.kr. Veltufé frá rekstri verður 250 m.kr. og handbært fé í árslok 178 m.kr.
Bæjarráð samþykkir að vísa áætluninni til fyrri umræðu í bæjarstjórn

8.
3ja ára áætlun 2011-2013
Starfsmenn fóru yfir áætlunina. Reksturinn er miðaður við rekstur ársins 2011 og breytist í engum aðalatriðum frá því ári. Gert er ráð fyrir yfir 130 m.kr. afgangi á rekstri árin 2012-2014 og veltufé frá rekstri verður yfir 250 m.kr. Framkvæmdir verða alls 190 m.kr. á ári og gert er ráð fyrir lántöku árið 2013 upp á 50 m.kr. og árið 2014 upp á 50 m.kr.
Bæjarráð vísar 3ja ára áætlun til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

9.
Pakkhús leiga- útboðslýsing
Hjalti fór yfir útboðsgögnin. Umræður sköpuðust um gögnin. Björn Ingi benti á að mikilvægt verði að skoða verðbótaþátt, verkfundi og tækjalista útboðsgagnanna.
Samþykkt að vísa málinu til umræðu í atvinnu- og menningarmálanefnd.

10.
Hreindýraarður 2010 - drög
Lagt fram til kynningar.
11.
Hitaveita í Skaftafelli
Hjalti greindi frá umræðu við framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs og ráðgjafa þjóðgarðsins.
12.
Ósk um endurnýjun leigusamnings vegna tjaldsvæðis
Erindið kynnt á fundinum. Starfsmönnum falið að ræða við rekstraraðila.
13.
Ósk um tækifærisleyfi vegna dansleiks á Víkinni 27.12.2010
Engar athugasemdir gerðar.
14.
Endurskoðun leigusamnings um land til sorpurðunar í landi Syðri-Fjarðar í Lóni - viðauki við samning frá 1994
Hjalti fór yfir viðræður við landeigenda. Umræður sköpuðust um samningsdrögin og lagði Björn Ingi fram sjónarmið um mikilvægi þess að urðunarsvæðið verði stækkað í framtíðinni. Bæjarráð samþykkir framlagðan samning.
15.
Tilboð um nýtingu og rekstur bryggjuhúss
Bæjarráð fagnar áhuga á nýtingu mannvirkja við höfnina. Hjalti gerði grein fyrir viðræðum við einstakling sem einnig hefur sýnt áhuga á að nýta mannvirkin. Bæjarráð fagnar áhuga á nýtingu mannvirkja við höfnina. Hjalti gerði grein fyrir viðræðum við einstakling sem einnig hefur sýnt áhuga á að nýta mannvirkin. Umræður sköpuðust um framtíðar notkun húsa við hafnarsvæðið.
Málinu vísað til atvinnu- og menningarmálanefndar..

16.
Samstarfssamningur við Markaðsstofa Suðurlands
Bæjarráð samþykkir framlagðan samning.
17.
Innsend erindi:
18.
Frumvarp til laga um málefni fatlaðra
Til kynningar
19.
Frumvarp til laga um fjárhagsstöðu heimila og fyrirtækja
Engar athugasemdir.
20.
Eftirlitsskýrsla vegna gámavallar á Höfn 26. 08.2010
Til kynningar.
21.
Fyrirspurnir - bæjarráð:
Engar borist.