Bæjarráð Hornafjarðar
605. fundur
8. október 2012
kl.
16:15

00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
varaformaður
Kristján Sigurður Guðnason
1. varamaður
Valdemar Einarsson
1. varamaður
Árni Rúnar Þorvaldsson
áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson (HÞV)
bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 30

Valdemar spurði um vinnu við innleiðingu á 2-3 tunnu kerfi. Hjalti upplýsti að fulltrúar sveitarfélagsins hafi kynnt sér fyrirkomulag flokkunar í Fjarðabyggð og unnið er að útfærslu á innleiðingunni.

Fundargerð samþykkt.

2.
Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 25

Upplýst að Matthildur Ásmundardóttir hafi verið ráðin framkvæmdastjóri HSSA. Hún hefur störf þann 1. nóvember en fráfarandi framkvæmdastjóri vinnur með henni að undirbúningi fjárhagsáætlunargerðar og öðrum yfirstandandi verkefnum. Bæjarráð fagnar því að tilvonandi og fráfarandi framkvæmdastjóri hafi tíma til að vinna saman. Um leið og Matthildur er boðin velkomin til starfa færir bæjarráð Guðrún Júlíu Jónsdóttur, fráfarandi framkvæmdastjóra HSSA, þakkir fyrir áralangt og vel unnið starf fyrir stofnunina. Fundargerð samþykkt.

3.
Samningur við Hólabrekku ehf.

Hjalti vék af fundi undir þessum lið. Jón Kristján Rögnvaldsson félagsmálastjóri mætti á fundinn undir þessum lið.

Jón Kristján fór yfir nýjustu samningsdrög eftir símafund s.l. þriðjudag við fulltrúa sambýlisins Hólabrekku með bæjarráði. Bæjarráð samþykkir að framlagðar tillögur verða kynntar fyrir fulltrúum og forsvarsmönnum sambýlisins Hólabrekku.

4.
Deiliskipulag við Jökulsárlón

Hjalti gerði grein fyrir samskiptum við Vegagerðina í kjölfar framkominna athugasemda frá stofnuninni. Fundur verður í höfuðstöðvum Vegagerðarinnar um deiliskipulag við Jökulsárlón og endurskoðun á aðalskipulagi þriðjudaginn 9. október.

5.
Gamlabúð II. áfangi

Bæjarráð hafði ákveðið í vor að tröppur yrðu gerðar úr forsteyptum einingum. Í ljósi framkominna gagna þá ákveður bæjarráð að kaupa óðalstein og hlaða honum í tröppur við Gömlubúð.

6.
Viðauki við fjárhagsáætlun

Lagður fram viðauki við fjárhagsáætlun. Þar kemur fram að tekjur A hluta aukast um 82 m.kr. en gjöld A hluta aukast að sama skapi um 42,8 m.kr.

Bæjarráð vísar viðauka til bæjarstjórnar.

7.
Viljayfirlýsing um viðræður um eflingu starfsemi í Nýheimum

Hjalti gerði grein fyrir inntaki yfirlýsingarinnar. Þar kemur fram að mennta- og menningarmálaráðuneytið og atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið vilji vinna með stofnunum í Nýheimum og sveitarfélaginu að gerð stefnumótunar um frekari eflingu Nýheima. Hjalti upplýsti að fyrsti fundur um verkefnið verði haldin þriðjudaginn 9. október.

Bæjarráð fagnar viljayfirlýsingunni.

8.
Ný sorpgryfja

Lögð fram teikning og kostnaðaráætlun vegna nýrrar sorpgryfju. Bæjarráð samþykkir framlögð gögn og felur starfsmönnum að bjóða verkið út.

9.
Mat á tækjakosti Sporthallarinnar

Hjalti gerði grein fyrir samskiptum við rekstraraðila Sporthallarinnar um að upphitunartæki séu að verða úr sér gengin. Bæjarráð samþykkir fjárveitingu upp að allt 3,5 m.kr. og vísar til viðauka á fjárhagsáætlun.

10.
Fyrirspurnir - bæjarráð

Engar.