Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

621. fundur
12. febrúar 2013 kl. 16:15 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Kristján Sigurður Guðnason 1. varamaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Valdemar Einarsson 1. varamaður
Bryndís Bjarnarson embættismaður
Hjalti Þór Vignisson (HÞV) bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Gatnaframkvæmdir í Fakaleiru og Álaleiru
Málsnúmer 201302015

Björgvin Sigurjónsson mætti á fundinn undir þessum lið.  Hann kynnti gögnin og fyrirhugaðar framkvæmdir.

Bæjarráð samþykkir framlögð gögn og felur starfsmönnum að auglýsa útboð.  Spurt um gang heitavatnsleitar í Hoffelli.  Björgvin upplýsti um stöðuna.

2.
Aukið stöðugildi á Krakkakoti
Málsnúmer 201301126

Ragnhildur Jónsdóttir mætti á fundinn undir þessum lið.  Gerði grein fyrir framlagðri ósk.  Bæjarráð heimilar að auka við sem nemur hálfu stöðugildi fram að opnun nýrrar deildar í sumar.  Bæjarráð felur bæjarstjóra að leggja fram yfirlit yfir þróun fjölda barna og starfsmanna á síðustu árum.

3.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 37
Málsnúmer 1301014F

Valdemar spurði um næstu skref í flokkun sorps.  Hjalti upplýsti um þá vinnu sem á sér stað í að undirbúa flokkun.  Árni óskaði eftir yfirliti yfir þá vinnu sem farið hefur fram á síðustu árum í tengslum við endurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélagsins.  Þá spurði Árni um vinnu að umhverfisstefnu.  Bryndís upplýsti um vinnu að verkefninu og stöðu stefnumótunar.

4.
Bílastæði við Mánagarð
Málsnúmer 201209008

Reynir fór yfir framlagða tillögu að útliti og frágangi á bílastæði við Mánagarð.  Lagði til að endanleg ákvörðun um upphæð til verksins verði ákveðin

þegar ljóst er hvenær klæðningarflokkur kemur á svæðið.  Valdemar ræddi um umferðareyju og hvort nauðsynlegt væri að hafa hana áfram.  Hjalti upplýsti um viðræður við Vegagerðina um umferðareyjuna.

5.
Skipulag á vestanverðum Breiðarmerkursandi
Málsnúmer 201301048

Bæjarráð samþykkir framlagt erindisbréf og skipar Hauk Inga Einarsson sem fulltrúa sveitarfélagsins í starfshópinn.  Bæjarstjóra falið að óska eftir tilnefningum frá öðrum aðilum og koma starfinu af stað.

6.
Ósk um deiliskipulag vegna fyrirhugðarar byggingar að Reynivöllum
Málsnúmer 201302014

Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.

7.
Ósk um umsögn á tillögu til þingsályktunar um millilandaflug um Hornafjarðarflugvöll, 174. mál.
Málsnúmer 201302016

Bæjarráð fagnar framkominni þingsályktunartillögu.  Mikilvægt er að Hornafjörður verði millilandaflugvöllur vegna legu staðarins gagnvart ferjuflugi til og frá Evrópu sem og möguleikum til lendingar smærri flugvéla frá útlöndum.  Árni tekur undir efni tillögunnar en bendir á að mikilvægt sé að tryggja undirstöður innanlandsflugs á staðnum til framtíðar.  Bæjarráð sammála um mikilvægi flugvallarins sem áfangastaðar í innanlandsflugi.

8.
Ósk um umsögn á frumvarp til sveitarstjórnarlaga (fjöldi sveitarstjórnarfulltrúa og efling íbúalýðræðis), 204. mál.
Málsnúmer 201302018

Til kynningar.

9.
Ósk um umsögn á frumvarp til sveitarstjórnarlaga, 449. mál
Málsnúmer 201302017

Til kynningar.

10.
Stækkun á matarsmiðju Matís á Höfn
Málsnúmer 201301045

Lagt fram minnisblað dags. 9. febrúar 2013.  Valdemar fagnaði hugmyndinni og taldi mikilvægt að skoða aðskilnað vinnslu kjötvara og fisks.  Einnig hvort stækkun matarsmiðjunnar gæfi kost á að leigja hluta af smiðjunni í lengri tíma í senn.

11.
Niðurstöður fjölmiðlagreiningar fyrir Hornafjörð
Málsnúmer 201302026

Til kynningar.

12.
Ósk um umsögn á endurnýjun rekstrarleyfis - Hótel Skaftafell
Málsnúmer 201302027

Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.

13.
Ósk um umsögn á útgáfu rekstrarleyfis fyrir gistingu Júllatúni 15
Málsnúmer 201302031

Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.

14.
Ósk um styrk fyrir Lífstöltið
Málsnúmer 201302028

Hafnað.

15.
Ágangur hreindýra og girðingamál í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 201109078
Til kynningar

Til kynningar.

16.
Úthlutun framlags vegna sölu félagslegra íbúða
Málsnúmer 201301128
Til kynningar

Til kynningar.

17.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100