Bæjarráð Hornafjarðar
646. fundur
14. október 2013
kl.
16:00
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Björn Ingi Jónsson
aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason
varaformaður
Guðrún Ingimundardóttir
áheyrnarfulltrúi
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Hjalti Þór Vignisson (HÞV)
bæjarstjóri
Haukur Ingi Einarsson (HIE)
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 245
Fundargerð samþykkt.
2.
Kynning á stikun gönguleiðar á Breiðamerkursandi, staðan og verkefnið framundan
Rannveig Einarsdóttir verkefnisstjóri verkefnisins mætti á fundinn undir þessum lið. Greindi hún frá að stikun gönguleiðar frá Jökulsárlóni að Fjallsárlóni er lokið. Styrkumsókn hefur verið send inn til Vina Vatnajökuls til að setja upp fræðsluefni á gönguleiðinni.
3.
Þróun fjárhagsaðstoðar
Jón Kristján Rögnvaldsson sat fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir fjárhagsaðstoð sveitarfélagsins.
4.
Úttekt á aðstæðum og þjónustu við fatlað fólk á Hornafirði
Jón Kristján sat fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir stöðu málsins og vinnu við stefnumótun í málefnum fatlaðs fólks.
5.
Fjárhagsáætlun 2014 - forsendur
Haukur Ingi gerði grein vinnu við gerð fjárhagsáætlunar. Sagði að forstöðumenn væru búnir að yfirfara sína ramma. Sagði að heildarmynd væri komin á áætlunina. Gerði ráð fyrir að lögð yrði fram endanleg tillaga til fyrri umræðu þann 21. október nk. Taldi að allar lykilstærðir í rekstri, efnahag og sjóðstreymi væru í góðu lagi.
6.
Framkvæmdir og verkefni 2013-2014
Haukur Ingi upplýsti að gögn verða lögð fram á næsta fundi bæjarráðs.
7.
Ný sorpgryfja
Björgvin Sigurjónsson mætti á fundinn undir þessum lið. Greindi frá því að framkvæmdum er nánast lokið við sorpgryfjuna í Lóni. Sagði frá að viðbótarkostnaður væri fyrirséður vegna lagfæringa á drenkerfi og hliðarþéttingum í urðunarreininni. Bæjarráð samþykkir kaup á rotþró og frágangi hennar og vísar málinu að öðru leit til fjárhagsáætlunarvinnu.
8.
Beiðni um samstarf við þróun verkefnis á sviði loftslagsmála.
Haukur Ingi og Bryndís gerðu grein fyrir fundi með starfsfólki Landverndar þann 7. október sl..
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í verkefninu og vísar málinu til kynningar í umhverfis-og skipulagsnefnd.
9.
Fundargerð Ríki Vatnajökuls okt. 2013
Hjalti sagði frá umræðum í stjórn Ríkis Vatnajökuls um stöðu klasans og framkvæmdastjóraskiptum. Jafnframt sagði Hjalti frá ráðstefnu sem halda eigi um stöðu og tækifæri í ferðaþjónustu hér í sýslunni þann 1. nóvember. Bæjarráð er sammála um að funda með stjórn Ríki Vatnajökuls að ráðstefnunninni lokinni.
10.
Deiliskipulag við Hnappavelli
Bæjarráð samþykkir að deiliskipulagið verði unnið á þeim nótum sem kynnt er í framlögum drögum.
Starfsmönnum falið að beina því til landeigenda að gæta þess að deiliskipulag samræmist aðalskipulagi.
11.
Byggingar-og skipulagsmál
Hjalti fór yfir verkefni um stjórnsýslu byggingar- og skipulagsmál.
12.
Sláttur opinna svæða
Starfsmönnum falið að afla gagna varðandi sambærilega þjónustu í öðrum sveitarfélögum.
13.
Ósk um námsleyfi
Bæjarráð sammála um að veita Hauk Inga Einarssyni árs leyfi án launa frá og með 1. ágúst 2014.
14.
Fyrirspurnir - bæjarráð