Bæjarráð Hornafjarðar
657. fundur
6. janúar 2014
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Kristján Sigurður Guðnason
varaformaður
Valdemar Einarsson
1. varamaður
Guðrún Ingimundardóttir
áheyrnarfulltrúi
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Ásgerður Gylfadóttir bæjarstjóri
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Málefni Akureyjar
Málinu vísað til bæjarráðs frá atvinnu- og menningarmálanefnd á fundi 44. þann 17. des sl. þar sem óskað er eftir úttekt á öryggismálum við og í Akurey og framkvæmdum til forvarna. Bæjarráð felur Birni Arnarsyni og Birni Imsland að fara yfir ástand bátsins og meta hvað hægt er að gera til að forðast slys.
2.
Endurgreiðsla vegna minkaveiða
Til kynningar bréf frá Umhverfisstofnun þar sem kemur fram að við endurskoðun reikninga sveitarfélagsins vegna minkaveiða frá 01.09.10-31.08.11 eigi sveitarfélagið rétt á endurgreiðslu úr ríkisjóði að upphæð 100.943,-
3.
Upplýsingar vegna fyrirhugaðs flutnings lyfjaútibús
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við flutning lyfjaútibús í Miðbæ.
4.
Rannsóknir v. vegstæðis yfir hornafjarðarfljót
Til kynningar er bréf frá Vegagerðinni þar sem tilkynnt er um fyrirhugaðar rannsóknir og byrjunarathuganir vegna vegframkvæmda um Hornafjarðarfljót. Bæjarráð fagnar þessum áfanga, að loks sé komin hreyfing á þessa mikilvægu framkvæmd.
5.
Umsókn um stofnun fasteignar (þjóðlendu) Heiti Breiðármörk
Bæjarráð felur umhverfis- og skipulagsfulltrúa að ganga frá stofnun fasteignarinnar sem um er beðið og jafnframt að afgreiða önnur sambærileg mál sem borist hafa og hafa verið í bið.
6.
Þorrablót Höfn 2014
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
7.
Góuhóf 2014
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
8.
Mikligarður_Áfanga-tillaga
Bréf dagsett 31. des 2013 frá Forsætisráðuneytinu lagt fram til kynningar þar sem tilkynnt er um 15 milljón króna styrk til viðgerðar á ytra byrgði Miklagarðs og endurnýjunar á upprunalegri gluggagerð. Bæjarráð fagnar veittum styrk og felur bæjarstjóra að hafa samband við Minjastofnun og fá upplýsingar um ferli málsins.
9.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Fyrirspurn frá Guðlaugu Hestnes lögð fram þar sem spurt er um framkvæmdir við Sindrabæ. Hvort ekki sé á dagskrá að halda áfram þar. Kom fram að bæjarstjóri hefur svarað fyrirspurninni og þar kemur fram að 15 milljónir eru á fjárhagsáætlun 2014 í framkvæmdir við Sindrabæ.