Bæjarráð Hornafjarðar
661. fundur
3. febrúar 2014
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Björn Ingi Jónsson
aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir
áheyrnarfulltrúi
Ásgrímur Ingólfsson
1. varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Ásgerður Gylfadóttir bæjarstjóri
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 41
Matthildur Ásmundardóttir framkvæmdastjóri HSSA sat fundinn undir þessum lið. Umræður um fjárhagsáætlun HSSA fyrir árið 2014 og sameiningaráform heilbrigðisstofnanna sem áætluð eru í haust. Guðrún spyr um framkvæmdir við Ekruna þá aðallega utandyra? Framkvæmdir ganga vel og á þeim að ljúka í lok mars.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Almannavarnanefnd - 45
Fundargerð frá því í október sem ekki hafði komið fyrir bæjarráð. Ásgrímur gerði lið tvö að umtalsefni, undanfarabíl hvort að nýta megi bíl sem sveitarfélagið á í þetta verkefni. Guðrún kom inná aukinn fjölda ferðamanna sem að sækja sveitarfélagið heim og því fylgi að hægt sé að bregðast við í neyð. Bæjarráð óskar eftir að farið verði í að undirbúa málið og gera tillögu til bæjarráðs með áframhaldið. Bæjarráð leggur áherslu á að leitað verði hagstæðustu útfærslu. Bæjjarráð ítrekar að leitað sé upplýsinga um eignarhald á veginum um Almannaskarð. Fundargerð samþykkt.
3.
Lyfta í Grunnskóla Hornafjarðar
Björn Þór Imsland umsjónarmaður fasteigna sat fundinn undir þessum lið. Björn kynnti tilboð í lyftuna, tvö verð bárust frá Íslandslyftum hf. uppá 2.723.300 kr m/vsk og 2.796.464 kr m/vsk. þá á eftir að koma kostnaður í tengingar og frágang. Afgreiðslufrestur á lyftu er um 3 mánuðir. Bæjarráð óskar eftir að starfsmenn vinni áfram að málinu og komi með tillögu að fjármögnun.
4.
Skráning skipulagsfulltrúa hjá Skipulagsstofnun
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson skipulags- og byggingarfulltrúi sat fundinn undir þessum lið. Fór yfir ferli skipulagsmála o.fl.
5.
Þjóðlendunefnd - fundargerðir
Tvær fundargerði Þjóðlendunefndar til kynningar. Næsti fundur nefndarinnar er n.k. miðvikudag 5. febrúar.
6.
Vinnuskóli um sjávarútveg sumarið 2014
Til kynningar, verkefni sem þetta er ekki inní fjárhagsáætlun fyrir árið 2014.
7.
Rekstrarleyfi fyrir Náttból ehf. - endurnýjun
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við endurnýjun leyfisins.
8.
Tilraunaverkefni um rafræna kosningu
Til kynningar bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
9.
Urðunarstaður Lóni
Erindi frá Umhverfisstofnun til kynningar. Bæjarstjóri kynnti málið og upplýsti að unnið er að úrbótum.
10.
Nýheimar, samningur um rekstrarframlag 2014
Ný undirskrifaður samningur um Þekkingarsetrið Nýheima ses til kynningar.
11.
Beiðni um fjárstuðning við forvarnarstafr SAMAN-hópsins
Beiðni um fjárstuðning við forvarnarstarf SAMAN-hópsins og umsókn um styrk frá meistaranemum í HR vegna verkefnis sem unnið er fyrir SAMAN hópinn.
Umsóknum hafnað.
Umsóknum hafnað.
12.
Umsókn um styrk við fimleikastúlkur
Bæjarráð vísar umsókninni til umræðu í skóla-, íþrótta- og tómstundarnefnd.
13.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Engar borist.