Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

674. fundur
12. maí 2014 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Kristján Sigurður Guðnason varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir áheyrnarfulltrúi
Ásgerður Kristín Gylfadóttir bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Ásgerður Gylfadóttir bæjarstjóri bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 63
Málsnúmer 1404006F
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson starfsmaður nefndarinnar sat fundinn undir þessum lið.

Guðrún spurði út í stöðuleyfi og reglur um þau. Rúnar fór yfir helstu þætti varðandi stöðuleyfi.

Fundargerð samþykkt.
2.
Hafnarnes - beitiland
Málsnúmer 201310069
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson sat fundinn undir þessum lið.

Farið yfir ferli málsins. Bæjarráð felur starfsmönnum að fara yfir samninga um beitilönd og lóðir á Ægissíðu, auglýsa þau svæði sem eru án samnings til leigu eða endurnýjunar á leigu.
3.
Skógey - erindi frá Landgræðslu ríkisins
Málsnúmer 201403062
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson sat fundinn undir þessum lið.

Landgræðslan hefur áhyggjur af ofbeit á landinu og fer fram á að landið verði girt. Starfsmönnum falið að kostnaðarmeta verkið og hafa samband við aðra landeigendur í Skógey.
4.
Umsókn um leyfi til að nýta land innan þjóðlendu og Stöðuleyfi
Málsnúmer 201405022
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson sat fundinn undir þessum lið. Erindinu vísað til bæjarstjórnar.
5.
Jökusárlón - erindi Einars Björns vegna umsóknar um stöðuleyfi
Málsnúmer 201405039
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson sat fundinn undir þessum lið. Umræddu stöðuleyfi, 4. liður í fundargerð bæjarráðs vísað til bæjarstjórnar.
6.
Uppbygging við Jökulsárlón
Málsnúmer 201309046
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson sat fundinn undir þessum lið. Farið yfir drög að svarbréfi til aðila málsins varðandi uppbyggingu við Jökulsárlón. Bæjarráð samþykkir framlögð drög óskar efir að bréfið verði birt opinberlega vegna fjölmiðlaumfjöllunar um málið.
7.
Viðauki II FHÁ 14
Málsnúmer 201405038
Ásta H. Guðmundsdóttir og Haukur Ingi Einarsson sátu fundinn undir þessum lið. Viðauki II samþykktur í bæjarráði með áorðnum breytingum og vísað til bæjarstjórnar.
8.
Skólamáltíðir útboð 2014-2018
Málsnúmer 201403002
Ásta H. Guðmundsdóttir, Haukur Ingi Einarsson og Ragnhildur Jónsdóttir sátu fundinn undir þessum lið.
Farið yfir drög að samningi um skólamáltíðir við stjórn HSSA. Komið með ábendingar sem farið verður yfir og drögunum vísað til umfjöllunar í stjórn HSSA.
9.
Skólaakstur í Öræfum 2014 - útboð
Málsnúmer 201402012
Ásta H. Guðmundsdóttir, Haukur Ingi Einarsson og Ragnhildur Jónsdóttir sátu fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð felur Ragnhildi fræðslustjóra að bera áætlunina um skólaakstur undir foreldra og skólastjórnanda Grunnskólans í Hofgarði.
10.
Erindi frá Samorku, Sv.Hornafj boðin aðild
Málsnúmer 201404020
Framkvæmdastjóri veitusvið Samorku kom í heimsókn á Höfn sl. miðvikudag og kynnt starfsemi þeirra. Bæjarráð samþykkir að ganga inn í Samorku.
11.
Umsóknir um stöðu Framkvæmda- og umhverfisstjóra
Málsnúmer 201405025
Bæjarstjóri kynnti umsóknir um stöðu framkvæmda- og umhverfisstjóra. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
12.
Deiliskipulag Stafafellsfjöllum lóð nr. 11
Málsnúmer 201405040
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson sat fundinn undir þessum lið. Miklar umræður sköpuðust um deiliskipulagið, ýmis álitamál komu upp. Bæjarstjóra falið að setja sig í samband við lögfræðing sveitarfélagsins og upplýsa bæjarráð um niðurstöðu þess samtals.
13.
Samningur við knd.Sindra um vallarumhirðu 2014
Málsnúmer 201405026
Kristján S. Guðnason vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarstjóra falið að undirrita samning í samræmi við umræður á fundinum enda sé um sambærilegan samning að ræða og 2013.
14.
Eftirlitsferð HAUST til Hornafjarðar
Málsnúmer 201405027
Bréf frá HAUST til kynningar.
15.
Samkomulag um kaup á skólastofuhúsnæði í Nesjum
Málsnúmer 201206018
Bæjarstjóri upplýsti að ferli málsins er lokið.
16.
Umsókn um tækifærisleyfi
Málsnúmer 201405028
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
17.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100
Engar borist.