Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

675. fundur
19. maí 2014 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Kristján Sigurður Guðnason varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir áheyrnarfulltrúi
Ásgerður Kristín Gylfadóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 251
Málsnúmer 1405006F
Jón Kristján Rögnvaldsson félagsmálafulltrúi mætti á fundinn undir þessum lið. Guðrún spurði hvort barnaverndarmálum sé að fjölga í sveitarfélaginu, félagsmálafulltrúi greindi frá að breytingar hafi ekki verið miklar í barnaverndarmálum.
Bæjarráð óskar eftir nánari upplýsingum um málaflokkinn.
Fundargerð samþykkt.
2.
Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 47
Málsnúmer 1405005F
Guðrún spurði um lið 6. þar sem kemur fram áksorun sem stjórn Vöruhússins sendi til Skóla-,íþrótta- og tómstundanefndar um að flytja Þrykkjuna úr Vöruhúsi í annað varanlegt húsnæði.
Ásgerður greindi frá að ekki hafi verið vilji fyrir að flytja Þrykkuna úr Vöruhúsi.
Umræður um hvort stofna eigi stjórn í Vöruhúsi, bæjarráð er ekki hlynt því að stofna stjórn fyrir Vöruhús.
3.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 164
Málsnúmer 1405001F
Guðrún spurði um 1. lið fagnaði því að hafnarstjórn hafi afhent Miklagarð til Hornafjarðarsafna til uppbyggingar til safnamála. Guðrún spurði hve mörg skemmtiferðarskip komi í sumar.
Reynir upplýsti að búið sé að bóka fjögur skemmtiferðarskip í su.
4.
Skólamáltíðir útboð 2014-2018
Málsnúmer 201403002
Haukur Ingi Einarsson innkaupa-og hagsýslustjóri mætti á fundinn undir þessum lið gerði grein fyrir samningi við HHS um framleiðslu á skólamáltíðum fyrir grunnskólann.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ganga frá samningi við HSSA.
5.
Samningar
Málsnúmer 201311038
Haukur Ingi fór yfir stöðu mála.
6.
Vörukaup á Olíuvörum og öðrum rekstrarvörum svo sem salernispappír, sápum, plastpokum o.fl sambærilegu
Málsnúmer 201403041
Haukur Ingi gerð grein fyrir verðkönnun þar sem sveitarfélagið óskar eftir tilboðum í rekstrarvörur frá Olís og N1 fyrir allar stofnanir, deildir og fyrirtæki Sveitarfélagsins.
Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu.
7.
Verksamningur um byggingu á Sorpmóttökuhúsi
Málsnúmer 201405055
Lagt fram til kynningar.
8.
Auglýsing, starfsleyfi í þjóðlendu
Málsnúmer 201405056
Farið var yfir drög að auglýsingu um starfsleyfi á fyrirhuguðum skipulagsreit við Fjallsárlón.
Bæjarstjóra falið að auglýsa starfsleyfið þar sem kemur fram að umsóknum skuli skilað fyrir kl.12:00 26. maí 2014.
9.
Fyrirspurn um aðstöðu í mastri við Holt og aðstöðu í húsinu.
Málsnúmer 201405057
Bæjarstjóra falið að afla frekari gagna frá umsækjanda.
10.
Umsögn um frumvarp til laga um opinber fjármál nr. 508
Málsnúmer 201405054
Lagt fram til kynningar.
11.
Umsóknir um stöðu Framkvæmda- og umhverfisstjóra
Málsnúmer 201405025
Ásgerður greindi frá umsóknarferli framkvæmda-og umhverfisstjóra kom fram að átta sóttu um stöðuna.
Umsækjendur voru:
Atli Geir Júlíusson, umhverfisverkfræðingur
Davíð Jens Guðlaugsson, serfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf.
Drífa Gústafsdóttir, skipulagsfræðingur.
Egill Skúlason, Ba umhverfis og orkufræði,Msc sjálfbær orkuvísindi.
Gunnar Örn Reynisson, viðskiptalögfræðingur.
Hjördís Sigurðardóttir, landslagsarkitekt.
Mæva M. Urbschat, líftæknifræðingur.
Tómas Ellert Tómasson, byggingaverkfræðingur.

Bæjaráð samþykkir að ráða Tómas Ellert Tómasson og býður hann velkomin til starfa.
12.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100
Engar fyrirspurnir hafa borist.