Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

702. fundur
29. desember 2014 kl. 13:30 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir (ÁHG)
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 53
Málsnúmer 1412005F
Fundargerð Skóla- Íþrótta- og tómstundarnefndar lögð fram. Í fyrsta lið er farið yfir niðurstöður samræmdra prófa en þar kemur fram að 7. og 10. bekkur er undir landsmeðaltali á meðan 4. bekkur er fyrir ofan landsmeðaltal. Það eru væntingar bæjarráð að þær áherlsubreytingar í lestri og stærðfræði sem gerðar hafa verðið komi til með að styrkja námsárangur hornfirskra barna.
fundargerð samþykkt. Ásgerður ræddi 3. liður styrkur vegna námsupplýsingakerfi og hvort viðbætur í Mentor myndi duga til að uppfylla kröfur Mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Samkvæmt upplýsingum frá fræðuslustjóra mun svo eiga að vera.
fundargerð samþykkt.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 170
Málsnúmer 1412001F
Fundargerð Hafnarstjórnar lögð fram. 3. liður á dagskrá þessa fundar er farið yfir áframhaldandi rannsóknir á Grynnslum. Farið yfir stöðu mála ekki hefur en borist lokaskýrsla Vegagerðarinnar sem kynnt vara á málþingi 10.september 2014 og á fjárlögum ársins 2015 eru ekki settir neinir peningar í frekari rannsóknir á Grynnslunum. Bæjarstjóri upplýsti að hann hefði náð fundi með Hreini Haraldssyni Vegamálastjóra þann 19. desember þar sem staða málsins var rædd. Þar var lögð mikil áhersla á mikilvægi frekari rannsókna til að sú vinna sem nú þegar hefur verið unnin ónýtist ekki. Vegamálastjóra sagðist myndi leggjast yfir þetta mál með sýnum mönnum eftir áramótin og reyna að finna einhverja fjármuni til verkefnisins sagðist hafa fullan skilning á mikilvægi þess.
Fundargerð samþykkt.
3.
Staða sveitarsjóðs 2014
Málsnúmer 201404030
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir sat fundinn undir þessum lið. Ásta fór yfir stöðu sveitarsjóðs 30.nóv 2014. Tekjur eru í samræmi við áætlun en gjöld um 3% umfram áætlun. Umræður um mánaðarlegt yfirlit og möguleika á að gera þriggja mánaðar deildaryfirlit sem fjármálasvið og forstöðumenn myndu fara yfir.
4.
Samstarfssamningur - Sindri 2015-
Málsnúmer 201411022
Farið yfir drög að nýjum samning við Ungmennafélagð Sindra 2015-2018. Einnig var lagt erindi frá aðalstjórn Sindra með athugasemdum við framangreind samningsdrög.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
5.
Samningur við Björgunarfélag Hornafjarðar
Málsnúmer 201412023
Samningur við Björgunarfélag Hornafjarðar lagður fram en hann var undirritaður þann 16.desember um er að ræða samskonar samning og í gildi hefur verð síðust 4 árin. verðgildi styrkupphæðar hvers árs er 2.433.000 krónur og gildir samningurinn til loka árs 2018.
Bæjarráð samþykkir framlagðan samning.
6.
Ósk um breytingu á aðalskipulagi
Málsnúmer 201412028
bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar